Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 9
'ningTi hans í Galleríi Svörtu á hvítu. Sigurður Guðmundsson Sigurður sýnir nú grafík, vatnslitamyndir og höggmynd í Galleríi Svörtu á hvítu við Oðinstorg, en í Norræna húsinu standa höggmyndir eftir hann á viðamikilli samsýn- ingu. Mönnum gefst því gott tækifæri til að kynnast sýnishomi af verkum hins áður misskilda listamanns, sem þáði þann heiður af Svíkonungi í hittifyrra að vera sæmdur svonefndri Prins Eugen-orðu fyrir afrek sín á sviði myndlistar. En hver er þessi listamaður, sem ekki verður sakaður um að hafa verið spámaður í sínu föðurlandi? Sigurður er Reykvíkingur á fimmtugsaldri, sem settist að í Amsterdam eftir að hafa lokið námi við Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1963. Þó svo hann dveldi fjarri heimahögum, aftraði það hon- um ekki frá því að gerast einn af stofnendum SUM, bæði samtakanna og gallerísins. Þar mótaðist smám saman afstaða hans og tók mið af straumum sem lágu í loftinu í hinum alþjóðlega myndlistarheimi, kenndir við ný- dada og síðar hugmyndalist, eða concept- list. Þar var fólgin sú skoðun að myndlist skyldi taka mið af hugmyndinni sem hún væri sprottin af, en ekki efniviði eða tækni- legri útfærslu. Skúlptúr eftir Sigurð: Kona, 1985. Stál, múrsteinn, gips, cement og torf. Þess vegna voru hefðbundnir miðlar hvíldir og ný tækni tekin upp, þar sem hug- myndinni var komið til skila á beinan og umbúðalausan hátt. Sigurður kaus að tjá hugmyndir sínar með hjálp ljósmyndavélar. Sjálfur var hann miðpunktur þeirra mynda sem af spruttu. Þar mátti sjá hann við ýmsar athafnir í alls lags stöðum og stelling- um. Yfirbragðið var ávallt ljóðrænt og hnyttið. Hugmyndirnar snerust ávallt um myndlist og það hvernig við nemum veru- leikann kringum okkur. Þær voru jrfirlætis- lausar en hárnákvæmar og hittu því beint í mark. Hægt er að líkja ljósmyndaverkum Sig- urðar við lítil ljóð um lífíð og tilveruna. Hugmyndin er sett í sjónrænan búning á jafn snjallan hátt og þegar bestu skáld umorða hugdettu svo hnitmiðað að hvert mannsbam skilur. Þennan sérstæða stíl þró- aði listamaðurinn á 8. áratugnum með sífelit næmari tökum og hlaut lof fyrir hvarvetna. Með slíkum verkum var starfsemi Pompi- dou-listamiðstöðvarinnar í París hrandið af stað árið 1977, en Sigurði var boðið að vígja þessa frægu sýningarhöll ásamt nokkram öðram, valinkunnum íslendingum. Það er undarlegt til þess að hugsa hve hljótt var um þennan atburð hér á landi. Það var engu líkara en menn vildu þegja í hel þenn- an mikla sóma sem íslenskri myndlist var sýndur í Frakklandi fyrir nákvæmlega ein- um áratug. Þeim sem staddir vora í París þegar þetta gerðist, blandaðist þó ekki hug- ur um hvaða þýðingu þetta hefði fyrir frónska menningu. En okkur reynist oft erfitt að fylgjast með því sem gerist utan heimahaganna, einkum þegar það varðar menningu og list- ir. Þar hafa íþróttir og afþreying vinning, enda þarf ekki að hnippa í blaðamenn og fréttaritara þegar slík skemmtan stendur þeim til boða. Því fékk Sigurður að halda sínu striki án þess að íslenskur almenningur vissi nokkur frekari deili á honum, frekar en félögum hans. Það var einungis fámenn- ur hópur félaga og samferðarmann sem skynjaði mikilvægi þess þegar íslenskum listamönnum var boðið að opna höfuðvígi franskrar listar. Fimm árum síðar var hann kjörinn sem annar af tveim fulltrúum fyrir hönd íslands til að sýna á samnorrænni listahátíð sem fór um öll Bandaríkin undir heitinu „Scand- inavia Today“. Þá hafði hann horfíð frá ljósmyndagerð yfír í höggmyndalist, enda stóð hún honum nær en málaralist. Það er afrakstur þeirra umskipta sem nú koma fyrir sjónir þeirra sem leggja leið sína í Norræna húsið og Gallerí Svart á hvítu. Verk Sigurðar hafa nefnilega tekið miklum stakkaskiptum á þessum áratug og upp úr höggmyndalistinni hafa sprottið bæði teikn- ingar, grafík, vatnslitamyndir og risastór olíumálverk. Höggmyndalistin hefur borið listamann- inn víða; m.a. til sænska bæjarins Hássle- holm, en skammt þar frá er að finna auðugar hýperít-námur, en sú steintegund er kjörvið- ur myndhöggvara, því þar er um svo hart eftii að ræða að næst kemst demanti. í Sibb- hult í Göinge hefur hann unnið að því að höggva til sjö metra háan klett úr hýperíti og hefur sænska sjónvarpið fylgst með þeim átökum. En Sigurður notar einnig önnur efni til myndgerðar sinnar og sparar þá hvergi útsjónarsemi eða andagift. Mörgum finnst sem lítill skyldleiki' sé milli fyrri og síðari verka Sigurðar. Svo ólík- ur er steinninn ljósmyndinni, að menn eiga erfitt með að koma auga á einhver ákveðin tengsl. Sannleikurinn er sá að Sigurður er og hefur verið sjálfum sér líkur alia tíð. Ljóðrænan og hnyttnin era ekki horfin þótt skipt hafí um búning. Ef til vill er kominn nýr þáttur í myndgerð hans, sem ekki var eins augijós áður fyrr. Það er íhygli og ró sem kenna mætti við söknuð. Þessi strengur sem Hollendingar kenna við norrænt hugar- flug, bendir til þess að fjarlægð Sigurðar frá fóstuijörðinni hafí skerpt vitund hans sem Islendings og hugsun hans um það hvað sé að vera Islendingur. Hvað um það; sumir mundu orða það svo að Sigurður hafi hoppað frá Steini Stein- arr, aftur til Einars Ben. og Jóhanns Siguijónssonar. En það má víst ekki líkja saman myndlist og bókmenntum og því er best að leyfa verkunum sjálfum að segja sína sögu. Sýningar Sigurðar gera stuttan stans og því er áhugasömum fyrir bestu að bregðast skjótt við ef þeir vilja ekki missa af listamanninum eina ferðina enn. Jk LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MARZ 1987 9 ‘ 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.