Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 5
„Þú kynntist Karusso heima?" — Já, hún kom í júnímánuði til að halda námskeið. Ég fór á þetta námskeið strax eftir stúdentspróf, án þess að hafa hugsað til söngnáms erlendis enn. En þegar Kar- usso hafði unnið með mér á námskeiðinu sagði hún: „Madchen, was willst Du mach- en? Willst Du Sángerin werden?" („Hvað ætlar þú að gera, stúlka? Viltu verða söng- kona?“) — og sagðist mundu taka mig, ef ég næði inntökuprófi þá strax um haustið. Þetta kom alveg flatt upp á mig, ég hafði ætlað mér að vera eitt ár heima, átti þar kærasta — en svo varð úr, að ég dreif mig út. „En þú hafðir stundað söngnám við Söng- skólann heima, og kannski sungið áður líka?“ — Það held ég nú. Ég söng í Hamrahlíð- arkórnum, og hafði sungið sópransóló frá því ég var 11 eða 12 ára. Eiginlega var grundvöllur lagður fyrir því í bamaskólan- um. Jónína, mamma hans Omars Ragnars- sonar, kenndi mér allan bamaskólann, og hún lét okkur syngja öll ljóð, sem við áttum að læra, alein fyrir framan alla. Það vom auðvitað margir, sem brotnuðu alveg, þegar að þeim kom að standa upp og syngja, en mér fannst alltaf gaman að því. Þegar ég kom í Kvennaskólann fór ég að syngja í kirkjukór Grensássóknar... en ég á þetta sennilega enn lengra að sækja, sennilega hefur þetta átt upptök sín í æsku minni. Mamma söng mjög vel og söng mikið með okkur. Við ferðuðumst mikið, og þá var sungið með okkur systmnum til að hafa okkur rólegar í bflnum. Sennilega hefur fólki fundizt ég eitthvað skrítin, því að ég man að ég söng alltaf hástöfum á róluvellin- um við Miklubraut, þegar ég var lítil. A tímabili söng ég með vinkonu minni, Berg- þóm Ingólfsdóttur. Hjalti Jón Sveinsson, stofnandi vísnavinafélagsins, var kennari okkar í Kvennó. Hann bauð okkur að starfa í félaginu, og hvatti og studdi okkur mjög. Við fómm að koma fram víðar, t.d. sungum við í kosningasjónvarpinu um nóttina, þegar Vigdís var kosin. Við komum fram með bræðmm frá Eyjum, Amóri og Gísla — Gísli Helgason spilaði á blokkflautu. Ég hef verið 14 ára, þegar ég byijaði að koma fram á þennan hátt. Við vinkonumar fómm svo í Hamrahlíðarskólann til að komast í kórinn. „Svo að við snúum aftur til Austurríkis, hvemig gekk þér, þegar hér var komið?“ — Byijunin hér var virkilega erfið, það vom ekki fáir dagar, sem ég kom heim böðuð í támm. Fyrsta hálfa árið má segja að hafi verið eilíf barátta, ég brotnaði niður minnst þrisvar í viku, og var oft komin að því að gefast upp, ætlaði þá í lógopedíu eða eitthvað annað. Þetta fór að batna, þegar ég fór að geta bjargað mér betur á þýzku, með Arnolds hjálp. Hann reyndist mér yfir- leitt ómetanlegur stúðningur, var mér faðir, móðir, vinur, sá klettur, sem ég byggði allt á.“ „Fannst þér líka erfitt að venjast um- hverfi, lifnaðarháttum, aðstæðum hér?“ — Eiginlega ekki. Ég hafði alltaf ætlað að læra eitthvað, og undir niðri lengi haft hugmynd um, að ég mundi einhvern tíma búa erlendis. Hins vegar vom hugtök eins og hjónaband, fjölskylda eða böm mér fram- andi um það leyti, sem ég fór út fyrir fjórum og hálfu ári síðan. Annars hefur námið allt- af krafizt svo mikils tíma, að ég hef ekki haft tíma til að eignast vinahóp, eins og ég átti heima, og þegar ég lá veik hér heima um daginn fannst mér ég allt í einu ein- mana. A tímabili hafði ég hugsað mér að taka tónlistarkennaradeildina líka, jafn- framt söngnum, og tók og stóðst inntöku- próf, en það reyndist of mikið, þegar til kom. Enn koma stundum upp efasemdir um sjálfa mig, hvort ég á heima í þessu starfí. Og þegar ég fæ ný viðfangsefni er ég stund- um með hjartað í buxunum — get ég það, get ég það ekki?“ „Þú ert nú langt komin með námið. Að hverju ertu að vinna núna, burtséð frá Ar- iadne, og hvað hyggstu síðan gera að námi loknu?