Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1984, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1984, Blaðsíða 5
tilhneiging nú til dags aö miða öll verð- mæti við sjálfan sig. Fólk vill ekki að aðrir segi því hvernig það eigi að haga sér eða ■hvað sé eftirsóknarvert í lífinu. Þessi til- hneiging er að mörgu leyti jákvæð, hún tengist baráttu fólks fyrir auknu frelsi og mannréttindum, og virðist til komin sem eðlilegt andsvar við kúgun valdhafa og kennivalda af hvaða tagi sem er. En í þessari sjálfdæmishyggju, sem ég hef nefnt svo, felast þó vissar hættur, og sú mest að menn hrapi að þeirri ályktun að verðmæti mannlífsins séu ákvörðunar- atriði hvers og eins, að frelsið sé fólgið í því að geta ákvarðað hvað sé rétt og rangt. Þessi hugsunarháttur getur augljóslega leitt til upplausnar og sundrungar í sið- ferði, sem aftur getur leitt til árekstra og átaka sem menn vita ekki hvernig þeir eiga að setja niður. Ef það er ákvörðunar- atriði hvers og eins hvort rétt sé að halda samninga eða virða mannslíf þá getum við bersýnilega ekki treyst nokkrum manni og værum raunar í sífelldri lífshættu hvert fyrir öðru. Sjálfdæmishyggja getur auðveldiega leitt til tómhyggju, það er að segja, þeirrar afstöðu að ekkert í heiminum skipti máli. Ef menn sætta sig við þetta, hafna þeir um leið grundvallarreglu siðferðis, sem er að til séu verðmæti sem skipti máli í lífinu og þar á meðal, Iífið sjálft." SlÐBLINDA — Ertu með þessu að segja að mannin- um hafi hrakað sem siðferðisveru? „Síðari heimsstyrjöldin, og raunar ým- islegt sem hefur gerst síðan, hefur styrkt þá trú margra að mannkynið hafi ekki þroskast í siðferðilegu tilliti. Margir telja að við séum jafnvel siðlausari en nokkru sinni fyrr. En um leið og þetta er sagt, sjáum við líka að aldrei áður hefur verið jafn mikið barist á móti pyntingum og annars konar ósóma en einmitt nú á síð- ustu árum. Svo viss þróun og þroski virðist einnig hafa átt sér stað. Nei, ég er ekki að segja að við séum upp til hópa siðspillt eða siðlaus. Ég held að það sé fremur fátítt að menn breyti vísvit- andi ranglega og sýni óréttlæti af ásettu ráði; það er frekar að sjálfdæmishyggjan bjóði heim hættunni á siðblindu, að menn blindist á rétt og rangt og eiginleg verð- mæti. Stundum má í rauninni líkja þessari blindu við skákblindu. Það getur komið fyrir bestu menn að missa sjónar á rétt- lætinu, alveg eins og það getur hent stór- meistara í skák að sjá ekki fyrir einföld- ustu stöðu. Siðblindan er hins vegar lúmsk og getur fyrr en varir breyst í siðspillingu eða sið- leysi. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir þætti vanans í þessu sambandi. Mað- ur sem einu sinni fellur í freistni kann að hafa spillt sér með þessum verknaði sín- um, sem í sjálfu sér þarf ekki að vera svo alvarlegur. Og gæti leiðst út í verri verk síðar. Það er þetta sem gerir tiltölulega „ómerkileg" siðferðisbrot alvarleg, ménn kaupa sér frið, þagga niður í samvisku sinni með alls konar réttlætingum gagn- vart sjálfum sér og öðrum og ganga jafn- vel svo langt að neita því að þeir hafi nokkra samvisku." — Er það ekki hugsanlegt? Eru ekki til samviskulausir menn? „Sjálfsagt eru slíkir menn til, en þeir eru ekki „mennskir". Sá sem ekki hefur samvisku er ekki siðferðisvera. Það er tvennt til um slíka menn: