Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 16
Ierlendum tímaritum um myndlist og arkitektúr eru yfirleitt engar fréttir frá Austurblokkinni, sem stundum er nefnd svo: Sovétríkj- unum og Jámtjaldsiöndum Austur Evrópu. Þegar svo ber við, er það næstum alltaf eitthvað frá Pól- landi, sem sýnist hafa sérstöðu handan járntjaldsins í þá veru, að ekki hef- ur tekizt að kúga myndlistina undir miðstýr- ingu alræðiskerfisins; pólsk grafík er til dætnis meðal þess bezta í heiminum. Pólveij- ar virðast einnig eiga góða arkitekta, þótt ekki hafí þeir fengið að njóta sín við upp- bygginguna eftir stríðið, þar sem Varsjá og fleiri borgir vom að hluta byggðar upp í sínum fyrri 19. aldar búningi en að öðru leyti í sálarlausum moderne-stíl eins og hann verður verstur í Skandinavíu — og á íslandi. Ftjálsræði pólskra arkitekta fær hvergi að njóta sín nema í í kirkjubyggingum, sem kemur á óvart þegar hugur kommúnískra alræðisstjórna til kristinnar trúar er tekinn með í reikninginn. En það er á almennu vitorði, að trúin á gífurleg ítök í Pólveijum, svo mikil að það hefur hreinlega ekki verið hægt að beija hana niður. Það var reynt, m.a. með því að ekki var leyft að byggja nýjar kirkjur lengi vel. En þegar flokkurinn sá eftir tvo áratugi, að hann gat ekki unnið stríðið við trúna, var blaðinu snúið við og heimilað að byggja hvorki meira né minna en 1000 nýjar kirkjur. Síðan sú tilskipun gekk út em nokkur ár iiðin, en eftir því sem bandaríska tímaritið Architecture greindi frá nýlega, er iokið byggingu einnar kirkju í bænum Tychy-Zwaków og hefur hún vakið athygli langt út fyrir landamærí Póllands. Kirkjan er kennd við Heilagan anda og fékk nú síðast hin árlegu verðlaun pólska arkitektafélagsins. Arkitektinn heitir Stanislaw Niemczyk og trúlega em ekki inargir hér, sem hafa heyrt hann nefndan. Enda þótt leyfi ríkisvaldsins þurfi til þess að hefja kirkjubyggingu, tekur ríkið ekki þátt í kostnaðinum. Það er söfnuðurinn, sem stendur straum af því eftir því sem fyrr- greint tímarit upplýsir. Það sem einkennir kirkjuna hið ytra er þakið öðm fremur, sem fljótt á litið lítur út eins og pýramídi, en á sniðteikningunni sést, að halli þess er mun meiri öðmm megin. Gömlum helgitáknum úr austurevr- ópskri kirkjulist er komið fyrir eins og skúlptúr ofaná kirkjunni og krossmörkum ofan á turninum, sem stendur sér. Að innan er einkum tvennt, sem telja má sérkennilegt. Annað er byggt á gamalli pólskri siðvenju: það er „sobota" eða gang- vegur utan með veggjunum og hefur þessi gangvegur oft komið sér ve! í hinu stríðshijáða Póllandi, þegar þurfti að hýsa flóttafóík. Hitt er kirkjulistin, myndskreyt- ingin á lofti kirkjunnar, sem listamaðurinn Jerzy Nowosielski er skrifaður fyrir. Hér hefur átt sér stað árangursrík samvinna arkitekts og myndlistarmanns og er ærinn munur á eða hér á landi, þar sem svo virð- ist sem arkitektar forðist yfirleitt að gera ráð fyrir þeim möguleika að myndlist komi til skjalanna. Því miður er myndin of dökk til þess að smáatriði komi vel í ljós, en þó má sjá svarta helgimynd, sem trónir yfir altarinu og mun þar komin hin Svarta madonna, sem er fræg í pólskri kirkjulist. Af öðru má ráða, að hér koma fram býzantísk áhrif, sem ennþá lifa í rússneskri íkonalist til dæmis og virðist þessi stíll ákaflega lífseigur í sam- bandi við trúariðkanir fólks í Tiinum slav- neska heimi. GS. Kirkjan í Tychy-Zwaków. A sneiðmyndinni sést, að þakgluggi veitirbirtu beint niður á altarið. Inngangurinn erfrá turninum. Kirkja í Póllandi Kirkjan að innan. Helgimyndir eru málaðar á loftið; þar ber mest á Svörtu madonnu yfir altarinu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.