Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Blaðsíða 13
flóttanum undan Arnarfelli sem Eyvindur á að hafa sagt að sér hafi orðið erfiðast lífið í útilegunni. Það var á einhverjum kafla, sem honum varð svo erfitt um að- drætti, að þau Halla voru að verða hung- urmorða, og telpan þá sjálfsagt enn með þeim. Þá varð það, þegar þau höfðu nær gefið upp alla von um björg, að Eyvindur náði 5 kindum en þá var enginn eldurinn til að sjóða við kjötið. Eyvindur gat étið hrátt, en líklega ekki Halla eða telpan, nema hann sagðist í þetta skipti aldrei hafa átt erfiðara með að kveikja eld en í þetta skipti og þessi frá- sögn ber vott um að hann hefur haft ein- hver ráð með að kveikja eld, og það getur þá varla annað verið en hann hafi jafnan borið á sér tinnu og stál, en erfitt hlýtur það að hafa verið honum oft að láta neist- ann lifna í snjó og frostum í köldu hreysi og hvað gat hann haft með sér sem var nógu eldfimt til þess að eldur kviknaði af neista sem í það félli. Það má hugsa sér ýmislegt, til dæmis, að Halla hafi geymt inná sér þurrt lauf en skýring á eldkveikju Eyvindar fæst sjálf- sagt aldrei, en oft hefur hann kveikt eld. í flestum hans hreysum eru hlóðir, og hann getur ekki alltaf hafa flutt með sér eld eða stolið honum á bæjum. Eyvindarflokkur Á Strandir Það segir nú ekkert af þeim Eyvindi fyrr en veturinn 1763, að vitað er um þau öll, Eyvind, Höllu, Arnes og Abraham vestur á Ströndum. Eyvindur hefur getað fregnað það, þegar hann var undir Arnarfelli, af bróður sín- um í Skipholti, að ekki hafi verið lýst eftir þeim á Alþingi sumarið 1762 og Jökulfirð- ingar hafi látið sér nægja að þau hypjuðu sig á brott og ekki lagt fyrir sýslumann kæru um þjófnað eða grun sinn um morðið á drengnum. Þegar Eyvindarflokkurinn var kominn á Strandir, þá var þar orðið þjófasafn og því einnig er getið þarna í sama mund og þeirra Eyvindar, þjófanna Halldórs Ás- grímssonar, Þorsteins skenks og Tugthús- Gvendar en trúlega hafa þjófarnir verið fleiri en ekki getið annarra en gripnir voru síðar. Þessi þjófahópur hélt sig á Dröng- um, Bjarnarfirði nyrðri, Skjaldbjarnarvík og yfirleitt á svæðinu sunnan Geirólfs- gnúps og voru þá í umdæmi Strandasýslu- manns. Líklega hafa þau Eyvindur talið ráðlegt að halda sig utan umdæmis sýslu- manns Norður-ísfirðinga. Það væri ekki að vita, hvað vakna kynni upp um atferli þeirra í Jökulfjörðunum, ef þau lentu í höndum þess sýslumanns. Erlendi Ólafssyni hafði verið vikið frá embætti um stundar sakir og meðan mál hans var í rannsókn, hafði verið settur sýslumaður Sigurður nokkur Sigurðsson, kominn úr Vestmannaeyjum, og hafi ein- hverjar kærur legið hjá Erlendi, sem hann hafi trassað að sinna, þá hefur hann ekki talið það bæta um fyrir sér að afhenda þær settum sýslumanni. Erlendur karlinn stóð í ströngu um embættisfærslu sína, og oftar en einu sinni, en náði alltaf að rétta hlut sinn, því hann var hinn mesti skyn- semdarmaður, þó skrýtinn væri eins og Grunnvíkingurinn bróðir hans. Nýir vendir sópa bezt og það varð hinn setti sýslumaður Norður-ísfirðinga sem hreinsaði til á Ströndum, og afhenti sýslu- manni Strandamanna-þjófasafnið. Trú- lega hafa þjófarnir herjað norður yfir Geirólfsgnúp um