Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1984, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1984, Blaðsíða 11
Þetta er ekki uppstillingarmynd. Eftir harðan árekstur lenti þessi bfll, sem áður var, utan í skiltinu sem minnir á notkun bflbelta. Ökumaðurinn slapp lifandi, — sennilega fyrir það eitt að vera með spennt belti. Er gagn aö búbeltum? Eftir Jón B. Þorbjörnsson essi grein verð- ur með nokkuð öðru sniði en venjulega. Nú verða einhvers konar tækniundur og nýjungar lögð til hliðar en mannlegi þátturinn í tengslum við tæknina fær að vera í fyrirrúmi. — Eitthvað sem gjarnan vill gleymast innan um allt stálið og plastið, krómið og kramið sem fullorðnir eiga stundum svo auðvelt með að heillast af. Hér er þó hvorki ætlunin að fara djúpt ofan í húmanísk né uppeldisleg fræði, heldur aðeins að skoða svolítið nánar einn þeirra þátta sem eykur á öryggi mannsins í umferðinni; bílbeltin. Nú er til umræðu að skylda menn að viðlögðum fjársektum til að nota bílbelti í akstri. Það sama er að gerast í Austurríki og Þýskalandi um þessar myndir. Hugsun- in sem liggur þar að baki er að reyna að stemma stigu við alvarlegum slysum og dauðaslysum í umferðinni. Notkun bíl- belta er reyndar búið að lögleiða þar fyrir löngu, en vegna of lítils árangurs þessarar lögleiðingar á nú að herða tökin. í júlíbyrj- un munu Austurríkismenn taka upp fjár- sektir við vannotkun bílbelta í akstri og Þjóðverjar hyggja á sömu aðgerðir á hausti komanda, með fjársektum að upp- hæð 40 mörk. Þá verða þau V-Evrópulönd orðin fá sem ekki hafa tekið upp þessa aðferð til að hindra eftir megni óþarfa sóun mannslífa í umferðinni og óþarfa opinberan kostnað í formi slysatrygginga. Vegna þessarar umræðu held ég að til- valið sé að birta hér þýðingu á innleggi próf. Dr. Ing. Hermanns Appel til þessara mála, en hann er prófessor við bílaverk- fræðideild Tækniháskólans í Berlín. „Varnarræða fyrir bílbelti" nefnir hann grein sína, sem birtist nýlega í einu víð- lesnasta blaði Þýskalands. Hún er byggð upp í eins konar samræðuformi, þar sem dr. Appel tekur sex atriði til umfjöllumar sem mikið hefur verið haldið á lofti af andstæðingum bílbelta sem rök gegn þeim. VARNARRÆÐA FYRIR BÍLBELTI Það má vera að mönnum sé hagur í því að nota bílbelti. En yfirvöld hafá engan rétt á því að takmarka persónufrelsi mitt gróf- lega á þann hátt, að mér sé þvingað með lögum til þess að nota þau. Svar: Sem verkfræðingur er ég kannski ekki rétti maðurinn til þess að svara þess- ari fullyrðingu. Mér er líka ljóst, að við ákveðnum hlutum sem hægt er að færa sönnur á að séu hættulegir, eins og t.d. reykingum eða skíðaíþróttum, ríkja hvorki viðurlög né bönn. En á hinn bóginn get ég skilið að yfirvöldin setji lög sem eiga að hafa í för með sér að engum sé hættara í umferðinni heldur en óhjákvæmilegt er. Samkvæmt því sem hans Kindermann, dómari í Stuttgart og Dr. Herzog, slysa- skurðlæknir frá Gummersbach hafa látið hafa eftir sér, er talsverð hætta á alvar- legum meiðslum fólgin í notkun bílbelta eða getur a.m.k. verið það. Fyrir einhverja getur því skylda til að nota bílbelti verið það sama og dauðadómur. Svar: Báðir þessir herramenn hafa rétt fyrir sér að því leyti að bílbelti geta valdið meiðslum á fólki — og þau hafa gert það. Meira að segja á Dr. Herzog eftir að sjá stöðugt fleiri á skurðarborðinu hjá sér sem eru alvarlega slasaðir eftir bílbelti, eftir því sem notkun bílbelta eykst. Og þegar svo er komið, að allir farþegar spenna beltin, á hann aðeins eftir að hafa fólk fyrir framan sig sem hefur slasast sam- fara notkun bílbelta. En hvað segir það um hættuna af notkun bílbelta? Hvað má álykta af þeirri kenningu að fallhlífar séu hættulegar af því að það kemur tiltölulega oft fyrir að fallhlífarstökkvarar meiði sig eða slasi við höggið, sem kemur þegar fall- hlífin opnast eða slasist í lendingu; já, og hafi jafnvel látist