Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1987, Blaðsíða 10
t
t
\
►
►
í
Uppfinningamaðurinn Daimler í aftursætinu og sonur hans, Paul, við stýrið á
fyrsta Daimlernum, árgerð 1886. Byltingin var hafin fyrir alvöru.
Þrír brautryðjendur: Gottlieb Daimler
(með skalla), Wilhelm Maybach (með
hökutopp) og Karl Benz.
kokk, Wilhelm Maybach, sem varð yfir-
hönnuður hjá Deutz en Daimler stjórnandi
tæknideildar. Saman unnu þeir að þróun
og sölu Ottómótorsins, en framleiðsla hans
miðaðist einungis við verksmiðjur og iðnað
þar sem stærð og þyngd skipti ekki máli.
Þeim Otto og Daimler kom ekki allt of vel
saman, í augum Ottos var Daimler sérstak-
ur þverhaus, og 1882 hættir hann hjá Deutz
og flytur til Bad Cannstatt hjá Stuttgart í
Suður-Þýskalandi. Daimler hafði auðgast
vel í starfí sínu hjá Deutz og skömmu síðar
fær hann Maybach aftur til liðs við sig. Nú
er megináherslan lögð á smækkun Ottómót-
orsins til þess að unnt sé að nota hann í
sem fjölþættustum tilgangi, bæði í hvers
konar öku- og flutningatækjum og í smáiðn-
aði. Tilraunir ganga vel og 1883 fær Daimler
fyrstu tvö einkaleyfin á hugmyndum um
hraðgenga bensínvéi. Það sem hann hefur
í huga er vél sem á að geta snúist allt að
800 snúningum á mínútu, en fram að þeim
tíma var hámarkssnúningshraði véla innan
við 200 sn./mín. Með tilkomu blöndungsins,
sem var uppfínning Maybachs, og glóðar-
rörskveikjunnar, en þar gengu glóandi
rörendar inn í brunahólfið til að kveikja í
blöndunni, voru stærstu sporin stigin í þróun
þessarar léttbyggðu vélar. Smækkaðri út-
gáfu hennar, 0,5 hesthöfl úr 264 rúmsenti-
metra brunarými, var í tilraunaskyni komið
fyrir á reiðhjóli úr tré eins og þau gerðust
í þá daga, og þar með var fyrsta vélhjólið
orðið að veruleika. En einkaleyfi Ottos á
fjórgengisvélinni hindraði frekari þróun og
tilraunir Daimlers með hana og opinber
notkun og sala vélarinnar kom ennþá ekki
til greina.
FYRSTA HUGMYNDIN: AÐ
VÉLVÆÐA REIÐHJÓL
Þessu var nokkuð öðruvísi háttað með
Karl Benz. Benz var 10 árum yngri en
Daimler og 27 ára gamall setur hann á stofn
sitt eigið vélaverkstæði í Mannheim sem
hann ijármagnar með heimanmundí konu
sinnar, Bertu. Benz átti reiðhjól sem hann
notaði gjaman til hjólaferða um sveitina.
I Reiðhjólið var úr tré eins og önnur og þar
Bflar
100 ár
Forsaga bílsins
Asíðasta ári var þess minnst að 100 ár voru
liðin frá því að Þjóðverjarnir Daimler og Benz
hófu að framleiða bíla. En uppfinning bílsins
kom ekki eins og opinberun á einum degi.
Töluverður aðdragandi og þróun leiddu til
Þegar málið var komið á
þann rekspöl, að þeir
Daimler og Benz gátu
farið að framleiða bíla
sína í smáum stíl, var
þróun í þá átt búin að
eiga sér stað allt frá árinu
1807.
þessa tímamótaviðburðar 1 samgongum og
er ekki hægt að minnast fyrstu bílanna án
þess að fara nokkrum orðum um aðdragand-
ann.
Það þarf að leita aftur til ársins 1807 til
að finna fyrstu hugmyndir um vél fyrir vél-
knúið ökutæki í líkingu við það sem við
þekkjum í dag sem bíl. Þá fékk Svisslending-
urinn Isaac de Rivaz einkaleyfí á hugmynd
að „brunahreyfli fyrir götu-farartæki“.
ElNKALEYFI FYRIR
FJÓRGENGISVÉL
Síðan ganga vélar í gegnum hin ýmsu
stig þróunar, en það sem næst gerðist mark-
verðast í þessum efnum er að Nikolaus
August Otto hannar og fær einkaleyfí fyrir
sína frægu fjórgengisvél. Hún var fyrsta
vélin til þess að nýta sér kosti samþjöppun-
ar eldsneytisblandaðs lofts fyrir brunann
og stórauka þar með nýtni eldsneytisins.
Þótt fyrstu Ottómótoramir, sem skiluðu 20
hestöflum, væru allt að 6,8 tonn að þyngd
var uppfínning fjórgengisvélarinnar for-
senda þess að mögulegt væri að smíða léttar,
og á þeirra tíma mælikvarða, kraftmiklar
vélar sem hentuðu ökutækjum.
Gasmotoren-Fabrik Deutz var á áttunda
áratug síðustu aldar leiðandi í smíði gasmót-
ora, en þeir voru hápunktur tæknikunnáttu
þeirra tíma. Annar af stofnendum þessarar
verksmiðju — sem í dag er jafnþekkt fyrir
framleiðslu díselvéla eins og smíði gasmót-
ora hér áður fyrr — var Nikolaus Otto.
Árið 1872 réð hann til sín velmenntaðan
vél- og rekstrarfræðing, Gottlieb Daimler.
Daimler hafði með sér vin sinn og hjálpar-
EFTIR JÓN B.
ÞORBJ ÖRNSSON
i
Gufuknúinn vagn Josephs Cugnots var smíðaður með það fyrir augum að draga
faUbyssur. En reynsluaksturinn, sem fram fóríParís 1769, varðekki mikil sigurför.
Teikning af fyrsta vélhjóli Daimlers.
I
i
10