Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1979, Side 9
Mikið hlýtur að hafa verið heitt
þennan dag: Ráðherrabústaðurinn
við Tjarnargötu.
í tilefni nýlega afstaðinna
páska, eru hér tvær páska-
liljur, sem Ólafur hefur
unnið á sinn hátt.
Norðurendi Suðurgötunnar. Húsið
Suðurgata 7, sem nú er sýningar-
salur, er til hæeri á mvndinni.
Öskar Aöalsteinn
VOR-
VAKA
Koma seint úr suðurvegi
söngfuglar.
Stormar feykja þeim
óraieiöir afvega
— nærri ókunnum stjörnum.
Seint kemur voriö.
Skógar laufvana
— og komin harpa.
Yngstu bjarkir tárast.
Vættir sem byggja hóla og fell
sitja uhd bláhimni
í söngvabiö.
Tjarnir týna brosi sínu
í ómþrá.
Ár á ísum.
Fossar bundnir frera.
Tungliö fullt
varpar fölvum geislum
milli egghvassra skýjaskara.
Skuggar hlaupa langa vegu
meöal nágranna.
Seint
kemur voriö.
Stríöar
hef ég andvökur
í söngvaþrá.
Bænin brestur mig
þótt fast sé beöið
marga stund:
Himnahersir
geföu aö þráöir fuglar
— jólasöngvarar þínir
frá í vetur —
komi úr bláum fjarska.
Gefðu —
að söngvar þeirra
veki sumardali
af fannadölum.
Himininn þegir.
Allt er þögn
og kaldur klaki.
Magnast þögnin
við ölduslögin
á klakafjörum
og ýlfur stormsins
yfir storö.
Söngfuglar
nærri ókunnum stjörnum.
Sumarljóðin
blunda
í hyldýpinu
á bak viö hel
og dauðans skugga.
Ó, söngvabið.
(Reykjanesvita, á vordögum J979).