Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1986, Side 14
Volvóian er búina sívirkrí fjöðrun og hallar inn í beygjuna meðan að hinn hallar út úr henni.
SMRK FJÖDRUN
Síðasta áratug hafa bílahönnuðir um víða veröld
kappkostað að auka hagkvæmni í rekstri bíla.
Barátta þeirra fyrir orkusparnaði hefur birst í
mörgum myndum svo sem minnkaðri núnings-
og loftmótstöðu og í eyðslugrennri mótorum.
„En nú er önnur tíð/síðan eftir stríð“,
eins og segir í einni af limrum Þorsteins
Valdimarssonar. Olíukreppur og önnur óár-
an, sem hrelldi bíleigendur héma á árunum
áður er nú liðin tíð — a.m.k. í bili. Því bein-
ist nýsköpunarkraftur bílahönnuða í dag inn
á aðrar og kannski ekki jafn hagnýtar braut-
ir og fyrr, eins og til dæmis að auka á
þægindin.
Breska fyrirtækið Lotus Cars Ltd. hefur
á síðustu árum unnið að þróun nýs fjöðruna-
rbúnaðar sem mun, ef vonir framleiðend-
anna rætast, valda byltingu í þægindum og
aksturseiginleikum bfla. Með þessum nýja
flöðrunarbúnaði, sem ef til vill má kalla
sívirka fjöðrun (active suspension), heyra
nú venjulegar Qaðrir, gormar og demparar
fortíðinni til en í staðinn er komið tölvu-
stýrt vökvakerfi með vökvatjakki út í hvert
hjól. Þessir tjakkar, sem ýmist geta starfað
sjálfstætt eða allir saman, kalla fram áður
óþekkta fjöðrunar- og aksturseiginleika hjá
bílum. Ef til vill ber mest á aukinni mýkt
því þetta kerfi gerir hjólunum kleift, hverju
fyrir sig, að gefa eftir við stærri ójöfnur í
yfirborði vegar.
í stórum dráttum má lýsa virkni þessa
kerfís á þann hátt að skynjarar í hjólum
nema hreyfíngu þeirra og senda boð um
hana til tölvu. Hún sér síðan um að vökva-
tjakkamir dragi hjólin inn eða þrýsti þeim
út í samræmi við yfírborð vegarins. Allt
þetta ferli tekur ekki lengri tíma en svo,
að innan við þrír þúsundustu hlutar úr sek-
úndu líða frá því að skynjaramir nema
hreyfíngu hjólsins þar til að tjakkamir taka
við sér. Til þes að gefa lesendum hugmynd
um hraðvirkni þessa búnaðar þá ferðast
bfll aðeins tæpa 6 sentimetra á þeim þrem-
ur míkrósekúndum sem það tekur vökvat-
jakkana að bregðast við upplýsingum frá
hjóli, miðað við 70 km/klst. ökuhraða.
Með sívirkri íjöðrun er líka hægt að fram-
kalla óvenjuleg viðbrögð hjá ijöðrunarbún-
aði sem sum hver em í verulegri mótsögn
við það sem við eigum að venjast í aksturs-
háttum bíla. Eins og til dæmis að láta bílinn
halla inn í beygju sem tekin er á miklum
hraða með því að auka þrýsting í vökva-
tjökkum ytri hjóla í beygjunni. Eða að hafa
fjöðrunina mjúka og þægilega á grófum
vegi en aftur á móti stífa þegar ekið er
eftir hlykkjóttum vegi til þess að halda bet-
ur við í beygjum. Með sívirkri íjöðrun má
enn fremur auka á stöðugleika bíls í beygj-
um með tilliti til yfir- eða undirstýringar.
Eftir ákveðnu forriti færir tölvan sjálfkrafa
þunga bflsins á milli ytra fram- og aftur-
hjóls með því að þrýsta hjólunum mismun-
andi mikið út. Þetta gerir hún þegar
skrikunar fram- eða afturenda verður vart
í krappri beygju. Allt gerist þetta með að-
stoð skynjara sem komið er fyrir á mismun-
andi stöðum í bílnum og hugvitssamlega
forritaðri tölvu — og svo náttúrulega fljót-
virkum útfærslubúnaði.
Nokkur ár eru síðan að þróun sívirks
fjöðrunarkerfís hófst hjá Lotus Cars Ltd.
Fyrst var því komið fyrir í kappakstursbíl
en þótti þá helst til seinvirkt og orkufrekt.
20 hestöfl fóru í það eitt að knýja vökvabún-
aðinn. Það er því fyrst núna á seinni tímum
sem tölvur eru orðnar nógu fljótvirkar til
þess að ráða við þetta verkefni og einnig
hefur tekist að minnka verulega „orku-
neyslu" vökvabúnaðarins. Þannig tekur
hann núna aðeins 6 hestöfl til sín við há-
marksafköst, eða álíka mikið og vökvastýr-
isdæla þarf á að halda undir fullu álagi.
Nálægt því hálf tylft bílaframleiðenda
hefur hafíð tilraunir með sívirka fjöðrun á
bílum sínum. Areiðanlega munu samt nokk-
ur ár líða þar til að þessi búnaður kemst í
fjökiaframleiðslu og verður þá vitanlega
settur fyrst í fínni tegundir. Volvo er sá
bílaframleiðandi sem hvað lengst er kominn
í sambandi við þróun og tilraunir með sívirk-
an fjöðrunarbúnað. En General Motors og
fleiri bandarískir bílaframleiðendur fylgja
fast á eftir.
Fyrir okkur íslendinga, sem ferðumst svo
mikið á órannsakanlegum og holóttum veg-
um landsins, ætti tilkoma þessa nýja fjöðr-
unarbúnaðar að vera sérstakt ánægjuefni.
Kannski að yfirstjórn vegamála falli frá öll-
um frekari áætlunum um lagningu bundins
slitlags á holóttan hringveginn en beiti sér
í stað þess fyrir niðurgreiðslum á bflum
búnum sívirkri fjöðrun til almennings?
-jb.
Vökvatankurínn erstaðsettur undir vél-
arhlifinni. Á myndinni sjást einnig
háþrýstivökvaleiðslur sem liggja í vökva-
tjakk sem kemur í stað MacPherson-
fjöðrunarí vinstra framhjóli. A neðrí
myndinnimá sjá stjómborð tölvunnar
þaðan sem hægt erað handstjóma fjöðr-
uninni eða slá inn ný forrít fyrir hana.
HJALPARMOTOR
AFTARI SKYNJARIFYRIR
VÖKVATJAKKUR LÓÐRÉTTA HRÖÐUN
VOKVALEIÐSLA
STÖÐUMERKI
STJÓRNBORÐ
Teikningaf uppbyggingu vökvakerfisins fyrir sívirka fjöðrun í
Volvo. Innfellda myndin sýnirþær hreyfingar bílsins sem skynj-
aramirgeta numið.
LÓÐRÉTT HREYFING
í STAMP í 4T
bt FÆRSLA HJOLS
SNUNINGURN
14