Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 12
HMlffb L® o <(i Hallgrímur Helgason Ci 11 rOJ Til Islands Efst á heimsins hinsta hoga heita fjöll sem í mig toga með vegabréf um vopna-hlið. Blendnum huga blöðum fletti á blindu flugi og í mig skvetti. Edrú enginn sneri við. Við rafurljós úr reginhafi rímar vél með upphafsstafi stuðlaða við fleygan fund. Frosin liggur falin svelli mín fósturjörð á gæsluvelli. Kyndug er sú komustund. Hrímað liggur hraun í birtu — hrollur undir hvítri skyrtu — blárrí, bíður roða sól. Tendruð ljós við tjöm á nesi tifa hægt sem augu lesi: Bráðum koma blessuð jól. Þar sem rok í rassa nagar og rellu gera fræða-bragar. KoIIótt er sú ýtakind. Þar sem í daufu daga-mengi deila menn um oltið gengi. Svæfír enn sú myrka mynd. Þar sem heilög höfuðtala hífír menn í bröttum skala. Þeir segja vera sigur tap. þar sem hátt um smátt þeir smíða og smugur ættingjunum víða. Svíkur liti svell og krap. En í því innsta heimsins homa hönnuð voru rít til foma sem lesin eru á lærðum sal. Og enn er dreginn andinn sanni andlit er á hverjum manni. Margumtalað meyjaval. Glaður fmn ég undir fótum mitt fasta land á veðramótum. Fléttaður er fáni um hún. Lít ég umrædd fjöllin feginn sem fálega því taka, greyin. Skugga þeirra ber við brún. Ungur lærði ég hérna heima, í háu leiti skó að reima. í stafrófinu stóð ég þar. Er þó létt minn hug að hlera. Honum spumingin að vera eða fara, felur svar. Á ég lífi mínu að lifa, og litlu meðal fárra bifa, í landi sem að lykur þjóð? I útlöndum er annað manna og orðin fleirí á milli tanna. Um æðar rennur blandað blóð. Þar andar suður sæluvindum og sést hefur á bíómyndum í húsaskógi gráum gull. En þar í krónur deilt hef dölum og dýr mér íslendingi fölum til góða komið golsótt ull. Hnígur sól og hnettir snúast. Hnýsinn má við ýmsu búast. Nærist hver á nýjum stað. En efst á heimsins hinsta boga hangir kjöt af gömlum toga. Að svo búnu þigg ég það. Höfundurinn er myndlistarmaður og starfar sem stend- ur í New York. Myndskreytingin er einnig eftir hann. áðan, hvað sem nú kann vera orðið. En ég þykist það enn þá ekki gjört hafa, þótt ég tali um ósiðinn yfir höfuð, — miklu heldur hafi ég mælt ykkur húsgöngurum bót, þar ég sagði, að ykkur væri það ekki einum saman kennandi. En ef ég á að halda við þá trú í tilliti hvers ykkar fyrir sig og kenna í bijósti um þig eður annan flakkara fyrir óhamingju ykkar, og leggja hið minnsta gott til ykkar, verðið þið að taka á meiningum, og vera viljug- ir til að lagfæra ykkur, svo að þið fáið orðið gagnlegir samboigarar og eigið ekki hlut með þeim sem eigi vill vinna, og á því ei að fá að éta. B: Þér predikið þó; ég held þér hefðuð orð- ið besti prestur; predikið þér sem best í hreppnum yðar, en hvað ætlið þér að gera af öllum ritningargreinunum sem hljóða upp á fá tæka og góðgjörðir við þá? Ef þér rekið aumingjana frá yður verðið þér útrekinn úr himnaríki. Hrst: Ekki spyr ég þig að því, eins og ég sagði þér áðan, hvar eða hvenær ég tala sann- leikann, og þó í góðum tilgangi. En það er heldur sumt ekki svaravert, sem þú segir — og væri það ekki vegna þeirra sem nærri eru, sem ætla kynni ég yrði orðlaus fyrir þér ef ég þagnaði, og líka kynni að taka eftir ein- hveiju sem ég tala, sér til íhugunar, þá skyldi ég ekki skipta við þig mörgum orðum héðan af, — og hefi leyst hendur mínar með að segja þér sannleikann, en mér heyrist þú ekki taka mikið eftir honum — þú vitnar í guðsorð, og veist þó varla hvað þú vitnar. Er það ekki guðs orð sem ég sagði áðan: hver sem ekki vill