Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Blaðsíða 12
Nýársfagnaður í Berlín 1930. Berlín 1930 skemmtanalíf á veitingastöðum, næturklúbbum og allskonar „búllum", trylltara og úrkynjaðra, fyrir þá sem áttu peninga og túristana. Þessir lukkunnar pamfflar tóku sig til og breyttu Berlín í villtustu gleðiborg sem sögur fara af síðan á dögum Rómaríkis. Hvergi í Evrópu voru grímuböllin glæstari, næturlífið trylltara né vændi og eiturlyfjasala opinljósari. Þúsundir ungra stúlkna, margar þeirra á táningsaldri, dýrkuðu danskonuna Anitu Berber, sem dansaði klæðalaus á Kabarett hinnar hvítu músar og gamnaði sér við kókaín, morfín og elskendur af báðum kynjum. Hún málaði borgina rauða á nóttunni í slagtogi við her af slagsmálahundum, bófum og fylliröftum og lést svo úr berklum 29 ára. Um alla borgina var nektin dýrkuð; á næturklúbbum, á kvikmyndatjöldum og leiksviðum, í einkasamkvæmum, þar sem þjónustustúlkur í híalínsbrókum voru á launum við að láta þukla sig, og jafnvel meðal „náttúrudýrkenda" sem stunduðu skautahlaup á eymahlífum einum klæða. Gleðikonur gengu um stræti þúsundum saman, sumar í leðurstígvélum með svipu, aðrar með tíkarspena og skólabækur. „Allar voru stúlkumar á skrá hjá lögreglunni, og ef maður fékk eitthvað af einhverri þeirra var meira að segja hægt að stefna henni." Ólifnaðurinn var í algleymingi. „Meðfram Isherwood Getum hefur verið leitt að því að Heinz sé fyrirmynd Emst Ludvig í „Ka- barett". Isherwood bjó lengi í Berlín hjá Meta Thurau, sem varð frú Schroeder í „Berlín kvödd" og frk. Schneider í „Kabarett". 1930 hélt hún með kommúnistum og með nasistum eftir 1933. Ekta Berlínar- búi, sem síðar dáðist að Bandaríkjunum. Þegar Isherwood heimsótti hana í Berlín 1952 dró hún enga dul á ánægju sína með að vera fyrirmyndin í „Berlín kvödd“. Lýsing Isherwoods á mjaðma- dillandi göngulagi hennar var það eina sem hún hafði á móti. Þau voru góðir vinir til æviloka. Fleiri persónur í sögum Isherwoods áttu sér fyrirmynd í Berlín. Og víst var Sally Bowles til. Hún hét Jean Ross, bresk, fædd 1912 og vann sem söngkona. Söngur hennar var ekki upp á marga fiska og Ieikur hennar var ennþá verri. Líf hennar var mglingslegt og það sama gilti um það sem hún sagði. Þau Isherwood bjuggu í sömu íbúð, ærsluðust og rifust eins og systkini, en þau vom aldrei elskendur. Jean á að hafa sagt við hann eitt sinn þegar úti rigndi: „Skítt að við skulum ekki geta elskast, það er ekkert annað hægt að gera.“ Þegar hún sneri síðar til Englands, hittust þau Isherwood aftur, en hún af- neitaði allri frægðinni, sem bækumar, leikritið, söngleikurinn og kvikmyndin höfðu fært henni. En Jean Ross var Sally Bowles. Jean Ross og Isherwood héldu vináttu sinni þar til hún lést 1973. Christopher Isherwood lést síðastliðið ár á heimili sínu rétt utan við Los Ange- les, 81 árs gamall. Isherwood varð aldrei mjög vinsæil og víðlesinn höfundur, en virtur vel í bókmenntaheiminum, brot af uppreisn- armanni og fmmkvöðli og þegar fram í sótti dulúðugur. Kurfurstendamm," skrifaði austurríski höfundurinn Stefan Zweig, „spássémðu ungir karlmenn, púðraðir og málaðir, og inni í rökkri ölkránna mátti sjá heimsmenn og peningafursta gera hosur sínar grænar fyrir fullum sjómönnum.“ Á klæðskiptingaböllum sá Zweig „hundmð af körlum í kvenklæðum og hundmð kvenna búnar sem karla, dansandi undir vinsamlegu augliti lögreglunnar.