Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Qupperneq 8
b
§
r
1 i |
I n
The great poem, 1981. Steinsteypa, stál, svanir.
Sjálfum sér
líkur alla tíð
egar Sigurður Guðmundsson hóf listamanna-
feril sinn með því að velgja samborgurum
sínum undir uggum, hefðu fáir trúað því að
hann ætti síðar eftir að verða landi sínu til
sóma á erlendum vettvangi. Svo fjarlæg var
Um myndlist Sigurðar
Cuðmundssonar sem
settist að í Hollandi og
hefur verið margvíslegur
sómi sýndur ytra, en er
nú á ferðinni hér og sýn-
ir verk sín í Gallern
Svörtu á hvítu við Óð-
instorg og ásamt tveimur
Norðmönnum í Nor-
ræna húsinu
sú hugsun hverjum „heilvita" íslendingi að
taka listamann aivarlega sem stillti upp
heysátu á listsýningu, að þeir nenntu fæstir
að leggja nafn hans á minnið. Það að Sigurð-
ur skyldi um líkt leyti setjast að í Hollandi,
hjálpaði þeim að gleyma honum. Nú, um
það bil tveim áratugum síðar, snýr hann til
baka með frægð upp á vasann til að sýna
samtímis á tveim stöðum í Reykjavík.
ssS'iíWjt*
Konstellation,
1983-’84. Tré, skeljar,
cementogblý.
W'
■ jþ-;'-
Nýlegt verk eftir Sigurð, silkiþrykk, og er á sý