Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Page 13
VÍRAVIRKI Stærðin, segir Hansína Jensdóttir, „heillar mig. Ég sé þessi verk fyrir mér miklu stærri, kannski átta metra há og þaðan af stærri. En þá kæm- ust þau náttúrlega hvergi fyrir nema utandyra og ég var hrædd um að enginn vildi kaupa þau Hansína Jensdóttir fæst við gull- og silfursmíði jafnframt list sinni, sem hún lærði hér og í Kanada, en hefur farið sér hægt og heldur nú sína fyrstu einkasýningu á Kjarvalsstöðum Eftir ILLUGA JÖKULSSON svo ég hafði hemil á mér. Auðvitað eru verkin sem ég sýni á Kjarvalsstöðum full- gildir skúlptúrar frá minni hendi.“ Satt að segja ber Hansína það ekki bein- línis með sér að hún hugsi í þvílíkum stærðum. Hún er kyrrlát og fámálug og þó það séu bráðum liðin fimm á síðan hún kom heim frá námi er hún fyrst núna að opna einkasýningu — nánar tiltekið á ganginum á Kjarvalsstöðum. Hún hefur látið fyrir- ganginn öðrum eftir en haldið sér við leistann sinn í friði og ró og smíðað gull og silfur þess á milli. Þó hefur hún tekið þátt í býsna mörgum samsýningum og átti meðal annars eitt verk á abstrakt-sýning- unni kunnu á Kjarvalsstöðum. Nú segist hún vera kvíðin. Hansína Jensdóttir „Sérstaklega var ég dauðhrædd þegar ég byrjaði að vinna að þessari sýningu af fullum krafti núna eftir jólin. Hlutirnir mínir virtust verða allt öðruvísi en ég hafði hugs- að mér þá. Það er líka allt annað að sýna einn en með öðrum; á samsýningum hverfa verkin ýmist í fjöldann eða ekki, en sýning- in stendur alla vega ekki og fellur með þeim.“ Hansína byrjaði myndlistarnám sitt í Myndlista- og handíðaskólanum hér í Reykjavík en fór aldrei lengra en í forskól- Tómthús Hansína með hluta af verki. ann, enda var þá engin skúlptúrdeild við skólann, en þangað stefndi hugurinn og annað ekki. „Eg sótti líka tíma í Myndlistarskólanum, kvöldskólanum, og það var mér ekki síður gagnlegt. En svo komst ég að þeirri niður- stöðu að ef ég ætlaði að gera einhverja alvöru úr því að helga mig skúlptúmum yrði ég að fara út og fór þá til Kanada. Eg lærði í borg sem heitir Calgary og var mjög heppin með skólann. Einkum og sér í lagi var aðstaðan góð og maður gat haft sína hentisemi sem mér finnst mjög mikils virði. Eg var í Calgary í tvö ár og kom heim ’81.“ Áður en Hansína fór út hafði hún verið að læra gullsmíði og hefur starfað við það síðan. „Eg var reyndar að hugsa um að hætta gullsmíðanáminu á tímabili," segir hún, „en nú er ég mjög fegin því að hafa haldið áfram. Eg fæst við að smíða skartgripi fyr- ir Jens gullsmið föður minn og fmnst það mjög ánægjulegt starf. Á hinn bóginn er skartgripasmíði auðvitað ekki sá skúiptúr sem ég hef mestan áhuga á, enda er hér um gerólíka hluti að ræða. Hlutimir sem ég smíða á gullsmíðastofunni eiga, held ég, ekkert skylt við skúlptúrana mína. Það er kannski skrýtið því við höfum algerlega fijálsar hendur. Ég held ég geti sagt að ég hugsi öðruvísi þegar ég er að smíða úr silfr- inu en þegar ég er að vinna að eigin lista- verkum." Hansína byijaði á því, heim komin til íslands, að gera verk úr pappír, síðan próf- aði hún tré, en undanfarið hefur jámið ráðið ríkjum. „Ég skal ekkert segja um það hvort ég sé komin á rétta hillu með þessum víravirkj- um sem ég er að fást við núna. Ég hugsa mjög lítið um það sem ég er að gera, að minnsta kosti ekki fyrirfram, og reyni að láta verkin spretta af sjálfu sér. Ég rissa til dæmis mjög sjaldan upp hugmyndir áður en ég byija að vinna og ef ég geri það er eins víst að niðurstaðan verði allt önnur. Mér finnst bestu verkin mín verða til þegar ég gleymi mér fullkomlega við vinnuna." Það lætur að líkum að Hansína vill sem minnst segja um þau víravirki sem hún sýnir á Kjarvalsstöðum. „Ég er lítið gefín fyrir það að tala um verkin mín. Ég hef svo sem ekkert um þau að segja, þau verða að standa fyrir máli sínu sjálf...“ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MARZ 1987 1,3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.