Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Qupperneq 10
Svefnhöfgi sækir á risann Síðari hluti. Eftir Boris Khasanov. Sovézkin* veruleiki nútímans — óskynsemin, fátæktin og svínaríið — Þótt margt gangi á afturíótunum hjá risaveldinu, er útþenslustefnunni haldið áfram. Hér eru sovézkir hermenn í skógum Sansibar og enn berjast þeir í Afghanistan. Sovétborgarar í lest. „Þegar nánar er skoðað, verða menn varir við hið víðtæka sinnuleysi almennings í landinu, deyfð og afskiptaleysi um gang mála yfirleitt“ Boðskapurinn, sem hljómar hverju sinni á flokksþingi Kommúnistaflokks Ráðstjórn- arríkjanna, er fluttur á alveg sérstöku táknrænu helgimáli — það eru einungis prestarnir, sem hafa einhvern áhuga á „ Yfirgnæfandi meiri- hluti Sovétmanna hefur misst hvern snefil af persónulegu sjálfstæði einstaklingsins, bæði til orðs, æðis og hugsunar, hefur engan skilning lengur á né tilfinningu til að bera fyrir sameig- inlegum hagsmunum og kynni einfaldlega ekkert með frelsið að fara, ef það skyldi falla þeim í skaut eins og einhver guðsgjöf af himnum ofan. “ sjálfu efni textans. Þar kemur fram viss hluti af miklu kenningarbákni hálfgild- ings vísindalegs marxisma, sem er fyrir- skrifað skyldunámsefni fyrir alla þá, sem stunda framhaldsnám í Ráðstjórnarríkj- unum. Heilu hersveitirnar af prófessorum í þessu fræðabákni eru svo önnum kafnar við að telja áheyrendum sínum trú um yf- irburði sovétkerfisins á öllum sviðum: Hinn óhjákvæmilegi sigur kommunismans yfir öllum heiminum sé tryggður með óskeikulleika marxismans á sama hátt og stöðugleiki myntkerfis sé tryggður með gullfæti, það er að segja með gullforða í ríkisfjárhirzlunni. Við vitum hins vegar, að á síðustu öldum Býsanzka ríkisins tíðkaðist orðið að sýna útlendingum gullklumpa, sem voru holir að innan, og svikna gimsteina, þegar þeim var boðið að skoða alla fjársjóðina í fjár- hirzlum keisarans. ÓSKEIKUL KENNING EN Mjög Svo Hol að Innan Sé raunverulega reynt að framkvæma fjarstæðukennda hugaróra eða útópíu, þá táknar það dauða og endalok slíkra hug- sýna. Ótvíræðasta staðfestingin á rétt- mæti hinna nýju þjóðfélagslegu trúar- bragða var jafnan í augum rússneskra marxista, að þessari trú þeirra yrði svo breytt í áþreiíanlegan veruleika, en ein- mitt sú umbreyting hefur líka orðið til þess að uppræta trúna á marxismann með öllu. Fyrir nokkru bárust fréttir af hópi ungra lenínskra menntamanna, sem stofn- að höfðu neðanjarðartímarit með titlinum „Vinstribeygja" í Moskvu. Þeir höfðu lesið ritverk stofnanda Ráðstjórnarrikjanna í frumútgáfu (Við sovézka háskóla er nám það, sem fram á að fara í kenningum Len- ins, svo og fræðilegar athuganir á verkum hans, svo til eingöngu bundið við það, að stúdentar eru látnir læra utanað ýmsa bæklinga með pólitískri fræðslu), og eftir þann lestur tóku þeir að ásaka sovézk stjórnvöld um svik við leninismann. Ungmenni þessi voru vitanlega öll hand- tekin. Og þessir ungu, einlægu leninistar hlutu tvíþætta refsingu fyrir frumhlaup sitt. Enginn, sem hafði spurnir af þessum hópi ótrauðra hugsjónamanna, tók hugmyndir þeirra alvarlega. Starfsmenn sovézka saksóknaraembættisins álitu hina ákærðu hálfgeggjaða; foreldrar og nánustu vinir hinna ungu leninista reyndust hafa svip- aða skoðun á sálarástandi þessara ógæfu- manna. f augum vina, aðstandenda og einnig að áliti opinberra aðila ríkisvalds- ins var Lenin með sitt 55-binda pólitiska heildarritverk ekkert annað en sá Lenin, sem hvílir í grafhýsinu við Kremlarmúra — fagurlega farðað og smurt lík. Það var svo Krússéf, sem gerði síðustu tilraunina til að endurlífga hina einu sönnu trú almennings á gildi marxismans og leninisma: Árið 1961 var því lýst hátíð- lega yfir, að kommúnismi yrði innleiddur í Ráðstjórnarríkjunum innan næstu tuttugu ára. Þegar sú kynslóð, sem þá loks skyldi fá tækifæri til að klífa síðasta spölinn upp í dýrðlegar hæðir hinnar marglofuðu jarð- nesku sæluvistar, er núna á góðri leið meö að safnast til feðra sinna, þá stendur marxísk hugmyndafræði aftur á móti frammi fyrir nýju og einstaklega örðugu verkefni. Hvernig getur eiginlega sann- leikur og óskeikulleiki marxismans sam- rýmzt þeirri raunalegu en áþreifanlegu staðreynd, sem nú er ekki lengur unnt að fara í launkofa með — það er að segja hinum allt of augljósu efnahagslegu örkumlum þessa þjóðfélagskerfis? Kanónur Og Kúlur í Stað Kjötkatla Og Korns Sovézka hugmyndafræðin mun líka örugglega kunna einhver ráð til að útskýra málið og stappa stálinu í þegnana. Hvort hugmyndafræðingum Flokksins tekst hins vegar að kippa efnahag Ráðstjórnarríkj- anna í lag, skal þó ósagt látið. Þeir munu láta sér detta einhverjar nýjar formúlur í hug. En enginn hefur annars nokkurn minnsta áhuga á þess háttar yfirklóri, því að trúin á málstaðinn er fyrir löngu dauð. Dapurlegt útlit fátæklegra kofa, þjóð- vegur á kafi í forareðju, þar sem bíllinn sekkur eins og lekabytta, ef menn álpast út á hann, akrar alþaktir gróskumiklu ill- gresi — er ekki einmitt þetta táknmynd um farinn veg? Má ef til vill líta svo á, að einhvers konar þreytustjarfi sé kominn yf- ir risann eftir ýtrustu en árangursiausa áreynslu, og að hann safni nú í hvíldar- svefni orku til að geta tekið nýtt stökk út í ginnungagapið? Þeir, sem leiða sovézkan veruleika nú- tímans augum, sjá risavaxnar borgir, bókstaflega yfirfullar af fólki, geysistór iðjuver, afar flókið stjórnunarfyrirkomu- lag, og þar að auki sívaxandi hernaðar- anda, sem lýsir sér í mun strangari og nákvæmari herþjálfun, stofnun sífellt fleiri herdeilda og öflugri uppbyggingu hernaðarmannvirkja, og það gerist í því- líkum mæli, að Vesturlandabúi getur naumast gert sér það fyllilega í hugarlund. Samfara þessari þróun í sovézkum innan- ríkismálum, er í gangi markviss útþenslu- stefna í utanríkismálum, sem að undan- förnu hefur borið framúrskarandi góðan árangur. Þegar nánar er skoöað, verða menn samt varir við hið víðtæka sinnuleysi almenn- ings í landinu, deyfð og afskiptaleysi um gang mála yfirleitt. Raunverulega athafn- asemi og lifandi áhuga sýnir sovézkur al- menningur aðeins, þegar farið er í búðir,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.