Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Page 16
R K 1 T E K T jr u R
í nábýli við grjót
Þannig er byggt í eyðimörkinni í Arizona
og því ekki eins innan um grjótið á ís-
landi?
Vestur í Arizona í Banda-
ríkjunum er nóg af grjóti
eins og á fslandi. Þrátt
fyrir kaktusa og annan
þyrrkingslegan lággróður kalla
menn þetta eyðimörk þar í landi og
þessi eyðimörk er sífellt að byggj-
ast. Þarna gefst stórborgarfólki
tækifæri á einskonar afturhvarfi
til náttúrunnar, enda hafa verið
byggð þar hús, sem falla hugvit-
samlega og á listrænan hátt að
þi ssari sérstöku náttúru. Hjónin
Biil og Sunny Empie þóttust hafa
himin höndum tekið, þegar þau
festu kaup á grjóthól í eyðimörk-
inni og arkitektinn Charles Fore-
man Johnson teiknaði handa þeim
hús, sem er eins og hluti af um-
hverfinu. Reynt var að hrófla ekki
við neinu með jarðraski og sum-
staðar í húsinu standa klettarnir
einfaldlega uppúr gólfinu. Stein-
steyptir veggirnir eru gerðir á
mexíkanska vísu og ekki alltaf
fullkomlega lóðréttir; virðast
ganga út að neðan. Feiknarlegir
raftar bera þakið uppi og að sjálf-
sögðu eru þeir ekki faldir með
neinskonar klæðningu, en stór
þakgluggi er á miðju hússins og
veitir hann góðri birtu í húsið, en
gluggar á útveggjum eru ekki stórir
eins og sjá má.
Því er þetta hús kynnt hér, að
víða á íslandi má fá byggingar-
staði, sem alveg eru hliðstæðir;
sprungnir hraunhólar til dæmis,
klapparhólar eða annarskonar
grjót. fslenzkir arkitektar virðast
sjaldan hafa fengið tækifæri til
þess að teikna hús inní óspillta,
grýtta náttúru, en það ætti að vera
heillandi viðfangsefni og a.m.k. í
sumum kaupstöðum og víða til
sveita eru aðstæður, sem kalla á
skapandi og frumlega húsagerð.
Það ætti ekki að vera sjálfgefið, að
hús standi á flatlendi og sé eins og
kassi. Að vísu reynir minnst á
hugmyndaflugið að hafa það þann-
ig og meiriparturinn af íslenzkri
nútíma húsagerð er einmitt þannig,
að hugmyndafluginu er annaðhvort
bannað að komast að eða það hefur
alls ekki verið til.
GS.
v-SUBíSwl QAlANT
So<ri>-
atO AM SONNT/
WHIW M XMMfltN .
MITSUBISHI CALAIMT ' 85
hlaut hina eftirsóttu viðurkenningu
„CULLNA STÝRIÐ" sem veitt er af hinu virta
vikuriti Bild Am Sonntag í Vestur-Þýskalandi.
Allar tegundir bifreiða á markaðnum í
landinu komu til álita, en dómendur,
sem eru sérfróðir á þessu sviði, úrskurðuðu
mitsubishi galant sigurvegara í
stærðarflokknum 1501-2000 cm3.
Nokkrir bílar fyrirliggjandi.
verð frá kr. 455.000.-
MITSUBISHI
MOTORS
16