Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Side 2
Stóraukin neyzla
á kalsíum
verslun með náttúruleg, heilsustyrkjandi meðöl
hefur eitt efni að undanfömu slegið öll sölumet:
Þetta efni er kalsíum. Bandaríska viðskiptablaðið
The Wall Street Journal skýrði nýlega frá því, að
umsetningin þar í landi á meðölum með ^’örefnum
Kalsíum þykir duga vel
gegn ristilkrabba til dæmis
en auknu kalsíummagni í
líkamanum fylgir hinsveg-
ar sú hætta, að nýrnastein-
ar myndist.
og alls konar steinefnasamböndum hafí á
síðasta ári alls numið um 1,7 milljörðum
bandaríkjadala (þ.e. um 68 milljörðum
króna). Af þessarí umsetningu nam salan á
kalsíumtöflfum út af fyrir sig að minnsta
kosti 200 milljónum dala (8 milljörðum ísl.
kr.) á árinu 1985 — en það táknar um 50
prósenta söluaukningu á einu ári.
Það sem fyrst og fremst olli þessari gífur-
legu aukningu í eftirspuminni á kalsíum
voru tvær læknisfræðilegar uppgötvanir.
Við Oregon-háskóla í Portland komust
þau dr. David McCarron og dr. Cynthia D.
Morris að því með athugunum sínum, að
fólk, sem þjáist af of háum blóðþrýstingi,
sækist fremur eftir að neyta kalsíumsnauðr-
ar fæðu. Læknisfræðilegar prófanir sýndu
í þessu sambandi, að með því að gefa þessu
fólki 1000 milligramma aukaskammt af
kalsíum á dag, var unnt að ná blóðþrýstingn-
um verulega niður á tiltölulega skömmum
tíma.
Hópur lækna við Sloan-Kettering-
Krabbameinsstöðina í New York, sem unnið
hefur að rannsóknum í sambandi við fyrir-
byggjandi aðgerðir gegn krabbameinssýk-
ingu undir stjóm dr. Martins Lipkins, gerði
meira að segja þá uppgötvun, að hægt
væri að nota kalsíum sem hjálparmeðal til
að koma í veg fýrir krabbameinssýkingu. Á
þetta einkum við um krabbamein í ristli.
Storaukin Kalsíumneyzla
í ristli þess fólks, sem einkum á það á
hættu að sýkjast af ristilkrabba, er að finna
sérstaka gerð af frumum, sem virka hvetj-
andi á æxlamyndun. Með því að framkvæma
rannsókn á gerð ristilfrumanna er því unnt
að slá því föstu, hvort viðkomandi sé hætt-
ara við að sýkjast af ristilkrabbameini en
ella.
Bandaríska fréttaritið Newsweek hefur
nýlega sagt frá því, að dr. Martin Lipkin
hafí framkvæmt slíkar frumurannsóknir á
tíu manna fjölskyldu, en forfeður þessa fólks
höfðu í mjög mörgum tilvikum sýkst af
krabbameini í ristli. í ljós kom, að allir
meðlimir þessarar ijölskyldu höfði í ristli
áðumefnda æxlishvetjandi gerð fruma og
töldust því í sérstökum áhættuhópi með
tilliti til sýkingar af völdum ristilkrabba-
meins. Dr. Lipkin greip þá til þess ráðs að
gefa öllum fjölskyldumeðlimunum stóra
skammta af kalsíum, og gátu Lipkin og
samstarfsmenn hans fylgzt með því, hvernig
hin hættulega gerð af ristilfrumum í þessu
fólki tók smátt og smátt að breytast í eðlileg-
ar frumur.
Kalsíunotkunin í Bandaríkjunum er þó
mest á enn einu sviði heilsuvemdar, sem
alls ekki hefur þótt vera nándar nærri eins
fréttnæmt. Bandarískir læknar þykjast
nefnilega sannfærðir um, að nægilegt kals-
íummagn í líkama manns komi í veg fýrir
alvarlega hrömun í beinagrind og bein-
þynningu eða svonefnda osteoporose.
