Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1979, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1979, Síða 11
Kristín og Ragnar höföu samt búiö allan sinn búskap í Reykjavík að undanskildum einum vetri, sem þau bjuggu í Mývatnssveit og kenndu þar bæöi. Þegar hin skyndilega ákvöröun var tekin um búferlaflutninga noröur, var Kristín gjaldkeri hjá Flugmálastjóra og varö aö segja lausu góöu starfi. Ragnar vann þá eingöngu viö aug- lýsingateikningar hjá Auglýsinga- þjónustunni og haföi í huga aö hasla sér völl á því sviði fyrir norðan. Freyja litla, dóttir þeirra var þá þriggja ára og þau fengu í fyrstu inni hjá skólasystur Kristínar „úti í þorpi“ eins og sagt er á Akureyri og merkir Glerárþorpiö. Þar var vistin vís í 10 mánuöi og á þeim tíma keyptu þau risíbúö í 53 ára gömlu húsi viö Norðurgötu. Þar er viðbyggt hús, sem áöur var fjós og hlaöa og er gegnt úr risíbúöinni inná hlööuloftiö. Allt er það óinnréttað eins og er, en Ragnar hefur í hyggju aö bæta úr því og koma sér upp teiknistofu þarna á hlööuloftinu. Ekki haföi Ragnar vissu fyrir nein- um verkefnum þar nyröra og má því segja, aö flutningarnir hafi í senn byggst á bjartsýni og trú á Akureyr- ingum. Hann haföi þó meö sér verkefni að sunnan og haföi nóg aö gera viö þau fram aö áramótum. Á Akureyri eru annars tvær teiknistofur og síður en svo aö Ragnar hafi komiö þar aö ónumdu landi aö þessu leyti. Hann telur að fyrirtæki í bænum séu aö gera sér Ijósa nauð- syn þess aö láta vinna fyrir sig auglýsingar, — og tekur þeim verk- efnum sem bjóöast. Þau koma raun- ar víöar aö, til dæmis frá Dalvík og jafnvel allar götur frá Noröfiröi. Þar til hlöðuloftið veröur klárt, hefur Ragnar bráöabirgöahúsnæöi á leigú og límir fyrir gluggana til þess að útsýniö trufli hann ekki. Og þegar ekki gefast auglýsingaverkefni eöa aðrar teikningar, vinnur hann viö málverk. Síöan hann flutti norður hefur hann haldiö sýningar á Akra- nesi, Sauöárkróki og meö öörum á Húsavík. Árangurinn af því varö ágætur nema helzt á Króknum. Fyrir tilstuölan nokkurra áhuga- manna hefur oröiö mikið líf og fjör í myndlistariðkun og sýningum á Ak- ureyri. Ragnar. Lár er í hópi 16 myndlistarmanna þar í bæ sem stofnuöu félagiö Myndhópinn eftir áramót í vetur leiö, en undirbúningur hófst meö samsýningu hópsins í Iðnskólanum um haustiö. Aðspurður um samstööu myndlistarmanna á Akureyri, sagöi Ragnar aö hún væri lítil eins og annarsstaðar, en samt aö lagast. Framar öllu ööru er þaö starfsemi Háhóls, sem skapaö hefur grundvöll fyrir almennan myndlistar- áhuga, sem nú er fyrir hendi í ríkum mæli á Akureyri. Auk þess er rekinn Myndlistarskóli Akureyrar og í hon- um voru á annað hundrað nemendur síðastliöinn vetur, og Ragnar kenndi þar módelteikningu. Þaö er eitt og annaö framundan, nú þegar vetur fer í hönd. Til dæmis var Ragnar ráðinn til að vinna leik- mynd og búninga í Galdrakarlinn í Oz, sem varö fyrsta verkefni Leik- félags Akureyrar í haust. Einu sinni áöur hefur Ragnar tekizt á hendur samskonar verkefni; þá fyrir ung- mennafélagiö í Mosfellssveit. Raunar vanri hann öll auglýsingaspjöld fyrir Leikfélag Akureyrar á síöasta vetri og sýndi í leikhúsinu — vatnslita- myndir úr Skugga-Sveini. Nú hafa Myndhópurinn og Leikfé- lagiö gert samning sín á milli um aö Myndhópurinn sjái um aö halda úti standandi sýningum í leikhúsinu og frá fjóröungssjúkrahúsinu hefur komiö ósk um aö hópurinn hafi þar uppi myndir. „Þegar á heildina er litið, kemur þetta betur út hjá mér en þaö geröi syöra", segir Ragnar. Og þegar hann er ekki aö teikna ellegar mála, leggur hann leiö sína á golf- völlinn og var áöur félagi í Golfklúbbi Ness. „Viö höfum ekki ennþá