“ Engu líkara en verið væri að reyna að skemmta sér af svo miklum krafti að vemleikinn sæist ekki, þessi vemleiki, sem svo hvolfdist miskunnarlaust yfír þjóðina og síðar heiminn. Strax að lokinni fyrri heimsstyijöldinni hefur Hitler „baráttu" sína, með fámennan hóp í kringum sig. Hann gerir byltingartilraun 1923 sem mistekst og í fangelsinu skrifar hann bók sína „Mein Kampf“. með ámnum vex nasistaflokkurinn jafnt og þétt og þeir fara að bjóða fram til þings. í kosningunum 1930 juku þeir þingmannatölu sína úr 12 í 107! Sífellt fleiri trúðu því að einveldi Hitlers væri eina leiðin ti að losa Þjóðveija úr þessum glundroða. ísland 1930 • Þúsund ára afmæli Alþingis hald- ið hátíðlegt á Þingvöllum. Hátíða- höldin stóðu í þijá daga. Kristján konungur X. setti Alþingi. Sögu- leg sýning, íþróttir og vikivakar. Um 30 þúsund manns sóttu hátíð- ina. • Laugarvatnsskóli fullbyggður. Stærsti skóli í sveit á íslandi. • Geðveikralæknir lætur í ljós það álit, að dómsmálaráðherrann sé ekki „normal". Vill að Alþingi fái hingað sérfræð- inganefnd til að rannsaka andlegt heilbrigði ráðherrans. • Landspítalinn tekur til starfa í hinu nýja og veglega stórhýsi á Grænuborgartúninu gamla. • Kommúnistaflokkur íslands stofnaður. • Hótel Borg tekur til starfa. • Búnaðarbanki íslands tekur til starfa. 9 Fyrsti íslenski flugmaðurinn, Sig- urður Jónsson. • Togarinn Apríl ferst með 18 mönnum. • Loftfarið Graf Zeppelin í heim- sókn. 9 Korpúlfsstaðir, mesta stórbýli á íslandi, gefur af sér 8.000 hest- burði af töðu. 9 Gunnar Gunnarsson talinn líkleg- ur til að fá bókmenntaverðlaun Nóbels, en það var ameríski rit- höfundurinn Sinclair Lewis, sem hreppti hnossið. 9 Elliheimilið Grund vígt. 9 íslandsbanka lokað vegna hættu á stórfelldum sparifjárflótta. Stofnaður Utvegsbanki Islands og íslandsbanki látinn renna inn í hann. 9 Amarhvoll, skrifstofubygging ríkisins, tekinn í notkun. 9 Kvikmyndahúsin í Reykjavík hefja sýníngar talmynda. 9 Hörð átök milli lögreglu og verk- fallsmanna við Gamastöðina. 9 Tíu þingmenn dæmdir þingvíti fyrir að vanrækja að koma á fund. Þingvíti er kaupmissir þann dag. 9 Ný brú yfir Skjálfandafljót vígð. 9 Ríkisútvarpið tekur til starfa. BALDUR PÁLMASON Bláfjallalitir Heiðríkja yfir Bláfföllum! Fönnin hvít allt um kring ídalbotnum, undirhlíðum, brekkunum efra og alvegá brúnir upp, en dökkir hnjótar hér ogþar eins og krækiber í berjaskyri — roknastór ber írisastóru trogi. Sólskinið vefur sig um allt lifandi og dautt — en ernokkuð dautt? MjöIIin verður iðandi af lífi þegarskin ogskuggar vegast á íslakka oghalli og skíðafólkið sveiflar sér frá einum rinda á annan. Hrafnahjón fljúga með brúnum ogkrunka vinsamlega ígóðviðrinu, ekki virðistþeim vera ínöp við aðkomufólkið, þetta innrásarlið ífjallríki kyrrðarinnar, en aftur á móti styggist flikróttur fugl, tekur sig upp og flýgur viðjörð í h varf með hræðslulegum vængjaslætti, — ijúpa, sem elur uggíbrjósti, ógnarbeyg viðfálkann frækna, en hann er ekki hér að sjá. Heiðríkt er yfir Bláfjöllum. Lítum þangað! Þarna rennir sér stúlka fleygiferð niður hlíð, hefur víst verið ofar brúnum, kannski allar götur suður á Heiðinni há, stúlka ígrænnipeysu, meðgulan trefil, írauðum sokkum, meðrauða húfu, sem hylurekki háriðljósa allt, svo að lokkar þyrlast fyrir þéttingsvindi. Hún horfir um öxl ogherðirþó förina ofan. ínæstu andrá birtist á brúninnipiltur, er steypir sér framafí stúlkunnar slóð. Peysan hans er gul og pijónahúfan græn, ogvindurinn togar í trefilinn svo að úr verður hlykkjótt strik, langt, rautt, blaktandi band. Einarður þeysir hann á eftir stúlkunni ogsýnist draga á hana dijúgum. Æ hvað er atarna? Hún missir jafnvægið allt íeinu og felluríhvíta fönnina, sem rýkur upp kringum hana. I sama bili berhann að, skíðapiltinn frækna, ogþegarmjallrokan dvínar sést hann lúta yfir stúlkuna um stund svo að litirnir: rautt, gult og grænt renna saman ístóran skrautlegan hnykil. En svo raknar aftur úr. Afram halda þau tvö oghaldast nú íhendur. Peysan græn og peysan gul, trefillinn gulur og trefillinn rauður, húfan rauðoghúfan græn. Undir er fannhvítur snjór, yfir er himinblár himinn. Ogþarna koma hrafnahjónin til baka. Höfundurinn er fyrrum varadágskrárstjóri Ríkisút- varpsins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.