vinna etc., eða heldur þú að þau séu hver á móti öðrum? Komdu með eina einustu grein af ritningunni, sem er eins skýlaus, og hljóðar upp á það, að hýsa og fæða nokkum iðjuleys- ingja. Bijóta þeir þá ekki á móti guðs orði, sem það gjöra? Sé annars iðjuleysinginn heil- brigður og geti fengið atvinnu — í staðinn fyrir að þeir látist lifa eftir því? Ég tala ei þar um, að mörg þau fyrirheit sem heimfærð eru upp á fátæka, og velgjörðir við þá, eiga að heimfærast upp á nauðstadda, fyrstu predik- ara Evangelii, og þeirra líka, en allt það af fyrirheitum nær til fátækra, og þeirra sem þeim gjöra vel til, meinast einungis til frómra, heilsulausra, aðstoðar- og hjálparlausra, útlif- aðra við frómt erfiði, bama og annarra þessháttar. Og þeim gjöra margir síst gott, þeim er veitt mótstaða í hreppunum, þó rétt séu til komnir, þeir em hraktir, já stundum ungbömin forlögð af sínum eigin foreldmm, þó geti stutt þau, meðan lausgangarar, skjallar- ar, lygarar, og aðrir heilbrigðir húsgangsmenn, em glaðlega hýstir og mettaðir á hveijum bæ; gangast sumir fyrir illyrðum þeirra og jafnvel heitingum, en sumir fyrir kjaftalofi af þeim, framar en fyrir nauð hinna, samvisku og skyldu — í sama máta hefur konunglegt lög- mál fyrirboðið að hýsa þessa, eður leyfa þeim um að ganga og guð býður að hlýða konungin- um. En þess meir er það gjört, beint í móti guði og manna lögum, og svo er velgjörðunum varið hjá mörgum af oss. Held ég að þeir sem viljandi bijóta þessi lög, verði miklu framar útreknir úr himnaríki, en þeir reka frá sér iðju- lausa húsgangsmenn, hvað sem þú heldur — munt þó hafa lært bamalærdóminn eða eitt- hvað í honum, eða er það ekki komið svo langt enn? B: Yður þykir það þá forsvaranlegt, að reka mig og mína líka út undir kvöld ónærða, í hríð og tvísýnum veðrum? Hrst: Það sagði ég ekki; enginn á að taka sér hefnd sjálfúr, og eins er um þetta, til þess eru yfirvöldin að skakka millum manna, ef þeim væri þá hlýtt. — Svo á hér að vera; heil- brigðum húsgangsmönnum á enginn að hylla með, hver bóndi er skyldugur að bera sig upp um þá, og hver hreppstjóri aftur fyrir sínu yfírvaldi — síðan eiga þeir allir að straffast að lögum, og það aftur og aftur hlífðarlaust, þar til þeir betra sig, á meðan sljómin gjörir ekki fyrir þeim aðra ráðstöfún. Hver unglingur á að vera að minnsta kosti um nokkur ár í sama duglegum stað til raunar, og endilega undir annarra hendi og heimilisfastur þar til hann er kominn til lögaldurs, síðan má hann ábyrgjast sig g'álfur ef hann flakkar með þeim hætti sem ég hefi áður sagt. En fyrir hús- bónda þvílíks unglings, að reyna ei að minnsta kosti bæði aga og mjúklæti við hinn sama, er óforsvaranlegt Og það að þykja vansæmd í að leggja hönd á bam til að hirta það, er dárlegt, — að gjöra skyldu sína fyrir guði og samvisku sinni, er alltíð loflegt, hvemin sem hún lítur út í annarra augum, og að forsóma hana viljandi, hversu sem því er hrósað, er alltíð skammariegt. — A meðan dró depm á ljósið í fremra loft- inu, og Bjami læddist út úr baðstofúdyrunum. Var tungisljós úti og gott veður. Og kom hann ekki aftur það kvöld. En Ámi var farinn að biynna músum þar sem hann sat. Hreppstjór- inn gekk þá inn í húsið til prestsins, og spurði hvort honum hefði misþóknast ræða sín. En því þessi svaraði: Nei, ég veit að bæði ég og aðrir gjöra margt á móti skyldunni í þessu eftii sem öðrum. — Varð hann þar um nóttina. FljótYfirferð Um moiguninn eftir var Ami snemma á fótum og hafði skrifað í blöð sín fyrir morgun- máltíð það er honum sýndist, en að henni