Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Síða 6
Rússneski myndhöggvar- inn Neizvestny, sem er flóttamaður frá föður- landi sínu, hefur mótað hugmynd um risaskúlp- túr: Tré lífsins, sem yrði meira en 100 metra hátt. Síðari hluti greinar BRAGA ÁSGEIRS- SONAR um NEIZVESTNY. Ernst Neizvestny er fæddur í iðnaðarborginni Sverdvolsk austan megin við Úral-fjallgarðinn. í barnæsku voru erfíðir og umbrotamiklir tím- ar á þessum slóðum sem víðar, því að Stalín boðaði algjöra einstefnu í menningu og listum. Vorið 1934 voru þau Osip og Nadesja Mandelstam send til asíska hluta Sovétríkj- anna samkvæmt skipun Stalíns. Heilan dag sátu þau án votts né þurrs og biðu fiutnings á jámbrautarstöðinni í Sverdvolsk. Þau voru staðsett á bekk á milli tveggja strangra og brúnaþungra varða fyrir framan aðalbygginguna. Óendanlegur straumur fólks fer hjá, en enginn vogar sér að líta til fanganna hvað þá snúa sér við. Ferðinni er haldið áfram í yfirfullum lestum og feijum en enginn, hvorki ungur né gamall, horfír í augu hinna ógæfusömu fanga. Afskipaleysið særir skáldið. Á tímum Zarsins rétti fólkið föngum ölmusur en nú líta þeir ekki við þeim — slíkur er hinn yfirþyrmandi ótti við valdið og hér á mann- úðin bágt. Þetta voru tímamir, sem Neizvestny lifði æsku sína, en Sverdvolsk hafði þó sínar innri hliðar. Að baki þeirra ólst hann upp og hlaut góða og uppörvandi æsku á miðjum tíma skefjalausra ofsókna. NEIZVESTNY - HlNN ÓÞEKKTI Fyrir byltinguna nefndist Sverdvolsk, Ektarienburg, í höfuðið á Katrínu keisara- ynju annarri og hér voru reist landamæra- virki. En borgin fékk einstætt hlutverk sem frelsistákn. Á tímum Zarsins varð hún að endastöð fyrir útlaga, pólitíska og glæpa- menn, sem höfðu tekið út refsingu sína, og yfírvöldin vildu ekki fá aftur til Moskvu. Hingað vom þau flutt í byltingunni, Nikulás II og fjölskylda hans og síðan myrt. En hér þróaðist meiri frelsislöngun en víða annars staðar ásamt þijósku við valdið og miðstýringuna og hér felst vafalítið skýr- ing á einarðlegri, skeleggri baráttu Neiz- vestny við valdið. í hinni gömlu Ektarienborg vom þeir margir, sem ekki kærðu sig um að fyrri nöfn þeirra og ferill væri afhjúpaður og þeir kynntu sig gjaman sem hinn óþekkta — á rússnezku, Neizvestny. Það er m.a. ein skýringin, sem Emst Neizvestny gefur á sínu undarlega nafni. Faðir hans og tveir bræður skipuðu sér í raðir hvítliða í borgarstyijöldinni, og það var ástæðan til þess, að Neizvestny átti um margt erfítt uppdráttar í uppvextinum. Og það hindraði föður hans í að ljúka læknis- fræðiprófí f Leningrad. Faðirinn var íhaldssamur að upplagi, en umburðarlyndur, með áhuga allt frá sögu og stjómmálum til tækni og íþrótta. Hann var vel byggður, — dansmeistari, Úralmeistari í listhlaupi á skautum, Úral- og Síberíumeistari í billjard og veikur fyrir fjárhættuspilum. Móðirin var aftur á móti fijálslyndur lýð- ræðissinni, vestur-evrópskur bóheim. Hún var niðursokkinn í trúarbrögð og heimspeki og guðspeki, af Madame Blavatsky og Annie Besant, svo og Rudolf Steiner kenningum hans í mannfræði og tíbetskri dulspeki. Hún var rússneskur gyðingur af frönskum ætt- um, svo sem skímamafnið er til vitnis um, Bella Dejour. Neizvestny tók fljótt við sér í lærdómnum og las Don Kíkóti, á meðan jafnaldrar hans vom að bisa við að læra til stafs. Bamfóstra hans, sem seinna átti að verða á vegi hans fyrir ótrúlega tilviljun, las upp fyrir hann úr myndskreyttum bamabókum. Drengurinn fylgdist með hinum þrykktu orðum og skildi þau í gegnum myndlýsing- una. Hann notaði sömu aðferðina, er hann kom svo til Ameríku og þurfti að læra ensku. Hann rannsakaði myndasögur og fékk samsvömn í orðum og myndum. Þetta nefnist skynrænt innsæi á mynd og mál og er mikilsverður eiginleiki. Hins vegar van- rækti hann að læra skrift og reikning og gerði það aldrei vel. Móðirin nam lífefnafræði í æsku við há- skólann í Leningrad. Hún kenndi við erfða- fræðiskóla, sem Stalín bannfærði, og hún missti titil sinn. Hélt þó áfram tilraunum sínum með dýr í heimahúsum, dulbúnum sem dýragarður Emsts litla, hér vom mar- svín, kanínur og fuglar. Drengurinn tók þátt í tilraununum með miklum áhuga, — og þetta var hans fyrsta reynsla af ólöglegum rannsóknum. Móðirin gerðist rithöfundur bamabóka, sem