“ — Ég er að vinna að Rossini. Mig langar til að ná betri tökum á kólóratúrsöng. Ég hef mikla ánægju af ljóðasöng, kennari minn í ljóðadeild er Kurt Equiluz, og mér fínnst alveg afbragð að vinna með honum. Hins vegar finnst mér líka gaman að leika, og langar mest að komast að við óperuhús að námi loknu, hvenær sem það verður — kannski eftir tvö ár. í nýútkomnum blaðaummælum um frum- sýningu Ariadne auf Naxos hér í Vín er heillandi blæfagur söngur Rannveigar lofað- ur og raddgæði hennar sögð fela í sér loforð um framtíðina. Ég efast ekki um réttmæti þessarar spár, og hlakka til að heyra hana syngja aftur, eftir eitt, tvö eða fleiri ár. Signý Sæmunds- dóttir að er engan sporvagn að sjá, svo að ég geng þennan spöl, sem Signý býr frá heimili mínu. Á Vínarmæli- kvarða má segja, að við séum nágrannar. Signý býr næst mér allra landa okkar, og þar við bætist, að ég hef unnið með henni um fjögurra ára bil, og því á undan- förnum árum umgengist hana meir en aðra Islendinga á staðnum. Hún vakti fyrst at- hygli mína á tónleikum kórs Langholtskirkju í Háteigskirkju, þegar ég kom heim í jóla- frí fyrir nokkrum árum, en þar söng hún sóló í kantötu eftir Bach. Eftir að hún kom hingað út til náms í janúar 1982 bauð ég henni að gerast meðlimur í söngflokk, sem ég hafði stofnað nokkru áður, La Cappella. Samstarf okkar þar var mér stöðugt ánægjuefni. Þar sem ég geng til hennar eftir Heiligen- stádterstrae þessa kvöldstund í byijun vetrar rifjast samskipti okkar upp fyrir mér, og ég velti því fyrir mér, hvernig ég á að geta komið viðtali við svo náinn vin á blað. Signý er nýkomin heim eftir langan náms- og vinnudag, þegar ég ber að dyrum. Sem stendur er verið að æfa Ariadne auf Naxos fyrir söngferð, sem Junge Oper Wien stend- ur fyrir í febrúar, og fer Signý með titil- hlutverkið. „Hveming finnst þér að vinna að Ar- iadne?“ „Alveg þrælfínt. Að vísu er mikið að gera, og ég syng ekki tón eftir að ég kem heim af æfingum á föstudagskvöldum, þá er ég alveg búin að vera. Við byijuðum að læra hlutverkin í júní, jafnframt æfíngum á Brúðkaupi Fígarós. Þetta eru hlutverk sem fara út í yztu takmörk raddarinnar, bæði hvað hæð og dýpt og áreynslu snertir. Segja má, að Ariadne sé stærsta verkefnið, sem ég hef fengizt við hingað til. Það er kannski erfíðara að skila þessu hlutverki en greifynj- unni í Fígaró, persónan er litlausari, það er lítil hreyfíng í henni, hún bíður bara eft- ir dauðaguðinum. En StrauB skrifar ein- staklega vel fyrir röddina, orð og tónlist falla vel saman, og það er mikill fengur að fá að syngja Ariadne. Auðvitað naut ég þess líka að syngja greifynjuna. Það má segja, að það sé draumahlutverk allra sópransöngkvenna. Söngferðin sem við fórum í með Fígaró var stórkostleg reynsla, á við heilmikið söng- nám. Æfíngar á Ariadne byijuðu svo strax og til baka var komið, eða um miðjan októ- ber. Þessar æfíngar koma ofan á venjulegt nám, og eru yfirleitt á morgnana til að byija með, fjóra daga vikunnar, þar við bætast svo tímamir, sem við þurfum að sækja í ljóða- og óperudeild, svo og undir- leik. Söngtíma fáum við þijá í viku. Þar að auki tíma í „Ensemble" eða samsöng, og svo þarf maður að æfa sjálfur. Ég er eigin- lega í skólanum frá 9 til 6, dagsdaglega, svo að ég hef bara kvöldin heima til að æfa mig. Nei, það er ekki auðvelt að komast að til að æfa sig í skólanum inn á milli kennslu- stunda, nemendur eru milli 160 og 170, en bara þijú æfingaherbergi fyrir hendi. Stund- um bætast við námskeið með gestaprófess- omm, núna á næstunni verður unnið að franskri tónlist, sem er varla tekin fyrir í námsefni skólans, því miður. Jú, það má kalla það gagnrýni. Mér finnst skólinn frek- ar hefðbundinn og þröngur, næstum ein- göngu þýzk og ítölsk tónlist á dagskrá, og svo fínnst mér vanta nútímann. Ég hafði sjálf starfað dálítið við flutning á nútímatón- list heima, og finnst hún vanrækt hér við skólann." „Hvað olli því, að þú lagðir fyrir þig tón- listarnám?