Reykjarfjörð og Furu- fjörð og þá komnir í Norður-ísafjarðar- sýslu. Hér fór því sem oft áður fyrir Ey- vindi, að honum var það hættulegast að vera í slagtogi við aðra þjófa, sem oft voru illmenni, sem fólki stafaði hætta af, og margir þjófar í einum stað ullu meiri bú- sifjum en við yrði unað og sýslumenn lögðu miklu helzt í leiðangur, ef þeir vissu von mikillar veiði. Gísli Konráðsson segir Eyvind og Abra- ham hafa verið tekna á Dröngum og svo segir einnig í Grímsstaðaannál 1763: „Þjófar tveir handteknir á Dröngum í Trékyllisvík, Eyvindur og Abraham að nafni, höfðu stolið víða um land; höfðu yfirgengið líkast stigamönnum, það var skömmu fyrir páska. “ Þetta trúi ég sé í eina skiptið, sem Ey- vindur er nafngreindur í annálum. Það tók tímann sinn að verða landsfrægur í þenn- an tíma og einstakir illræðismenn komust ekki með nafni í annála, nema þeir væru hengdir á Alþingi. í annálum er yfirleitt látið duga um þjófa, að geta þess, ef þjófa- faraldur var mikill þetta árið eða hitt. Halla var tekin í Bjarnarfirði ásamt Halldóri Ásgrímssyni, Þorsteini skenk og Tugthús-Gvendi en Arnes tekinn síðar á þessum slóðum með fylgikonu sinni ungri, Salborgu að nafni. OG enn deyr barn Halla var handtekin við hreysi sitt og þar fannst barnslík, sem líklega hefur ekki verið hægt að husla í jörð um veturinn sökum snjóa og klaka. Barnið var eignað Höllu og hefur það þá verið barnið, sem hún gekk með, þegar hún flúði á Arnar- fellsjökul um haustið. Henni hefur orðið svipul barneignin, kerlingaraumingjanum, en kannski hefur það ekki lagzt þungt á hana, ef rétt eru hermd ummæli hennar, þegar hún skildi við börn sín á Hrafnsfjarðareyri. Ekki er nú lengur getið stúlkunnar Guðrúnar í fylgd með foreldrum sínum. Eflaust hafa hreysi útilegumanna verið mörg á Ströndum, svo margir sakamenn, sem þangað leituðu öldum saman. Eyvind- ur hefur komið svo seint vestur um haust- ið, að honum hefur ekki unnist tími til áður en snjóar féllu og jörð fraus, að búa eins vel um sig og vandi hans var og ekkert hreysi hefur fundizt þarna Eyvindarlegt, en einhverju skýli hefur hann komið sér upp til að hafast við í um veturinn, og honum er því eignað óvandað og lítið hreysi í Bjarnarfirði og annað í Geirólfs- gnúp þar á syllu í klettunum, og hreysið í Bjarnarfirði er einnig undir kletti. Sýslumaður Strandamanna, sem fékk á sig alla þjófana, var Halldór Jakobsson á Felli í Kollafirði. Af sýslumannshjónunum á Felli er nokkur saga. Frúin var ekki aldæla í fé- græðgi sinni og hann sást þar lítt fyrir líka í peningamálum og var að auki drykkfelldur ribbaldi en í honum góðar taugar, sem þessari vandræðakerlingu, sem hann bjó með, tókst ekki fyllilega að eyðileggja. Sú kvöð var þung á sýslumönnum að bera kostnað af varðhaldi fanga og mun það að nokkru leyti hafa valdið því, að þeir voru ekki alltaf á harðahlaupum á eftir smáþjófum. Sýslumanni hefur sýnzt lítil gjóra á því, að geyma ágæt vinnuhjú í járnum og lætur þau ganga laus og vinna búi sínu. Þetta spurðist til amtsmanna, sem veitir Halldóri bréflega ákúrur og segir að það gangi ekki að láta þennan þjóf Eyvind, sem lifað hafi af þjófnaði, ganga lausan og heldur ekki konu hans, sem átt hafi dautt barn við