Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1978, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1978, Síða 4
; .......................................- Alda og Siguröur ríöa yfir Jökullóniö. Jónas segir til á bakkanum A móti. Maöur er nefndur Jónas og er Guö- mundsson. Hann býr á Hellu á Rangárvöll- um og hefur þann starfa aö slá skeifur í eldi. Þegar hestaferöalög í Þórsmörk voru í algleymingi, var Jónas þekktur leiðsögu- maður þangaö, enda upprunnin í Fljóts- hlíöinnl, frá Núpi. í þeim feröum var jafnan riðiö yfir Markarfljót og þótti Jónas vel duga í vötnunum enda afarmenni að buröum og karlmenni hiö mesta. Jónas er mikill hestamaður og ræktar hross sín aö Núpi. Hann áttl hryssu þá er Brún hét en hún þótti slíkt afbragö, aö Þorkell Bjarnason hrossaræktarráöunaut- ur ríkisins taldi hana fegurstu hryssu á íslandi sem og fleiri. Brún féli níu vetra úr hrossasótt. Varð hún öllum mikill harm- dauöi. „Svona er lífiö," sagöi Jónas, þegar hann frétti lát hryssunnar. Hann hefur þetta að orðatiltæki. Siguröur heitir maöur og er Karlsson. Hann er olíufursti þeirra Rangæinga, þar sem hann dreifir vörum British Petroleum, BP í héraðinu. Sigurður á fjölda hrossa og hefur ekki alltaf haft við aö gefa þeim nafn. Tveir hestar í eigu Sigurðar, leirljósir, voru meö í ferö þeirri, er brátt greinir frá. Voru þeir úr Þykkvabænum, en vantaöi á þá nöfnin. Kom þá upp sú tillaga aö annar skyldi heita Gullauga en hinn Helgu-Leiri í höfuöiö á tveim frægustu afuröum þeirra Þykkbæinga. Þótti Siguröi þetta afbragö, enda drægu aliir nokkuð dám af uppruna sínum. Kom líka á daginn, aö þeir leirljósu reyndust ómiss- andi viö allar aöstæöur, líkt og kartöflur eru ómissandi með öllu því, sem ís- lendingar láta ofaní sig. Þessir tveir höföingjar buöu undirrituö- um meö sér í Þórsmerkurferö. Þar sem þetta var eitt af þeim tilboöum, sem ekki veröur hafnaö, var boöiö þakksamlega þegið. í svona feröir þarf góðan trússabíl og bílstjóra. Ekki sízt í Þórsmerkurferð, þar sem vötn eru mörg og ströng. Á leiðaþingi um málið vorum viö einnig allir mjög sammála um þaö, aö viökomandi þyrfti aö vera skemmtilegur, svo aö hann hæföi nú félagsskapnum. „Arni Jónsson," sagöi Jónas, „hann er mín tillaga í þessu máli. Hann er öllu vanur þarna í Mörkinni, á nýjan Rússa-jeppa og er jafn lagviss í söng sem hann er viss á áttunum í þoku." Málið var afgreitt og Árni gekkst inn á starfiö. „Þá er þaö eldamennskan," sögöu þeir Jónas og Sigurður og horföu á mig. Ég fullvissaði þá um aö ég væri bezti kokkur í heimi. „Já, viö vissum þaö náttúrulega," hummaöi í þeim, „en þar sem viö viljum nú frekar lifa þessa ferö af, og ekki veröa algjörlega afétnir, þá leggjum viö til, aö þú geymir hæfileika þína til betri tíma og aö okkur fjarstöddum." Ég skildi aö vandamáliö væri brýnt, enda ekki á hvers manns færi aö vera kokkur, þar sem ég væri kostgangari. „Ég tala viö Öldu," sagöi Siguröur og ég heyröi feginsstunu líða frá Jónasl. Alda var kona Siguröar ættuö frá Bjóluhjáleigu og Árbæ í Holtum, þaðan sem hvaö mest mannval hefur komiö úr Rangárþingi á vorum dögum. Þarf ekki aö fjölyröa um það, aö viö grenntumst ekki í þessari ferö, en mikið mega kokkar duga í svona feröum, því þvílíkan lystauka sem fjallaloftiö getur ekkl. Til forna þótti ekki hæfa annaö en hafa meö sér hestasveina í stórræöi og þar sem ekki mátti minna vera nú, var talsvert af yngri kynslóðinni meö í feröinni. Jónas haföi meö sér kaupamann sinn er Valur heitir, en hann mátti jafnan þola þaö aö vera nefndur „Valur, sem tapaöi fyrir Skagamönnum", í tilefni úrslita bikar- keppninnar í knattspyrnu. Alda og Siguröur höföu meö sér syni sína Þröst og Sigurö, en undirritaöur son sinn Valdimar Karl. Viö vorum meö 21 hest. Sigurður, Alda og strákarnir meö 9, Jónas og Valur meö 7 og viö Valdi meö 5. Mínir hestar voru allir vanir feröahestar, þar sem ég haföi afrekaö þaö aö ríöa uppí Borgarfjörð fyrr um sumariö. Fyrst skal telja jarpan hest frá Áshóli í Holtum. Hefur hann gengiö undir ýmsum nöfnum um dagana. Álfur, Osmond, Villidýrið eöa bara Jarpur. Þó hefur hann náö svo langt aö kallast Fagri-Jarpur og skeöi það inní Jökulgili á Landmanna- afrétti. í rekstri þangað inneftir, þegar fariö var á Fjall, fékk hann viöurnefniö Villidýriö, vegna slægðar og styggöar. Þegar ég svo á hinn bóginn haföi komist fyrir rollu á honum inní Jökulgilinu, sem allir töldu tapaöa, fékk hann nafnbótina Fagri-Jarpur. Svona eru jafnvel nöfn afstæö eftir viöhorfi manna á hverjum tíma. Þá nefni ég Þyt, bleikskjóttan Skagfirö- ing frá Kýrholti eöa Flugumýri. Þyt var lengi hleypt á yngri árum, en er sem reiöhestur alhliöa gæöingur. Þó kemur kappiö upp í honum á stundum og gerist hann þá nokkuö stífur í taumum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.