annaðhvort eru þeir geðveikir, eða svo spilltir að þeir eru orðnir gjörsamlega blindir á rétt og rangt." SlÐFERÐIÐ ER EKKI BÚIÐ TlL AF MÖNNUM — Þú sagðir áðan að siðférði væri veru- leiki sem við búum við, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Og þú líktir þessum veruleika við tungumál, og sagðir að hann væri að minnsta kosti á ytra borði breyti- legur frá einu samfélagi til annars og frá einum tíma til annars. Þetta vekur ýmsar spurningar. Meðal annars: af hverju stjórnast þessar breytingar á siðferðinu? „Siðferði er félagslegt kerfi sem þróast eftir sínum eigin lögmálum og það er ákaf- lega erfitt og nánast ókleift að móta þenn- an veruleika samkvæmt einhverri áætlun. Einstakir menn geta ekki breytt siðferðinu með stjórnmálalegum áhrifum eða reglu- gerðum. Þessi margslungni veruleiki breytist ekki samkvæmt tilskipunum. Sið- ferði er ekki búið til af mönnum, það mótast í mannlegu samfélagi. Alveg eins og tungumál. Því miður er enn ekki mikið vitað um það hvernig siðferði þróast raunverulega. Það er ljóst að ýmis önnur kerfi þjóðfé- lagsins hafa áhrif á það. Breytingar á hag- kerfi eða stjórnkerfi virðast samt ekki ráða mestu. í grundvallaratriðum virðist siðferðið vera hið sama hvarvetna á jörð- inni, sömu undirstöðuverðmæti, sömu dygðir og lestir, sambærilegar meginregl- ur um rétt og rangt. Siðferðið virðist því standa í nánum tengslum við manneðlið. Það sem er ólíkt er meira á yfirborðinu. SlÐFERÐILEG VANDAMÁL — Fólk talar saman á hverjum einasta degi, Páll, það er að segja, notar tungu- málið, en það stendur ekki frammi fyrir siðferðilegum vandamálum nema nokkr- um sinnum á ævinni. Eða er það? „Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því að við stöndum frammi fyrir siðferðilegum úrlausnarefnum á hverjum einasta degi, svo fremi sem við höfum samskipti við annað fólk. Við erum siðferðisverur og leysum því oftast úr þeim umhugsunarlaust og án verulegra vandræða, alveg á sama hátt og við notum tungumálið oftast vandræðalaust og án þess að okkur vefjist tunga um tönn. Þessi almenni vandi er alltaf til staðar, en síðan geta risið mjög alvarleg siðferðileg vanda- mál, breytileg eftir aðstæðum. Þessi sér- stöku vandamál einkennast langoftast af því að það rekast á ólík grundvallarverð- mæti, að mati fólks. Og þar með ólíkar reglur um rétt og rangt. Algeng dæmi um árekstra af þessu tagi eru á milli þess sem annars vegar er talið æskilegt og gott fyrir fjöldskyldu manns og vini, og hins vegar þess sem er gott fyrir þjóðfélagið í heild. Fræg er dæmi- saga franska heimspekingsins Sartre úr seinni heimsstyrjöldinni, um strákinn sem leitaði ráða hjá honum hvort hann ætti heldur að gera, vera kyrr hjá móður sinni sjúkri og annast hana, eða fara á vígvöll- inn og berjast fyrir föðurlandið. Við getum ímyndað okkur mörg svipuð dæmi sem standa nær okkar daglegu til- veru. Hugsum okkur mann sem er að velta því fyrir sér hvort hann eigi að svíkja und- an skatti eöa ekki. Hann getur verið á slíkri heljarþröm að hann hafi ekki efni á því að borga skattinn nema setja fyrirtæki sitt á hausinn, og þar með missa lífsvið- urværi sitt og fjöldskyldunnar. Hvort á hann nú að gera, sinna skyldum sínum við fjöldskylduna eða þjóðfélagið?" — Já, hvort á hann að gera? Valið Verður Ekki Umflúið „Hann verður ósköp