af þeim orsökum? Áður en menn fara að nota þessar staðreyndir til þess að draga af þeim fljótfærnislegar ályktanir um það sem mælir með eða á móti fallhlífum, yrði líkast til sami fjöldi fallhlífarstökkvara að stökkva við sömu aðstæður án fallhlífar! Yfirfærum við þetta á bílbelti, þá þýðir það, að ef maður ætlar sér að geta dæmt um áhrif þeirra verður að setja á svið tvö nákvæmlega eins slysatilfelli. I öðru þeirra væri ökumaður og e.t.v. farþegar með beltin spennt, en án bílbelta í hinu. Þegar Dr. Herzog leyfir sér að fullyrða að í ákveðnu umferðarslysi hafi fólk slasast þrátt fyrir — eða jafnvel vegna notkunar bílbelta, þá þyrfti hann til samanburðar að leita að umferðarslysi með samskonar farartækjum, sama öku- hraða og árekstursaðstæðum, en farþegum án spenntra bílbelta. Og hafi verið um virkilega alvarlega slasað fólk að ræða í viðkomandi tilfelli, myndi Dr. Herzog að öllum líkindum ekki fá þessa „samanburð- arfarþega" inn á slysaskurðstofuna til sín, því látið fólk er farið með beint til krufn- ingar. Með réttu yrði hann að rannsaka nokkur hundruð álíka tvíburatilfelli, áður en hann gæti tjáð sig í samræmi við niður- stöður. Þannig aðstæður hafa komið upp þar sem betra hefði verið að vera ekki spenntur í belti. Svar: Já, þannig aðstæður eru vel hugs- anlegar, t.d. ef ekið er aftur undir vörubíl (beltin hindra að maður geti beygt sig niður), þegar bíll lendir í vatni (beltin tefja fyrir því að komast út úr bíinum) og þegar bíll hrapar niður bratta fjallshlíð (án belta hefði farþegum e.t.v. tekist að henda sér áður út úr bílnum). Samanburð- arrannsóknir á umferðarslysum, sem mjög ýtarlega hefur verið unnið að, sýna hins vegar að áhrif bílbelta eru aðeins neikvæð í um 1% slysatilfella. Það þýðir með öðr- um orðum að í 99% allra tilfella hafa belt- in jákvæða eða hlutlausa verkan. Þegar eldur kemur upp í bíl hafa beltin í för með sér að lengri tíma tekur að komast út úr bílnum. Svar: Með notkun bílbelta er hins vegar minni hætta á að farþegar missi meðvit- und við árekstur eða slasist að öðru leyti svo illa, að þeir geti ekki komist hjálpar- laust út úr bílnum. Samkvæmt rannsóknum Tækniháskólans í Berlín á 443 slysatilfellum gátu 9,4% far- þega ekki losað beltin sjálfir. Af þessu sést hversu mjög fólk er hætt við notkun bíl- belta þegar um bruna eða álíka tilfelli er að ræða. Svar: í engu þessara tilfella kom upp eldur í bílnum, þótt hér hafi eingöngu ver- ið um alvarleg umferðarslys að ræða. Þar er betra að kastast út úr bíl við árekst- ur, en beltin hindra þann möguleika. Svar: Líkurnar á að banaslys verði, aukast 6 sinnum við að kastast út úr bíln- um. Heysáta er sjaldan til staðar í þannig tilfellum." Enn fremur hefur Dr. Appel þetta að segja í sambandi við bílbelti: „Með hliðsjón af þessum atriðum þarf varla að fara í grafgötur um það að ég er fylgjandi notkun bílbelta, einfaldlega af því að ég álít að bílbelti auki á öryggi mitt í umferðinni. Ef áðurnefnd atriði hafa ekki dugað til þess að sannfæra lesendur um að þeir geri rétt í því að spenna beltin, ráðlegg ég þeim að vera viðstadda árekstratilraunir (crash tests). Þar sést greinilega, að eftir því sem beltin koma meir að liði, verða þau að taka þeim mun hærri krafta á sig. Þannig orsaka beltin líkamsmeiðsl, t.d. rifbeins- brot. Það eru samt ólíkt léttvægari meiðsl heldur en þau sem verða undir sömu kringumstæðum, ef líkaminn lendir beint á stýrinu, á mælaborðinu, á styrktarbitum hliða, og þaks eða í framrúðunni. Eðlisfræðileg lögmál liggja að baki því, að farþegi sem er með spennt bílbelti get- ur ekki aðeins nýtt sér tognun beltanna til þess að draga úr höggi við árekstur, heldur einnig þá hluti yfirbyggingar bílsins sem gefa eftir við að lenda á öðrum hlut. Far- þega sem ekki er spenntur í belti nýtist hins vegar aðeins það takmarkaða svæði sem gefur eftir og umformast þegar hann sjálfur lendir á því. Stundum er þar ein- göngu um að ræða hluta af eigin líkama. Því má segja að bílbelti hafi ferns konar virkun: 1. Að leiða kraftana í þá hluta líkamans sem þola hvað mest álag, þ.e. mjaðma- grind og brjóstkassa. 