“ „Ætli það hafí ekki aðallega komið til af því, að ijölskyldan mín hlustaði mikið á klassíska tónlist, þannig að ég var alltaf að heyra músík heima hjá mér. Ég bytjaði svo að læra á fíðlu níu ára. En það var ekki fyrr en ég fór að syngja hjá Jóni Stef- ánssyni í Langholtsskólanum, þegar ég var 17 ára, að opnaðist fyrir mér nýr heimur. Það var mjög skemmntilegt tónlistarupp- eldi, sem ég naut þar, og eftir eitt ár fór ég að taka söngtíma hjá Olu (Ólöfu Harðar- dóttur). Ég var í Menntaskólanum við Sundin, lærði á fíðlu, spilaði í hljómsveit, tók söngtíma, þetta voru yndisleg ár, margt var að gerast í persónulegu lífi mínu, maður lifði og hrærðist í jafnaldrahóp og fékk mikinn félagslegan stuðning af. Þetta var góð eining, gott að vera hluti af hópi, eins og nokkurs konar vemdun. Háskólanám var ekkert mjög ofarlega í huga mínum. Ég byijaði í kennaraháskólanum, en uppgötvaði fljótt, að það átti ekki við mig, svo ég fór í tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans. Þá var það að rann upp fyrir mér að ég vildi helga mig tónlist. Þetta voru skemmti- leg fjögur ár, hress og góður hópur, við vorum átta stelpur. Ég hætti þá við fiðluna, og einbeitti mér að söngnum. Söng í „Let’s Make an Opera" eftir Benjamin Britten heima, áður en ég fór út til náms hja Kar- usso. Veran hér hefur verið mér mjög mikil- væg. Það er ómetanlegt að kynnast öðru landi, menningu og þjóðháttum. Ég er alltaf ég sjálf, en manneskjan lærir alltaf mikið á því að umgangast annað og öðruvísi fólk, það opnast ýmislegt um mannleg sam- skipti, eðli manneskjunnar." „Þú hefur lagt land undir _fót og sótt námskeið annars staðar líka. Á einu slíku heyrði ég þig syngja þijú algerlega óskyld hlutverk á lokatónleikum (öll af jafnmikilli sannfæringu), hvaða hlutverk voru það?“ „Það var Fiordiligi úr Cosi fan tutte eftir Mozart, Agatha úr Freischútz eftir Lortzing og Elsa úr Lohengrin eftir Wagner. Á þessu námskeiði í Liechtenstein var Sylvia Geszty kennari minn. Hún leggur mikla áherzlu á, að rödinni sé haldið frammi, í „maskan- um“, á einum stað. Annars er það smekksat- riði, eins og hljómur raddarinnar yfírleitt. Ég hef líka sótt námskeið á Ítalíu.“ „Og komið fram á tónleikum, þar og annars staðar." „Jú, ég hef haldið minniháttar tónleika, og sungið með La Cappella þangað til í ár, bæði innan Vínar og utan, m.a. í sjónvarps- kvikmynd í Budapest, og á tónleikum í Þýzkalandi og Danmörku. Þátttakan í óperusýningum Junge Oper Wien hefur líka gefið mér tækifæri til að kynnast því hvern- ig er að starfa sem söngvari. Það eru gerðar sömu kröfur og til starfandi söngvara, mað- ur þarf að „koma sér áfram". „Nú stendur næsta sýningaferð með Ar- iadne auf Naxos fyrir dyrum. Svo er áformað að sýna Brúðkaup Fígarós aftur í Japan næsta ár, verður þú með í förinni?" „Það er ekki ákveðið enn, hvaða „gengi“ fer.“ „Framtíðin?" „Ég stefni að því að klára námið hér. Ég hef ekki tekið neinar ákvarðanir um, hvað síðan tekur við. En endatakmarkið er að koma heim og gera mikið fyrir landann og landið. Möguleikar fyrir söngvara hafa þróast svo mikið heima. En annars getur enginn sagt fyrir um það, hvað úr verð- ur . . .“ Signý Sæmundsdóttir - Endatakmarkið er að koma heim oggera mikið fyrir landann oglandið- -Segja má að Ariadne sé stærsta hlut- verk, sem ég hef fengizt við hingað til. Æfingarnar byrjuðu strax eftir söngferð með Fígaró og þær koma ofaná venjulegt nám. Ljósmyndir tók Sibyl Urbancic. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MARZ 1987 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.