einfaldlega að velja annan hvorn kostinn! Engin siðfræðikenn- ing getur tekið af mönnum ómakið að taka sínar eigin ákvarðanir." — Ertu ekki með þessu að segja, að þeg- ar allt kemur til alls sé hver maður æðsti dómari í siðferðisefnum? „Alls ekki. Þó að menn komist ekki hjá því að taka ákvarðanir og velja á milli verðmæta, þá ákvarða þeir auðvitað ekki hvort ákvörðun þeirra sé rétt eða röng eða val þeirra rétt eða rangt. Hinn siðferðilegi vandi, sem við stöndum sífellt frammi fyrir, er sá að gera sér ljóst hvað sé rétt og röng ákvörðun. Þetta kann að vera erfitt á stundum, en það á ævinlega að vera unnt að komast að réttri niðurstöðu, ef tími gefst til að athuga málið. Hitt er svo annað mál að oft skjóta menn sér undan því að reyna að komast að réttri niðurstöðu og jafnvel undan því að taka ákvörðun. Það er vandi að lifa lífinu eins og manneskja og sú ábyrgð sem fylgir því að taka ákvarðanir af þessu tagi er oft meiri en menn geta borið. Og þá beita menn gjarnan ýmsum ráðum til að fela fyrir sér eigið frelsi, og gera sig þar með seka um óheilindi eða óheiðarleika gagn- vart sjálfum sér.“ Sjálfsblekking — Áttu við að menn réttlæti gerðir sín- ar með því að afsala sér ábyrgð á þeim? Kenna kannski aðstæðum eða þjóðfélaginu um? „Það er því miður algengt. Við getum tekið dæmi eins og það að svíkja undan skatti. Menn geta reynt að réttlæta skattsvik á ýmsan hátt. Þeir geta sagt að skattalöggjöfin sé óréttlát, eða fram- kvæmdin, að allir geri þetta, og það þýði ekki annað en að taka þátt í leiknum til að verða ekki undir í lífsbaráttunni. Nú er hugsanlegt, og raunar sennilegt, að það séu einhverjir slíkir ágallar á ís- lenskri skattalöggjöf eða framkvæmd hennar, sem réttlæti þetta tal. Það kann meira að segja svo að vera að meirihluuti svokallaðra „skattsvika" sé löglegur. Þetta breytir ekki því að svikin eru brot á sið- ferðisreglu. Það er það sem gerir þau að svikum. Ekki einu sinni guð almáttugur getur gert svik að saklausu athæfi." Fornt kvæði fundið Hrólfur skáld Sveinsson er áhuga- maður um fornan kveðskap. Fyrir nokkru gróf hann upp af kistu- botni norður í Hrútafirði ljóð það, sem hér birtist með hans leyfi. Það er prent- að stafrétt eftir þeirri uppskrift, sem Hrólfur fann, án samræmingar eða leið- réttinga. Glöggt er, að um það leyti, sem uppskrift þessi var gerð, hefur stafsetn- ing verið mjög óráðin og á reiki; þó ekki svo, að torveldi lestur. Kvæði þetta hef- ur Hrólfi tekizt að skýra til hlítar, enda er hann á þessu sviði manna fróðastur. Birtast skýringar hans á næstu síðu. Quaeþe um aaster samlynðra 1. Þaull meþr þocka fvllom þiostiN crvllopiNa gleNtr oc glavne trvNtv giirscraullts saman raullta. Bil gefr blauncom suæle baNcatiecqs vnð scaNca, borþa þecqs es byckia brocqgieng naelonsocqa. 2. Braat tecr breMsv gleteN bioþr hanastiells trooþv, smaRtr biznis es þat býjsna, braqialcs þiet vnð kiallca; þuit croocseilar cræikizc castVlle sercFvlla gijrög scolla gæirv gallsa meþr at hallse. 3. Cos recr siaalig siusa siaufn giallðeyres ballðre, gravþr of uex, eN greiþic gauts clæikiaduNcs pæikiel. Þoo scal dolgþuara dueliasc diiselrocqs oc frýjsa mýlð aa miþfyls paulðrv meR, aþr hlýzc af ueRa. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 3. NÖVEMBER 1984 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.