Talið er, að rúmlega tuttugu milljónir
manna í Bandaríkjunum þjáist af of stökkum
beinum. Beinþynning eða osteoporose er
alþekktur hrömunarsjúkdómur meðal aldur-
hnigins fólks og gerir sérstaklega oft vart
við sig hjá konum eftir tíðahvörf. Álitið er,
að um það bil 1,3 milljónir roskinna og
aldraðra bandarískra kvenna verði árlega
að þola beinbrot, sem eiga rætur sínar að
rekja til mikillar beinþynningar. Til saman-
burðar má geta þess, að talið er, að 4,2
milljónir manna í Vestur-Þýzkalandi þjáist
af þessum hrömunarsjúkdómi.
Serfræðinga Greinir Þó
Á Um Einhlítt
GildiKalsíums
„Verði tíðahvörf hjá konu, sem hefur
mikið kalsíummagn í beinum," segir Kurt
Isselbach, prófessor í læknisfræði við Har-
vard-háskóla, „em mun minni líkindi á, að
hún eigi eftir að verða fyrir beinþynningu
á efri áram."
Fjölmargir læknar í Bandaríkjunum hafa
því tekið að ráðleggja fólki að auka daglega
kalsíumneyzlu sína upp í allt að 1500
milligrömm, í stað þeirra 800 milligramma
af kalsíum, sem næringarsérfræðingar hafa
hingað til mælt opinberlega með sem hæfi-
legum dagskammti.
Það er hins vegar langt frá því, að allir
sérfræðingar innan læknastéttarinnar fagni
beinlínis þessari stórauknu neyzlu fólks á
kalsíum: „Fólk fær orðið bjargfasta trú á
hveiju undrameðalinu á fætur öðm,“ segir
næringarfræðingurinn Bonnie Liebmann
kvartandi. Læknamir Hunter Heath og
Wayne Gallaway við Mayo-sjúkrahú«ið
þykjast hafa ástæðu til að vara við of
mikilli kalsíumneyslu: „Aukið kalsíummagn
eykur hættuna á að nýmasteinar taki að
myndast."
Þá em og skiptar skoðanir á ágæti þess,
að fólk taki skyndilega að neyta sérstaklega
kalsíumauðugrar fæðu. Einmitt þær fæðu-
tegundir, sem hvað auðugastar em af kals-
íum — framar öllu mjólkurafurðir — auka
kólesterólmagnið í blóðinu, en eins og vitað
er, telst mikið kólesterólmagn í blóðinu
langmesti áhættuþátturinn í sambandi við
æðakölkun og hjartasjúkdóma.
(HALLD. VILHJ. ÞYDDI)
H L J w O M "U 1 1 L ■ ■ O T l 1 R
Mozartog
EugenJochum
ýski hljómsveitarstjórinn Eugen
Jochum er talinn í hópi merkustu
hljómsveitarstjóra á síðari hluta
þessarar aldar. Hann er næstum því jafn-
gamall öldinni, fæddur árið 1902 og tónlist-
argáfa hans kom fram í frurnbemsku því
að hann lék á orgel og slaghörpu 4 ára
gamall og svipaði í því til Mozarts sjálfs.
Hann stundaði tónlistamám í Munchen og
var orðinn hljómsveitarstjóri rúmlega tví-
tugur. Árið 1932 varð Jochum hljómsveitar-
stjóri útvarpsins í Berlfn og með hinni nýju
tækni berst túlkunarmáti hans og listsköpun
út fyrir veggi tónlistarhallarinnar. Samt er
hann ekki maður hinnar nýju tæknialdar.