lokinni hélt hann af stað og til næsta bæjar. Var þar félagi hans fyrir, en hafði sig strax í burtu þegar hann kom. Þar var á bænum glettinn drengur, sem tók húfu Ama og fyllti með snjó, og þótt einhverslags hetjumóður réði honum þá til að sýna á sér reiðisvip, yfir- vegaði hann svo forsjárlega efrii sín, að hann afréði að halda lengra áfram, þar enn var snemma dags, en veður gott, og vandséð hvort hann fengi gistingu með góðu. Kunnum vér nú ekki svo grannt af hans ferðum að segja, eður hvemin hann krækti hingað og þangað, annað en það að hann komst á sex dögum austur yfir Jökulsá, og á öðrum sex yfir Lagar- fljót, og stefhdi að Eiðum. Er að sjá sem hann hafi ei á þeirri leið fengið að heyra maigar uppbyggilegar ræður, og þó hann hefði nokkuð kiókótta og ekki hraða yfirferð, hafi honum fáar þrautir mætt, svo að hann hafi þurft fram að leggja karimennsku sína, nema hafi hann þurft að líta út af brúnni á Jökulsá, og veija sig svima á meðan. En með því að Lagarfljót var lagt, gat hann farið fótgangandi þar yfir án sérlegrar mannhættu. (—) Ami ljúflingur ferðast bæ frá bæ og hlerar samtöl. Deilu vinnukonu og húsmóður á bæ einum nemur Ámi en þorir ekki að skrá hjá sér, annars hlýðir hann á og skráir hjá sér samræður um §ölbreytilegustu efiii á langferð sinni, um álfatrú og trölla-, haugagröft og draugatrú, gildi riddarasagna og annarra lýgi- sagna, helstu ávirðingar hreppstjóra og fá þeir ekki vægari ádrepu en lausamennimir í köflunum hér á undan. Ami hlýðir á saman- burð á menningu fommanna og samtíðar sinnar og fer samtíð hans ekki illa út úr þeim samanburði þó „skynsamir menn hafi í atdar- háttum og kvæðum gjört mikinn mun á hreysti, mannskap og öllu athæfi fyrri manna, og þeirra sem nú eru". Sá sem þessu svarar gerir það svona: „Það er sumpart ýkjur (sem leiða) af þekkingarleysi á réttum samanburði tíðanna, sumpart inn- drukknar meiningar, en sumpart sannindi í þann máta, að ein og önnur þjóð, eftir þeim kringumstæðum sem hún kemst í, á nauð, ósiða innleiðslu og þess háttar, tapar sér og úrkynjast frá forfeðrunum. Oftast nær er það með því móti að þegar ein þjóð kemst í óreglu eða mannfæð, missir kaupfarir og kunnings- skap við aðrar þjóðir, veslast hún upp í ómennsku, einkum ef hún kemur þá ásamt undir ströng lög, sem oftast fylgja ókomnum ósiðum eftir. Hvað allt hitti á íslendinga í 15., 16. og 17. öld. En þegar innfærist útlend- ar óhófsvörur og eljunarleysi, samt tilhaldsvið- leitni og agaleysi tapast allt harðfengi og harðfengishugur fomra manna, einfaldir siðir, líkamans íþróttir, drengskapur og orðheldni, en þar á móti aukast lærdómar og þekking og ásamt maigra handa brögð til ásælni og hæglætis ofríkis. Stórbokkaskapur og fom ráns yfirgangur þverrar, en brögðótt áleitni undir réttar skyni verður almennari; harkan tapast, og að nokkru leyti sinnis og líkams stirkur, en inn leiðist áhugi til sælgætis og sjálfræðis, eins og er á okkar tíð.“ (—) Ámi liggur á hleri að vanda sínum þegar prestur og læknir raeða saman um fjölgun lækna í embættum og hvemig það megi vera að sjúkdómum virðist hafa tjiilgað að sama skapi: P: Hvað kemur til þess að nú em svo marg- ir læknar í landinu, en áður voru svo fáir? L: Það kemur til af því að kóngurinn og stjómin hefír miklu meiri umhyggju fyrir landinu en fyrrum, síðan það varð kunnugra, eins og þér sjáið að eftir öllum atvikum er ítar- legar gengið en fyrr. P: Eg held önnur sé orsökin, sú nefhilega, að sjúkdómamir hafi fjölgað af læknumnum, 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.