Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Blaðsíða 3
H@H@[u][m][S][l][*][ð)[SH][m1® Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Jo- hannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnar- fulltr.: Gísli Sigurösson. Auglýsingar: Baldvin Jónsson. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sími 10100. Afganistan virðist ekki ætla að komast undan hrammi sovézka bjarnarins, sem leggur nú alla áherzlu á að innlima þetta fjalla- land. Þetta hefur kostað 10 þúsund sovézk mannslíf og meiripartur allra þorpa i landinu er í kaldakoli samkvæmt frásögn- um flóttamanna, en fjöldi afganskra ungmenna er sendur í margra ára „nám“ í Sovétríkjunum. Edda Þórarinsdóttir reynir að setja sig í spor Gdith Piaf án þess aö stæla hana; segist vel skilja hana, þótt hún sé ákaflega ólik þessum franska söngfugli. Samtal við Eddu eftir Kristínu Bjarnadóttur. Forsíöan Kjartan Guðjónsson, listmálari, heldur stóra sýningu á Kjarvalsstöðum, sem opnuð verður í dag. Þar er m.a. myndin á forsíðunni, sem heitir „Sjómaður" og er frá 1984. Eftir að Kjartan fór að mála myndir af þekkjanlegum fyrirbærum hef- ur hann sótt sér myndefni í líf og störf sjómanna. En á sýningunni núna kennir nýrra grasa; þar eru ný myndefni frá hans hálfu, sem sýna, að hann er enn að þróast og þreifa fyrir sér. Barnauppeldi hefur lengi þótt vandaverk og nú er talið víst að meira en fjórðungi bregði til fósturs, en sú var kenning fornmanna. Bandarísk könnun hefur leitt í ljós, að afbrota- og vandræðaungl- ingar virtust einkum koma frá heimilum, þar sem þrálát rifrildi, skortur á ástúð og slakur agi ríktu. GRÍMUR THOMSEN Ölteiti Þið, sem státnir staupum hringið og stærsta metið gleði þá, er þið kátir og kenndir syngið, kossa ei þekkið munngát á. Þið hafið í lundi ei setið svölum svanna hjá um aftanstund, og við nið af næturgölum náttlangt hjalað frítt við sprund. Mig þú hefur menglöð armi mjúkum stutt, er var eg tæpt, og einatt þér á björtum barmi böl og raunir mínar svæft. Á vara þinna bergði eg brunni, burt hef eg margar sorgir kysst, eg lífsins dögg þér drakk af munni en drakk þó aldrei mína lyst. Þegar kraftar líkams linna, lífs er úti brýnan stinn, vörum dreypa í vara þinna vil eg bikar enn eitt sinn. Grímur Thomsen, 1820—1896, fæddur á Bessastöðum og bjó þar einnig slðari hluta ævinnar, eftir að hann sagöi skilið við utanrlkisþjónustu Dana. Gagnstætt þvl sem oftast á sér staö um skáld orti Grlmur meginhluta Ijóða sinna eftir að hann varð sextugur. að er ókyrrð í íslensku þjóðfélagi og ekki má mikið út af bregða svo illa fari. Vaxandi óánægja er vegna launa- kjara og stöðugt er tekist á um kaup og kjör. Ekki fyrr búið að skrifa undir samninga við eina starfsstétt en önnur er farin af stað og krefst bættra kjara. Þegar þetta er ritað hafa staðið yfir samningar við sjómenn og kennarar hafa fengið sinn kjaradóm. Næsta haust má svo búast við að nóg verði um að vera í höfuðstöðvum sáttasemjara þegar samningar eru lausir við öll helstu stéttarfélögin í landinu og ekki er ólíklegt að þá komi til verkfalla rétt einu sinni, verkfalla sem munu þá valda verulegum skakkaföllum í íslensku þjóðfélagi. Það er mikil óánægja meðal þúsunda launamanna með afkomu sína. Einstaka starfstéttir búa því miður við slæm kjör, sérstaklega á það við um lág- launastéttirnar, verkamenn og iðnverka- fólk en því verður tæplega neitað að til eru þær stéttir sem greinilega komast vel af en heimta þó stöðugt meir og meir í sinn