kynnst að ráöi þessari orölögðu Akureyrar- blíðu“, segir Ragnar, „voriö var einstaklega slæmt og sumariö hefur brugöist vonum okkar“. En frá Akur- eyri er skammt aö fara til fagurra staöa og Ragnar fer annaö veifiö aö berja fegurðina augum, — stundum til Mývatns, eöa þá til staöa sem eru utan viö alfaraleiöina og aldrei vannst tími til aö sjá áöur. Hann málar jöfnum höndum landslags- myndir, fólk og portret af börnum. Hann saknar einskis, segir hann, nema þá helzt myndlistarsýninga. „Og ég fer sjaldan suöur“, bætir hann viö, „þrívegis í vetur af illri nauösyn og flýtti mér eins og ég gat norður aftur. En aö sjálfsögðu sakn- ar maður góöra vina; þó er bót í máli, að þeir hafa verið iönir viö aö koma norður og þaö hefur veriö ánægjulega gestkvæmt. En hvaö er þá framundan, annað en leikmyndir fyrir leikhúsiö? Jú, þaö er einkasýning, sem Ragnar ætlar aö halda í Háhól í haust og veröur kannski afstaðin, þegar þetta kemur á þrykk. Umskiptin urðu aö því leyti meiri fyrir Kristínu, að hún skipti einnig um atvinnu — og gerðist kaupmaöur. Hún stofnsetti verzlunina Fiörildi í desember síöastliönum og hefur þar einvörðungu á boöstólum samskon- ar vörur og verzlunin Jasmín í Reykjavík, sem maöur af indverskum uppruna rekur. Þaö er dálítiö fram- andlegur Austurlandasvipur á hlut- unum þar og Kristín segir aö þaö sé töluvert sama fólkiö, sem kemur aftur og aftur. Enda þótt búöin hafi ekki gefið af sér aö ráöi nema fyrir jól og aðrar gjafahátíöir, þá hefur hún skapaö Kristínu atvinnu og staðiö undir sér. Kristín sér alveg um búðina, því Ragnar kveöst sízt af öllu vera kaupmaöur: „líður alltaf bölvan- lega, ef ég þarf aö selja eitthvaö og aðeins viðstaddur opnun sýninga fyrir kurteisissakir", segir hann. Þau hafa verið aö vinna aö endur- bótum á íbúöinni. Þegar striginn undir veggfóörinu var fjarlægður, kom í Ijós gullfallegur panell, sem ekki þurfti annað en lakka. En sumsiaöar hafa þau málað hann. Opnir skuröir utan dyra vitnuðu um hitaveitu, en til þessa hafa þau hitað upp meö rafmagni og þrátt fyrir aldurinn er íbúöin vel einangruð og hlý. Framan við húsið er einn af þessum rómuöu görðum í Akureyr- arbæ, enda er staöurinn nærri hjarta bæjarins. Og þegar Ragnar vísar kunningjum aö sunnan til vegar, þá segist hann búa 250 metra frá Sjallanum. Þá finna allir staöinn. HLJÓM- PLÖTUR ^________ 1 Mike Oldfield. / Exposed Virgin records, / Steinar h/f. Fyrir réttum sjö árum fréttu forsvarsmenn hins nýstofnaöa hljómplötufyrirtækis „Virgin records" af ungum, innhverfum hæfileika- manni sem fékkst viö aö skeyta saman segulbandsbútum með upptökum á eigin tónsmíöum. Þessi maöur var Mike Oldfield. Forsvarsmenn „Virgin records" hrifust af vandaöri tónlist hans og buðu honum afnot af hljóöupptökusal fyrirtækisins. Eftir átta mánaöa dvöl í stúdíóinu tilkynnti Mike Oldfield aö nú væri tónlist hans fullkomnuö. „Tubular bells" kom út áriö 1973, og öllum til undrunar sigldi hún hægt upp í efstu sæti breska vinsældarlistans og þar sat hún föst. Hljómplatan var einstök fyrir margra hluta sakir. Mike Oldfield leikur sjálfur á öll hljóöfæri á plötunni og virðist hann vera jafnvígur á þau öll. Tónverkið „Tubular bells“ er nýstárleg tilraun til aö lýsa sköpunarsögunni í tónum. Allt frá því aö fyrsta lífið fæöist í sjónum og þar til baráttan milli góös og ills hefst. Nú nýveriö kom út tveggja platna albúm meö Mike Oldfield sem var tekiö upp á hljómleikaferöalagi hans í Evrópu. Tón- verkiö „Tubular bells“ er þar flutt í heild sinni á miklu grófari og kraftmeiri hátt en á upprunalegu útgáfunni. Mike Oldfield hefur veriö hálfgerður huldumaöur fram að þessu. Aldrei komið fram á hljómleikum og auk þess veriö fádæma fámáll í blaöaviðtölum. Eins og hann sjálfur segir: „Hvaö ætti ég svo sem aö segja. Allt sem ég þarf aö segja, segi ég meö tónlistinni.