urðu þekktar í Rússlandi og þýddar á japönsku, pólsku og þýsku. Hún skrifaði einnig ljóð og barðist fyrir náttúmvemd. Fyrir 20 ámm gaf hún út bók, þar sem hún lætur dýrin og plöntumar kvarta yfír rán- yrkju mannanna og neikvæðri afstöðu til náttúmnnar. Hún hafði mikið samband við Ijóðskáldið Zaplotsky, samtíðarmanni Mand- elstam og Akhmatova, sem margur áleit meira skáld en Pastemak, — sá lenti í fangelsi, en var endurreistur. Meðan hann Teikning&r eftir Neizveatny af hlutmn úr Tré lífaina. var í fangelsinu smyglaði hann ljóðum sínum í smáskrift til móður Neizvestny. Þetta vom hættulegir hlutir til geymslu, svo að móðirin notaði Neizvestny sem minnisbanka. Hann lærði þau öll utanað til að þau varðveittust. Þegar svo Zapolotsky var loks látinn laus, hitti hann Neizvestny, sem þá var um þrítugt. Neizvestny las upp ljóð hans, mörgum þeirra hafði skáldið gleymt — vann þau svo upp aftur og gaf út íbók. Frelsið má rækta á margan hátt í Sovét, svo sem hér kemur fram, og í ljósi þessa má skilja þá frelsisþrá, sem Neizvestny var í blóð borin og í sinnið ofin. Að sjálfsögðu er þetta mikilvægur bak- gmnnur listar hans og listmats. INNRA EÐLIHLUTANNA Neizvestny byijaði snemma að teikna, mála og hnoða í leir, en að öðm leyti hafði hann svipuð áhugamál og jafnaldrar hans. En hann fór öðmvísi að í listnáminu, því að á meðan félagar hans teiknuðu og máluðu landslag og fólk, teiknaði hann beinagrind- ur, dauða og hendur — hann hafði meiri áhuga á innri eðli hlutanna en yfírborðinu. Á ámnum 1943—’45 barðist Neizvestny í stríðinu og særðist nokkmm sinnum. Síð- asta skiptið, sem hann særðist, var hann úrskurðaður látinn. Það var þegar herdeildin hans tók sveitaþorpið Heisendorf í Austur- ríki eftir harða skotgrafabardaga. Það var flokksfyrirliðinn Neizvestny er leiddi menn sína til sigurs og gekk einn í fararbroddi og féll. Löngu seinna uppgötvaðist það, að myndhöggvarinn Neizvestny og flokksfyrir- liðinn Neizvestny vom einn og sami maður- inn, og það varð til þess, að skáldið Andrej Voznesenskij skrifaði þijátíu ámm seinna ljóðabálkinn um lautinantinn Neizvestny, sem ræðst aleinn til atlögu. Ljóðið og orðan sem fylgdi vöktu mikla athygli. Neizvestny segir söguna þannig; Eg lá á meðal margra fallinna, er sjúkraliðar tóku eftir því, að ég var ekki alveg dauður. Þeir fluttu mig til herdeildar sjúkrahússins án þess að vita, að ég hafði þegar verið tilkynnt- ur fallinn. Atburðimir vom allir svo ótrúlegir, að Neizvestny hefur ógjarnan viljað segja frá þeim, en löngu seinna fékk hann í hendumar bréf frá sjúkraskýlinu, sem móðir hans hafði varðveitt. Það segir frá eftirfarandi; Konan, sem þvoði hinn helsærða flokksfyrirliða á hersjúkrahúsinu, þekkti aftur ákveðna fæðingarbletti á líkama hans. Af öllum þeim milljónum sovézkra kvenna hafði hún ein- mitt verið bamfóstra hans í Sverdvolsk. Hún staðfesti hver hann væri og annaðist hann sérstaklega. Neizvestny var allur í gipsumbúðum og sársaukinn var óbærilegur í öllum skrokkn- um. Læknamir bönnuðu þó öll sársauka- stillandi lyf, en bamfóstran fyrrverandi út- vegaði þau á laun. Einn morguninn hvarf honum allur sárs- auki og hann fann mikinn frið og hamingju færast yfír sig. En um leið gat hann ekki opnað augun, gat ekki sagt orð, og ekki hreift lim. En heyrði allt. Læknamir vom við rúm mitt og úrskurðuðu mig dauðan — á latínu. Ég ólst upp í læknafjölskyldu og skyldi, hvað þeir vom að fara. Eg vildi vekja athygli á því að ég lifði, en gat ekkert gert. Ég var ekki hræddur. Ég var áfram rólegur ogglaður. Sjúkraliðar komu með bömr og settu mig á þær og bám mig í kælirýmið fyrir lík. Ég var allur í gipsi og það var þungt. Þeir vildu ekki bera mig alla leið og skelltu mér niður. í fallinu brotnaði gifsið og sennilega hnjask- aðist eitthvað í sundurlöskuðum hiygg mín- um. Ég hóf brátt að öskra af sársauka, og ég veit ekki hve lengi ég hélt því áfram. Til Lífsins Og Sársaukans í millitíðinni hafði bamfóstran mín fyrr- verandi fundið rúmið mitt tómt. Hún fékk að vita, að ég væri dauður og hafði verið fluttur í kæliklefann, og fór niður í líkhúsið til að kveðja mig. Og þar lá ég og æpti. Ég var borinn upp aftur til lífsins og sársaukans. En kerfínu hafði þegar tekist 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.