2. Að komast hjá því að líkaminn verði fyrir mjög háum, svæðisbundnum kröft- um af hvössum hornum og köntum, við árekstur hans við hluti inni í bílnum. 3. Að nýta sér hindrunarlausar vegalengd- ir sem maður hefur til umráða inni í bílnum, til dæmis frá sæti að stýri, sem eins konar „hemlunarvegalengd". 4. Að nýta eftirgefanlega hluta yfirbygg- ingar bílsins sem viðbótar „hemlunar- vegalengd". Það liggur því einfaldlega í eðli hlut- anna að miklu fleira mælir með notkun bílbelta heldur en á móti þegar á heildina er litið, eðlisfræði í reynd. Mismunandi rannsóknaraðferðir undir mismunandi kringumstæðum hafa að lokum ávallt leitt til þessarar niðurstöðu. Hana skyldu menn ekki mistúlka eða nota sem rök gegn notk- un bílbelta þótt af henni leiði, að undir sérstökum kringumstæðum geti bilbeltin e.t.v. haft í för með sér meiri meiðsl heldur en ella.“ Svo mörg voru þau orð. NÝJUNGAR í Þróun bílbelta í sambandi við hin nýju ákvæði um bíl- beltaskyldu hafa þýsk yfirvöld skipað nefnd til að finna ráðstafanir til að gera bílbelti þægilegri í meðferð og notkun. Helstu tillögur nefndarinnar eru þessar: — beltislásar verði festir við sætin. Með því fæst hagstæðari lega mjaðmabelt- isins og einnig verður auðveldara að smella beltinu í lásinn, — stillanleg hæð axlarbeltisfestingar fyrir mism. hávaxnar manneskjur — minnkun aðhaldskrafts sjálfvirku belt- anna, þannig að þægilegra verði að hafa þau á sér — samskonar lásar í öllum tegundum bíla til að auðvelda notkun þeirra — beltalásar sem opnast sjálfkrafa nokkrum sekúndum eftir að slys eða óhapp hefur átt sér stað. Vitanlega verða umferðaslys ekki úr sögunni þótt allir spenni beltin — því mið- ur — og auðvitað er ekki hægt að líta á beltin sem tryggingu fyrir því að ekkert geti komið fyrir. En einfaldari og um leið áhrifameiri leið til að auka á öryggið í umferðinni er ekki til. Til dæmis telja þýsk yfirvöld, að ef allir ækju með beltin spennt þar í landi, mætti koma í veg fyrir 30—40% allra umferðarslysa, fækka al- varlegum slysum á ökumönnum um 70%, alvarlegum slysum á farþegum um 50% og fækka dauðaslysum um 30% frá því sem nú er. Hvað sem öðru líður, þá er og verður það fjarstæða að nota ekki bílbelti á þeim for- sendum, að maður telji sig vera öruggari án þeirra. Tölfræðin sýnir og segir annað, og stundum er kannski gott að taka hana trúanlega. Ef til vill skilst þetta betur með eftirfar- andi dæmi: Setjum svo, að þú takir þátt í fjárhættuspili. Þú hefðir úr tveimur núm- erum að velja til að leggja undir á, 371 og 372. Fyrirfram hefði þér verið uppgefið að níutíu og níu sinnum minni líkur væru fyrir því að vinningurinn kæmi upp á númer 371. Ef mikið væri lagt undir í þessu spili — jafnvel lífið sjálft — hvort númerið myndir þú þá velja? — jb. Áslaug Ragnars Gömul saga Hann kemur um nónbil kastar á mig skikkju lýtur að faldi mínum holum augum mænir votum augum stafandi kvöl. Er ég ætla út á veginn sígur í faldinn þunga. Bíddu láttu líða stund. Láttu líða. Um náttmál glyttir í gula móðu liðast og hefjast í dimman þokubakka síga í steinrunninn sorta í ómuna sem er kvöl þín og vald. Bíddu láttu líða. Láttu líða um stund. Um óttu af hamri dimmur þokubakki magnast og hvolfist steypir í stál storknað blóð þess afls sem er böl þitt. Bíddu láttu líða. Láttu líða og bíða. Um dagmál dimmur ótti hvílir um stund hátt yfir hamri hoppar og dansar á glampandi báru skoppar skel með blænum burt í iðandi hillingar. Faldinum lyfti létt og sveifla hátt. Doka við. Ber mig burt. Doka við. Áslaug Ragnars er blaúamaöur og rlthöfundur í Reykjavik. LESBOK MORGUNBLAÐSINS 3. NOVEMBER 1984 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.