Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Síða 6
Yfir 1000 Pakistanar horfftu
á í Islamabad. þegar ungur
maAur var hýddur. sam-
kva'mt boðum Kóransins.
fyrir aö hafa táldrcKÍð
stúlku. Aðrins fáir. sem lifa
þessa hýðingu af. sleppa við
varanlejjan skaða.
... þá höggvið hönd-
ina af þjófnum!“ Svo
býður Kóraninn. Á
myndinni sést þjófur.
sem gerst hefur sekur
í fyrsta sinn og missir
því hægri höndina.
Við ítrekað brot miss-
ir hann vinstri fótinn.
Sá. sem stelur f jórum
sinnum, hefur hvorki
hendur né fætur.
Þrír afbrotamenn
hengdir opinberlega 1
Teheran. Þetta var á
valdatfma keisarans.
Eftir valdatöku
Khomcinis eru slíkar
aftökur daglegur við-
burður.
REFSINGAR
SAMKVÆMT
KÓRANINUM
Á fyrsta föstudegi hvers mánaöar fer
fram á markaöstorginu í Jidda hýöing,
grýting, hálshöggvun og henging. Og
hundruð, já, þúsundir manna, eru
áhorfendur aö þessum makalausu
sýningum. Sífellt fleiri Múhameöstrúar-
ríki innleiöa nú hin ævafornu lög
Kóransins og þær refsingar, sem hann
býöur. íran, undir stjórn Ajatollah
Khomeini er nýjasta dæmiö um þetta
og kemur þessi breyting okkur vestur-
landabúum sannarlega fyrir sjónir sem
stórt skref aftur á bak til svörtustu
miðalda. „Viö viljum lög Islams í
íslömsku ríki, sem líkist því, sem var á
dögum Móhameds og Alis, eins og
hægt er,“ haföi Khomeini þegar lýst yfir
í útlegö sinni í Frakklandi. Fyrsta
skrefið afturábak hefur þegar veriö
stigiö: í heimaborg Khomeinis Qom og
í hinum helgu borgum Mesched og
Isfahan hafa trúarleiötogar tekiö alla
opinbera stjórnsýslu í sínar hendur,
lögregla og dómstólar keisarans hafa
oröiö aö víkja og bráðabirgöadómstól-
ar hafa tekið viö. Þeir útdeildu strax
sínum fyrstu hýðingum: 4 ungmenni
fengu 25 vandarhögg hvert fyrir aö
hafa stoliö bifreiö í Qom. Fyrir þaö
máttu þau þó þakka sínum sæla, því
Khomeini hefur oft ítrekað þaö, aö
refsingin, samkvæmt Kóraninum, fyrir
þjófnaö, sé sú aö höndin höggvist af. í
Kóraninum, kafla (Sura) 5, versi 38,
stendur: „Ef maður eöa kona gerast
sek um þjófnað, þá höggviö hönd
þeirra af.“
í Suöur-Arabíu, sameinuöu Arbaríkj-
unum og í Lýbiu, er þaö daglegur
viöburöur á fólk sé handarhöggviö. Viö
fyrsta brot er hægri hönd höggvin af,
en viö ítrekað brot er vinstri fótur
höggvinn. í Pakistan eru menn þó
dálítið „mannúölegri" því þar fer at-
höfnin fram á sjúkrahúsi og fram-
kvæmd af læknum, eftir öllum kúnstar-
innar reglum.
Ef farið er eftir boðum Khomeinis og
Kóraninn tekinn alvarlega, þá hefur
hver maöur eöa kvenmaöur fyrirgert lífi
sínu, ef hann eða hún hafa gerst sek
um framhjáhald. Þannig hljóöar þ^ð í
Kóraninum, Sura 24, versi 2: „Ef
kvæntur maöur eöa gift kona fremja
hjúskaparbrot, þá grýtiö þau í hel í
öllum tilfellum til refsingar fyrir Guöi.“
Ekki er langt síöan skuggaleg athöfn
fór fram í S-Arabíu: Hundruö manna
horfa spenntir á bööulinn á markaös-
torginu í Jidda. Hann er nakinn aö
beltisstaö og heldur á bjúgsverði.