hreysið þar, sem hún var tekin. En Halldór lét ekki skipazt við ávítur sýslumanns og gekk Eyvindur um sem frjáls maður á Felli, á jafnvel að hafa brugðið sér af bæ til að stela peningum frá lögréttumanninum á Mel í Hrútafirði til að kaupa Höllu lausa úr þeim varðhöldum, sem höfð voru á henni í fyrstu á Felli. Þessi saga, sem trúlega er skáldskapur, á rætur að rekja til þeirrar fégræðgi, sem Ástríður sýslumannsfrú var annáluð fyrir. Brotthlaup Frá SÝSLUMANNINUM Þau Eyvindur struku úr vistinni á Felli vorið 1764. Þá hefur Halldóri ekki verið stætt á því lengur að halda þeim hjá sér í vinnumennskunni og ekki komizt hjá að flytja þau til dóma suður. Þar gat ekkert beðið þeirra annað en brennimerking, kag- hýðing og þrældómur í járnum, annað hvort í Reykjavík eða á Brimarhólmi. Halldór var um stund settur frá embætti fyrir vanrækslu í gæzlu þjófanna og hlaut fésektir, en þau Eyvindur voru horfin og sennilega ekkert eftir þeim leitað af Hall- dóri. Sýslumaðurinn, sem settur var með- an mál Halldórs var í rannsókn, auglýsti eftir þeim Eyvindi á Alþingi 1765 og er sú lýsing nær alveg samhljóða þeirri fyrri, nema Eyvindur er orðinn mikill tóbaks- maður og bólugrafinn og Halla hafði ekki heldur fríkkað enda komin um fimmtugt og það voru ekki snyrtistofurnar á hverju leyti fyrir hana Höllu til upplyftingar á fésinu. Framhald í næstu Lesbók. Mynd: Eiríkur Smith. Eftir flóttann undan Arnarfelli voru þau án elds og hefdu líklega orðid hungurmorða, ef þau hefðu ekki rekizt á kindur. Eyvindur gat étið kjötið hrátt, en ekki Halla og telpan. Aldrei kvaðst hann síðar hafa átt eins erfitt með að kveikja eld og þá, en sagan sýnir, að hann hefur haft eitthvað til þess, sennilega tinnu og stál. JÖN FRA PALMHOLTI Jón Yngvi Svartir vindar þjóta um myrkur loftsins fara rauðar stjörnur fara stjörnur í rauðum skýjum um möl og brekkur slær leiftri frá ókunnum orðum frá heitum dýrum orðum sem aldrei voru sögð. Um blátt myrkur loftsins á veglausri nóttu fara óræðir draumar fara draumar úr óræðum söngvum yfir strandir og höf æðir gnýrinn frá ókunnu hrópi sem aldrei heyrðist. Svartir fuglar í skýjum undir örlagaskuggum fara djúpir tónar fara tónar úr grænum djúpum um friðlausa andrá bíður leitin að ókunnri perlu að mjúkri lýsandi perlu sem aldrei hefur fundist. KRISTINN MAGNÚSSON Ferðalangur Þú sérð ekki stóra fuglinn fyrir sólinni, ekki heldur litla fuglinn inní stóra fuglinum — því hún er hátt á lofti í augum þér sólin og sælan sunnan við landið þitt Hann sækir þig heim litli fuglinn að vori Arnór Egilsson Ytri Rangá Hún líður hjá lygn í þokunni, óendanleg litbrigði á eilífri hreyfingu. Hún streymir hjá hljóð í logninu, órofin kyrrstaða í stöðugri breytingu. Hún rennur hjá hvítfrissandi í rokinu, ógleymanleg mynd í huga sjáandans. Hún flæðir hjá hljóðlaus undir snjónum, ósýnileg í bylnum í ísilögðum vetrarböndum. Hversu oft hef ég hugfallinn staðið, horft og hlýtt á hennar eilífu hljómkviðu. Jón frá Pálmholti er rithöfundur I Reykjavfk. Kristinn Magnússon var prenfari, en vinnur nú viö stööumæiavörztu I Reykjavlk. Arnór Egilsson er læknir á Heiiu. LESBOK MORGUNBLAOSINS 23. FEBRÚAR 1985 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.