hlut. Kröfur til lífsgæðanna eru miklar nú á tímum og vill oft gleymast að þjóð eins og íslendingar sem skuldar sextíu og þrjú til sextíu og fjögur prósent af þjóðarfram- leiðslu í erlendum lánum hefur varla efni á að skipta liði í harðvítugum átökum um Þjóð í lífsgæðin. íslendingar eru fámenn þjóð, íbúafjöldi varla meiri en við nokkrar götur í stórborg á meðal milljónaþjóða. Það er samt staðreynd að launamismunur hefur farið vaxandi í okkar fámenna þjóð- félagi, bilið breikkar stöðugt á milli þeirra sem hafa góð laun og hinna sem eru á mörkum þess að komast af. Það misrétti þarf að leiðrétta sem fyrst og er það brýnt verkefni fyrir stéttarfélögin að berjast fyrir því að aftur komist á jafnvægi í þeim málum. Fjölmargir eru þeir sem vinna þetta tólf til fjórtán tíma á dag til að framfleyta sér og fjölskyldu og enn virðist langt í land að hægt sé að lifa sóma- samlegu lífi á átta stunda vinnudegi. Það er engan veginn eðlilegt i nútímaþjóðfélagi og er það eitt af fjölmörgum vandamálum sem venjulegir launþegar búa við hér á landi. Samtök áhugafólks um úrbætur í hús- næðismálum freista þess nú að rétta hag vanda þeirra fjölmörgu sem standa í húsabygg- ingum eða hafa verið að festa kaup á íbúð- arhúsnæði á liðnum árum. Þessi hópur sem áreiðanlega skiptir þúsundum hefur orðið illa úti á tímum vaxtaokurs í þjóðfé- laginu, á timum þegar lánskjaravísitalan hækkar stöðugt en kaupgjaldsvísitalan er næstum óbreytt mánuðum saman. Hér er stórmál á ferðinni. Fjöldi fólks sem staðið hefur í byggingum og kaupum á íbúðar- húsnæði rambar á barmi gjaldþrots og það kom nýlega fram í fréttum fjölmiðla að lán í vanskilum hjá lánastofnunum eru fjórtán þúsund og sjö hundruð að tölu sem er óhugnanlega há tala í ekki stærra þjóð- félagi en því íslenska. Þær eru ófagrar lýs- ingarnar á erfiðleikum fólks og ljóst er að verði ekki þegar af hálfu stjórnvalda kom- ið verulega á móts við það fólk sem nú á í mestum erfiðleikum vegna húsbygginga og íbúðarkaupa þá er voði fyrir dyrum fjölda heimila á íslandi. Nýleg ráðgjafarþjónusta á vegum Húsnæðismálastofnunar ríkisins er spor í rétta átt en ljóst er að meira þarf til af hálfu opinberra aðila og lánastofn- ana til að rétta hlut þeirra sem stofnað hafa til verulegra greiðslubyrða til að eignast þak yfir höfuðið. Hins vegar er það svo ljóst að húsnæðismál okkar íslendinga eru séríslenskt fyrirbæri. Hér á landi er það í tísku að byggja einbýlishús og rað- hús, burtséð frá því hvort nokkur þörf er á slíku. Fjölmargir leggja nótt við dag í basli við að koma sér upp slíku húsnæði og fórna öllu til, jafnvel lífi og heilsu. Þeir taka lán á lán ofan og er þar að finna að einhverju leyti skýringuna á því öngþveiti er ríkir í húsnæðismálum á íslandi. Það er þó aldrei svo að þrátt fyrir að lífsbaráttan sé oft á tíðum nokkuð erfið hér á landi þá höfum við þó ýmislegt fram yfir erlendar þjóðir til að státa okkur af. Hér ríkir sem betur fer lítið sem ekkert atvinnuleysi og það er þensla á vinnumarkaði á höfuðborg- arsvæðinu að minnsta kosti. Atvinnulíf er ef til vill ekki nógu fjölbreytt og þrátt fyrir að betur horfi nú um nýtingu fisk- stofnanna við landið en oft áður þá er það eitt brýnasta verkefnið í náinni framtíð að laða erlent fjármagn til þátttöku í íslensku atvinnulífi með stóriðju í huga og mér sýn- ist stóriðjunefnd vinna nú þegar ágætt starf að þeim málum. ÓLAFUR ORMSSON LESB0K MORGUNBLAÐSINS 11. MAl 1985 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.