Hann hnyklar vöövana, lítur hægt í
kringum sig, og lyftir sveröinu meö
báðum höndum. Fyrir framan hann
krýpur maöur og leggur höfuöiö á
stóran viðardrumb. Ailt í einu tekur
bööullinn viöbragö og heggur sverðinu
meö háum hvin. Höfuö sakborningsins
veltur niöur í sandinn, skrokkurinn
lyppast niöur og blóöiö gusast taktfast
út úr strjúpanum.
Þetta er ekki nein sviösmynd frá
miðöldum, heldur óhugnanlegur raun-
veruleiki nútímans.
Fjórir aörir menn verða einnig aö
láta lífiö þennan sama dag, og þaö
meö enn meiri hörmungum. Þetta var
einnig í Jidda. Þeir höfðu allir gerst
sekir um að hafa tekið sömu konuna
meö valdi. Þeir voru fyrst grýttir, en
síðan hálshöggnir — eins og hin 1300
ára gamla „Scharia" eða lögbók
Kóransins — mælir fyrir um. Þeir þrír,
sem grýttir voru, voru kvæntir, þess
vegna átti dauödagi þeirra aö verða
mun kvalafyllri. Sá fjóröi, sem var
unglingur og ókvæntur, fékk sneggri
dauödaga. Ógiftir elskendur, sem
staönir eru aö of nánum mökum, fá þó
venjulega að halda lífi, því í Kóraninum
segir: „Þegar karl eöa kona, sem ekki
eru gift, fremja ósiösamlegt athæfi, þá
veitið þeim 100 vandarhögg hvoru.“
Svo mörg eru hin heilögu orð.
í Saudi-Arabíu fara fram refsingar
sem eru enn strangari en Kóraninn
gerir ráö fyrir, af því aö sum fyrirmælin
eru teygjanleg: Af því aö hún haföi
tekiö sér elskhuga úr almúgastétt, var
hin unga prinsessa Misha líflátin á
markaðstorginu í Jidda, í augsýn
elskhuga síns. Hún var skotin, en hann
hálshöggvinn á eftir. Þessi gömlu lög,
frá tímum kalífanna, sem alltaf höföu
bööulinn viö hliö sér, eru einskonar
tákn þeirra 600 milljóna Múhamedstrú-
armanna í N-Afríku og allt til Indonesíu,
sem þrá sjálfstæöi, sem gerir þeim
fært að berjast gegn vestrænum áhrif-
um ekki síður en áhrifum hugmynda-
fræöinga sósialismans. Þegar Lybia og
Saudi-Arabía fengu sjálfstæði inn-
leiddu þau strax þessi lög Kóransins.
Þar er refsað meö 80 vandarhöggum,
ef karl eöa kona táldregur maka sinn
og getur ekki afsannað þaö meö
minnst 4 vitnum. Og Kóraninn býður
einnig, aö sá, sem neytir áfengis, hljóti
40—30 vandarhögg. Til aö framfylgja
þessu banni, er sérstök lögregla starf-
andi, einskonar trúmáladeild lögregl-
unnar. Jafnvel það að heimta vexti, er
bannað samkvæmt Kóraninum. Hvern-
ig bankinn, sem Khomeini ætlar aö
setja á stofn í Luxemburg, á að starfa,
veit Allah einn.
Manndráp, svo framarlega sem ekki
er um morð á^ embættismanni aö
ræöa, má, samkvæmt Kóraninum,
bæta fyrir eöa semja um, eins og um
einkamálefni væri aö ræöa. Það er í
Kóraninum eins og í Gamla Testa-
mentinu: „Líf fyrir líf, auga fyrir auga og
tönn fyrir tönn..." (5. kafli, vers 45).
Undir eftirliti eöa meö vitund dómara
getur náinn ættingi hins myrta drepið
moröingjann á sama hátt og hann
haföi fyrirkomið fórnarlambi sínu.
Einnig getur ættinginn sætzt á vígs-
bætur. Samkvæmt Kóraninum eru þaö
100 kameldýr, sem gjalda á. Konur eru
aöeins metnar á hálfviröi: 50 kameldýr
nægja fyrir þær.
Þýö. Jón K. Magnússon.