“ En með þessari hljómleika- ferö hans í vor er einangrun hans semsagt rofin. McGuinn, Clark and Hillman. E.M.I./Fálkinn. Margir muna eflaust eftir frumkvöölum þjóölagarokksins; hljómsveitinni „Byrds" sem var auglýst upp sem svar Bandaríkj- anna viö bresku Bítlunum. Aðalmaöurinn í Byrds var gítarleikarinn Jim McGuinn sem seinna lét breyta nafni sínu í Roger McGuinn. Hann hóf feril sinn sem undirleikari hjá þjóölagatríóinu Lime- lighters fyrir ca. tuttugu árum í borginni Chicago. Áhugi hans á rokki vaknaöi, þegar fyrstu plötur Bítlanna tóku aö berast yfir Atlantshafið, og hann ákvað að stofna rokkaöa þjóölagahljómsveit. Hljómsveitin Byrds var stofnuð 1965 af þeim Roger McGuinn, Cris Hillman, Gene Clark, Mike Clark og David Crosby. Útsetn- ing þeirra á lagi Dylans „Mr Tambourine Man“ sló samstundis í gegn og komst platan í efsta sæti bandaríska vinsældalist- ans. Þegar hljómsveitin Byrds var leyst upp áriö 1973, þá hóf Roger McGuinn sóloferil sinn og náöi hann sjálfur umtalsveröum árangri á tónlistarsviöinu. Fyrir ca. tveimur árum kallaöi McGuinn á sinn fund, tvo fyrrverandi meölimi Byrds, þá Cris Hillman og Gene Clark. Þeir féllust á aö taka upp samvinnu við Roger McGuinn á nýjan leik og fyrir nokkru síðan kom fyrsta platan út meö þeim þremenningunum. Roger McGuinn er ekki eins áberandi á þessari plötu eins og hann var á gömlu Byrdsplötunum. Aöeins tvö laganna eru eftir hann og er þaö leitt því þau eru margfalt betri en hin lögin á plötunni. Mjög létt er yfir þessari plötu og kemst maöur ósjálfrátt í gott skap þegar hún er komin á fóninn. Tónlistin er í þægilegum „Westcoast stíl“ í bland viö örlítil diskóáhrif. Þokkabót./ í veruleik. Fálkinn. Seyðisfjöröur er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Bærinn er á Austfjörðum og liggur við sjó, umluktur háum fjöllum. A veturna er yfirleitt ófært vegna snjóa svo íbúar bæjarins veröa aö hafa ofan af fyrir sér meö einhverskonar tómstundaiöju. Frá þannig umhverfi komu félagarnir úr Þokkabót. Tónlistarhæfileikar þeirra fengu nógan tíma til aö þroskast í rólegheitunum í dreifbýlinu. Fyrir fimm árum gáfu þeir út sína fyrstu hljómplötu sem innihélt meöal annars lagið „Litlir kassar" sem sló hressi- lega í gegn og hljómaöl þaö margoft í óskalagaþáttum útvarpsins. Allt frá byrjun hafa félagarnir í Þokkabót sungiö á íslensku og eiga þeir sinn stóra þátt í því aö snúa við þeirri óheillavænlegu stefnu margra ís- lenskra hljómlistarmanna að syngja á ensku. Snemma í vor kom út ný hljómplata með Þokkabót sem bar nafniö „Í veruleik.“ Jafnvel þó plata þessi sé mjög góö og vönduö þá hefur hún ekki hlotið þær undirtektir sem hún ætti skilið. Aöeins tveir af upprunalegum meölimum hljómsveitar- innar, þeir Ingólfur Steinsson og Halldór Gunnarsson skipa hljómsveitina í dag. Þaö sem kom mér mest á óvart viö þessa plötu voru skemmtilegar lagasmíöar tví- menninganna. „Þaö getur hvaða fábjáni sem er samiö flókna tónlist en þaö þarf snilling til aö semja eitthvað sem er einfalt," sagöi Pete Seeger einu sinni. Halldór Gunnarsson er líklega snillingur ef skilgreining Seeger's á góöum lagasmiö stenst. Ingólfur Steinsson syngur forsöng í flest- um lögunum og er túlkun hans á textunum til fyrirmyndar. Meginuppistaöan í flestum textunum eru heimspekilegar hugleiöingar um lífið og tilveruna. Nýliðinn í Þokkabót; Lárus Grímsson leikur á hljómborð og flautur og á hann mikinn þátt í hversu pottþétt tónlistin er afplötunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.