Hann er mjög trúaður og næstum dul-
hyggjumaður. Það tónskáld sem hann hefír
lagt hvað mesta rækt við er Anton Bruckner
og í flutningi verka hans hefír Jochum e.t.v.
unnið sína stærstu sigra. Hann hefír tvívegis
leikið allar sinfóníur Bruckners inn á hljóm-
plötur og einnig kórverk hans. Eins og að
líkum lætur hefír Jochum stjómað flestum
frægustu hljómsveitum sem nú em við lýði
og hann hefir gert margar og góðar hljóðrit-
anir með þessum hljómsveitum. Má þar
nefna til að hann hefír leikið allar sinfóníur
Beethovens á plötur með Concertgebouw-
hljómsveitinni í Amsterdam og síðar með
Lundúnasinfóníunni — LSO. Með annarri
Lundúnahljómsveit — LPO — hljóðritaði
hann sinfóníur Brahms og 12 síðustu sin-
fóníur Haydns. Óhætt er að mæla með öllum
þessum útgáfum og eins útgáfum þeim sem
Jochum hefír gert á verkum Bachs. Sérstak-
lega er vert að geta útgáfu Jochums á Missa
solemnis (Ph. 6799001), á betri útgáfu er
varla völ í dag. Um miðja öldina varð Jochum
hljómsveitarstjóri útvarpshljómsveitarinnar
í MUnchen og gerði hana víðfræga. Nú ný-
lega gerðist hann stjómandi Bamberger
Symphoniker og nú er komin á markaðinn
hljóðritun þar sem hann leikur með henni
2 af sinfóníum Mozarts — Haffner og Prag.
Hér er beitt allri nýjustu tækni í hljóðritun-
inni og það er útgáfufélagið Eurodisc sem
gefur plötuna út. Tæknilega er platan vel
gerð og Jochum er enn samur við sig, en
e.t.v. er Bambergerhljómsveitin tæplega
jafnoki þeirra hljómsveita sem Jochum hefír
áður stjómað eða ellin er farin að segja til
sín.
A.K.
RLENDAR
B Æ K U 1 J 73
HILAIRE BELLOC:
THEPATHTOROME,
Penguin Travel Library 1985.
Að lesa sumar bækur er eins og að
elta sólina um veg sinn jafnlangan, þó
okkur jarðarbúum finnist hann breytast
helsti mikið og ótt eins og á einu ári
ellegar þá á einum degi ef við setjum
okkur í spor sjálfselskustu manna sem
era óþreytandi í því að bölva veðrinu,
eins og þeim komi það í rauninni nokkuð
við. Maður er baðaður í sífelldum ljóman-
um sem skín látlaust af hverri opnu
þesskonar velheppnaðra bóka, hverri
síðu, hverri málsgrein, hverri setningu,
hverju orði og um fram allt vali þeirra,
því meginfírra er það að ekki skipti máli
hvemig hlutimir eru sagðir, það er í
gegnum það sem bókmenntir verða til
en ekki vegna einhverra tískugreina sem
vefja sig um heiminn eins og sníkjujurt.
Og slíkar bækur vill maður ekki fyrir
nokkum mun að endi, því þá er maður
neyddur til að líta upp og sjá þessa
undarlegu sýn sem heitir upp á nýmóðins
mál: framfarasamfélag, eða þá horfa á
þessar tröllslegu afturgengnu og af-
skræmdu risaeðlur sem kallast hús og
einhveijir lærðir menn teiknuðu og hafi
þeir skömm og nagandi samvisku í þessu
lífí sem og í þeirra næsta, sem verður án
nokkurs efa í helvíti þar sem nafnfræg-
asta samkunda samanlagðrar veraldar-
sögunnar er að finna. Og þessi sársauki
sem slær þegar bókinni er lokið er vissu-
lega af viðkvæmni, jafnvel gæsku,
sprottinn. Hann heijar hvað mest á þá
THEPATH
TOROME
HIS IMMORTAL ACCOUNT OF HIS WaLK FROM
THfi MOSKLLE YALLEY Ttí THE LTERNAL CITY
sem ekki gefa par fyrir nútímann, heldur
sjá fyrir báti sínum og era þar af leið-
andi kallaðir mannhatarar eða annað
ámóta.
En slíkir menn eiga auðvelt svar við
þessari grámyglu og skepnuskap sem
ríður alls staðar húsum, og það er að
leita á vit annarra bóka.
Og hann er lúsheppinn ef hann eftir
lestur bókar á borð við The Path to
Rome, kemur höndum yfír aðra eins
snilldarlega stílaða og jafnskemmtilega
strax á eftir.
GUÐBRANDUR SIGLAUGS-
SON tók saman