Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1982, Qupperneq 3
SVIP-
MYND
Mick Jagger á hljómleik-
um. Hann hefur ekki
safnað holdum þrátt fyrir
38 ár og efnalega vel-
gengni, enda meiri háttar
erfiðisvinna aö syngja
fyrir tugþúsundir manna
á útihljómleikum.
Michael
Philip
Jagger
sígrænn og endingargóður
Mick Jagger er sagður geta af
einhverjum ástæðum hreykt sér
af því að hafa meiri kyntöfra til
að bera en flestir aðrir karl-
menn. — Að öðru leyti dugar
honum að kalla sig lagasmið,
leikara, söngvara, kaupsýslum-
ann eða pabba, þó að hann kjósi
helzt að leika síðastnefnda hlut-
verkið prívat.
Hvað sem sögur hafa hermt
um langt árabil um líferni Mick
Jaggers, hefur hann að minnsta
kosti hin síðari ár lifað sóma-
samlegu lífi. Hann sést oftar í
jakkafötum með bindi en í öðr-
um búningi, og hann er prúður
og háttvís í framkomu og kemur
þeim, sem ekki þekkja hann, oft
á tíðum á óvart með kunnáttu
sinni og hógværð. Hann drekkur
mjög lítið og er hættur að
reykja. Að því er hann segir
sjálfur, hefur hann aðeins snert
á fíkniefnum að „gamni sínu“,
en ekki eins og Keith Richards.
Það er að miklu leyti kaup-
sýslumanninum Mick Jagger að
þakka, að „The Rolling Stones
Records" er nú eitt af arðvæn-
legustu hljómplötuútgáfufyrir-
tækjum heims og að félagarnir í
The Rolling Stones fá nú stórfé
fyrir þá fáu hljómleika, sem þeir
halda. Hann hefur áhuga á
kvikmyndum og hefur leikið í
nokkrum myndum, meðal ann-
ars aðalhlutverkið í áströlsku
myndinni „Ned Kelly“.
Það er sagt árangur heilbrigð-
ra lifnaðarhátta og líkamsrækt-
ar, hve vel hann er á sig kominn.
Löngu áður en The Rolling Ston-
es héldu í síðustu hljómleikaför
sína, var Mick Jagger farinn að
iðka trimm af kappi og æfði sig
með því að syngja efnisskrána á
hlaupunum. Þá fylgir einnig
nuddlæknir hópnum á ferðalög-
um.
Jagger hefur verið giftur einu
sinni og býr nú með dóttur
sinni, Jade.
Það er og að þakka Mick Jagg-
er, að The Rolling Stones hafa
orðið goðsagnapersónur í lif-
anda lífi. Þeir eru sem lifandi
tákn alls þess, sem „rock and
roll“, vagg og velta, snerist um á
sínum tíma: Uppreisn, lausn úr
viðjum hefða og vana; galsa,
gaman og eilífa æsku. A seinni
árum hefur hópurinn meira
tengzt síðari hugtökunum en
hinum fyrri.
The Rolling Stones hafa tekið
þeim hamskiptum, að í stað þess
að vera ósiðsamleg olnbogabörn
þjóðfélagsins, eru þeir orðnir
burðarásar í því kerfi, sem þeir
hófu feril sinn á að vinna gegn.
En áhangendur þeirra hafa ekki
snúið við þeim baki vegna auð-
æfanna sem þeir hafa safnað.
Þeir láta sem þeir viti ekki af
þeim. í augum hinna tryggu að-
dáenda sinna táknar þessi 38
ára gamli milljónamæringur
ögrun í garð þjóðfélagsins, að
hann sé að bjóða því byrginn,
þegar hann stendur á sviðinu og
syngur gamla slagara, sem sum-
ir eru eldri en áheyrendur í
salnum. „Jagger gerir það sem
honum dettur í hug,“ sögðu þeir
jafnvel, sem sáu hann gera
nákvæmlega sömu hlutina tvö
kvöld í röð á hljómleikunum í
Gautaborg 19. og 20. júní sl.
Það voru tíu ár síðan The
Rolling Stones höfðu komið til
Skandinavíu, og það lá í loftinu,
að eitthvað mjög óvenjulegt
væri á seiði. 110 þúsund
aðgöngumiðar seldust þegar í
stað, og það var metaðsókn að
Ullevi-leikvanginum. Þessi
fjöldi er ekki í samræmi við söl-
una á plötum hópsins hin síðari
ár í Skandinavíu.
Fyrri metaðsókn að Ullevi
var, þegar Ingmar Johansson,
hnefaleikari, barðist þar 1957 og
sló andstæðing sinn niður eftir
10 sekúndur við æðisgengin
fagnaðarlæti áhorfenda.
Mick Jagger getur ófeiminn
fullyrt, að hann hafi mest að-
dráttarafl allra heimsins rokk-
ara.
Á sviðinu í Gautaborg var
hann á vissan hátt skopmynd af
sjálfum sér. Allt var svo stórt í
sniðum, að svipbrigði og hreyf-
ingar urðu að vera enn meiri og
magnaðri en ella, svo að þeir
einir fengju ekki að fylgjast með
því, hvað fram færi, sem sætu
næst sviðinu. Þar var Jagger
bæði trúður og ballettdansari.
Ekki er hægt að segja, að
hann sé karlmannlegur, en hann
er ekki kvenlegur heldur. Hann
minnir á hirðfífl á miðöldum, þó
að hann standi hásætinu nær.
í nær tvo og hálfan tíma
hleypur Mick Jagger, klifrar,
dansar og syngur, og menn geta
ekki annað en dáðst að lík-
amshreysti mannsins. Það hefur
vart hvarflað að nokkrum að-
dáendum The Rolling Stones
1965, að þeir ættu eftir að horfa
og hlusta á þá eftir svo mörg ár
ásamt tugum þúsunda á íþrótta-
leikvangi og segja: „Hann eldist
lítið.“
— svá — úr „Farmand"
3