Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1986, Page 13
H jr A S * o> i L 1 1 1 tfí 1 L A IS 1 D S
N w A M S B R A U T 1 r
H J w U K R U N A R F R Æ C ) U M
STARF SEM VEITIR
INNSÝN f LÍF MANNA
EFTIRINGIBJÖRGU
MAGNÚSDÓTTUR
Námsbraut í hjúkrunarfræði var stofnuð við
Háskóla íslands haustið 1973 og voru fyrstu
nemendurnir brautskráðir vorið 1977. Þetta
er því 10. árið er Háskólinn brautskráir
hjúkrunarfræðinga og þykir tilhlýðilegt að
minnast þess með nokkrum orðum.
Námsbraut í hjúkrunarfræði er í tengslum
við læknadeild, en hefir sjálfstæði í öllum
innri málum. Námsbrautin á ekki fulltrúa í
háskólaráði, en ef fjallað er um málefni
hennar á fundum háskólaráðs, skal boða
fulltrúa hennar á fund í ráðinu.
í lögum um Háskóla íslands nr. 79/1979
segir svo um hlutverk Háskólans: „Háskóli
Islands skal vera vísindaleg rannsóknastofn-
un og vísindaleg fræðslustofnun, er veiti
nemendum sínum menntun til þess að sinna
sjálfstætt vísindalegum verkefnum og til
þess að gegna ýmsum embættum og störf-
um í þjóðfélaginu."
Námsbraut í hjúkrunarfræði annast
kennslu og rannsóknir í hjúkrunarfræði.
Inntökuskilyrði, námstilhögun
Og námsgreinar
Inntökuskilyrði inn á námsbraut í hjúkr-
unarfræði eru þau sömu og almennt í Há-
skólann, en lögð áhersla á nauðsyn þess að
nemendur hafi þekkingu á raungreinum og
staðgóða enskukunnáttu. Áætlaður náms-
tími í hjúkrunarfræði er fjögur ár, hámarks-
tími er sex ár. Námið er metið í heild á 120
einingar og gert ráð fyrir að ljúka megi 30
einingum á hveiju ári. Að baki hverrar
námseiningar skal að jafnaði vera að
minnsta kosti ein vikuleg misseriskennslu-
stund eða ein námsvika.
Bóknám fer fram í húsnæði námsbrautar-
innar á Eiríksgötu 34, en verknám í rann-
Frá Félagi hjúkrunarfræðinema við Háskóla
íslands
Oft heitt í kolunum
Istjórn Félags hjúkrunarfræðinema
sitja einn til tveir nemendur frá
hverjum árgangi. Fulltrúarnir eru
kosnir á aðalfundi á hveiju hausti.
Eitt af aðalmarkmiðum félagsins er
að beita sér fyrir hagsmunamálum
nemenda varðandi félags- og námsað-
stöðu. Nú er málum svo komið, að náms-
brautinni hefir verið tryggt húsnæði á
Eiríksgötu 34 og stendur til að bæta þar
alla aðstöðu nemenda og kennara. Útlit
er fyrir að á næstunni verði þar prýðileg
aðstaða til lestrar, hópvinnu og félags-
lífs.
Félagslíf nemenda felst einkum í
reglulegum félagsfundum þar sem rædd
eru málefni nemenda, námsbrautarinnar
og hjúkrunarstéttarinnar. Þessir fundir
eru vel sóttir og oft heitt í kolunum,
enda taka nemendur jafnan virkan þátt
í umræðum. Auk fundanna má nefna
störf ýmissa nefnda á vegum félagsins,
en þær eru t.d. bókarnefnd, kynningar-
nefnd, ritnefnd og skemmtinefnd. Tvær
þær síðastnefndu eru mjög virkar.
Skemmtinefnd sér um ýmsar skemmtan-
ir og vísindaleiðangra til sjúkrastofnana
á landsbyggðinni. Vísindaleiðangrar
þessir hafa jafnan verið fjörlegir og
bæði nemendum og starfsfólki sjúkra-
stofnananna til gagns og ánægju.
Ritnefnd vinnur að útgáfu fagtíma-
ritsins Curators. í því birtast greinar
byggðar á verkefnum nemenda auk
annars efnis er varðar hjúkrun.
Við höfum rætt hér um félagslífið út
frá félagi hjúkrunamema. Ekki er síður
mikilvægt að hafa í huga þann þátt fé-
lagslífsins, sem snýr að daglegri samveru
og samstarfi nemenda í náminu. Má í
því sambandi nefna hópvinnu, en þar er
oft lagður grunnur að tengslum nem-
enda, sem em þeim mikilvæg í námi og
að námi loknu.
Sigrún Gunnarsdóttir, formaður, Margrét I.
Hallgrímsson, Helga Bragadóttir.
Nú vinna margir fjögurra árs nemar lokaverkefni sitt með aðstoð tölvu. Fyrirhugað
er að auka þátt tölvukennslu í hjúkrunarfræðum.
Við lokapróf er veitt BS-gráða í hjúkmnar-
fræði. Að prófi loknu getur nemandi sótt
um hjúkrunarleyfi til heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins, en því fylgir réttur til
þess að kalla sig hjúkmnarfræðing og
stunda hjúkmn hér á landi.
sóknastofum og heilbrigðisstofnunum —
sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum.
Námið er byggt þannig upp, að fyrstu
tvö árin er lögð áhersla á undirstöðugreinar
hjúkrunarfræðinnar. Á fyrsta ári em kennd-
ar ólífræn og lífræn efnafræði, félagsfræði,
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28.J0NI1986 13