Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Blaðsíða 16
SVONA GERUM VIÐ
■ÍOOAWAJ
SKÍÚrsMÓT
í tilefni 100 ára afmælisins efnir Landsbanki íslands til
sögulegs skákmóts í afgreiðslusal Aðalbankans í Austurstræti 11
sunnudaginn 1. júní.
Þar mætast í 12 manna hraðmóti og keppa um 100 þúsund króna
heildarverðlaun fjórir af fremstu skákmönnum íslands á árunum 1955-1960,
þeir Friðrik Olafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason
og Ingvar Ásmundsson; fjórir af efnilegustu skákmönnum íslands í dag, þeir
Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Árnason,
Héðinn Steingrímsson og Sigurður Daði Sigfússon;
og fjórir af fremstu skákmönnum Landsbankans, þeir Hilmar Viggósson,
Jóhann Örn Sigurjónsson, Sólmundur Kristjánsson
og Vilhjáimur Þór Pálsson.
Keppendur tefla allir við alla og tímatakmörk
eru 10 mínútur á hvorn keppanda í skák. Skákstjóri er
Ólafur S. Ásgrímsson. Áhorfendur eru
velkomnir í afgreiðslusalinn meðan
húsrúm levfir. skákin hefst
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna í 100 ár
16
+