Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Side 2
Magnaður
ungur maður
Eftir ÆVAR R. KVARAN
Um Matthew Manning
sem gæddur er svo
Qölþættum, sálrænum
hæfileikum, að
undravert má kalla
Matthew Manning.
ann heitir Matthew Manning, er enskur og
á fáa eða énga sína líka. „Hann sameinar í
einni persónu hina öflugustu hæfileika og
óvenjulega hrífandi hreinskilni, sem gerir
honum kleift að sjá sjálfan sig á hlutlausan
hátt og með kímni. Greind hans er svo aug-
ljós, að ég hygg að hann eigi eftir að kenna
okkur heilmikið um sjálf okkur." Með þess-
um orðum lýsti dr. Lyall Watson þessum
unga manni, sem allt frá ellefu ára aldri
hefur reynt margs konar sálræn fyrirbæri.
Allt frá ofsalegum og ógnvekjandi árásum
ærslanda og til hinna óskiljanlegu hæfileika
til að gera teikningar, sem virðast vera eft-
ir látna snillinga, svo sem Picasso, Paul
Klee, Durer og ýmsa aðra. Um þetta merki-
lega líf skrifaði Matthew Manning svo bók,
sem hann nefndi The Link, en sá sem þetta
skrifar sneri á íslensku og gaf nafnið
Tveggja heima tengsl og kom út 1977.
Þegar Matthew Manning lauk þessari bók
1974 var hann jafngamall Halldóri Lax-
ness, þegar fyrsta bók hans kom út: Átján
ára. Hins vegar er ekki líklegt að Matthew
verði frægur skáldsagnahöfundur, eins og
Halldór. Nei, hann er miklu líklegri til þess
að skrifa fleiri sönn ævintýri, þar sem hann
sjálfur er söguhetjan, og aðrir skáldsagna-
höfundar eiga áreiðanlega eftir að skrifa
um hann, þ.e. vfsindamenn þeir, sem fást
við rannsóknir sálrænna afla í manninum.
Fyrr á Öldum Hefði
Hann Verið Brenndur
Matthew Manning er nefnilega gæddur
fjölþættum, sálrænum hæfileikum i svo
rfkum mæli, að afar sjaldgæft hlýtur að
teljast. Undur þau sem hafa gerst í sam-
bandi við hann eru furðulegri en nokkur
skáldsaga. Á miðöldum hefði slíkur maður
vafalaust endað á bálkestinum sem magnað-
ur galdramaður.
I návist Matthews Manning hafa ýmiss
konar hlutir farið á kreik með óskiljanlegum
hætti, flust til innan og milli herbergja.
Aðrir hafa birst að því er virðist úr lausu
lofti í vitna viðurvist, án þess að nokkur
vissi hvaðan þeir væru komnir. Margs kon-
ar áletranir hafa birst á veggjum og jafnvel
í lofti í herbergjum Matthews og á heimili
foreldra hans. Mannanöfn með ártölum, sem
oftast reyndust vera dánardægur viðkom-
andi manna og sumir þeirra reyndust hafa
verið eigendur hins gamla húss, sem fjöl-
skylda Matthews bjó í.
Matthew stundaði nám í heimavistarskóla
á þessum árum og þar tóku einnig að ger-
ast margs konar undur. Stór og þung
tveggja manna stálrúm fluttust til með pilt-
um í svefnskála þeirra og margs konar
hlutir birtust úr lausu lofti, jafnvel hnífar,
sem flugxi gegnum loftið og enginn vissi
hvaðan komnir væru. Skýrir Matthew frá
því hvemig þessi ókyrrð var næstum orðin
því valdandi að hann væri rekinn úr skóla,
þótt hann hefði vitanlega enga stjóm á
þessum fyrirbærum. Þessari ókyrrð linnti
ekki fyrr en Matthew tók að skrifa ósjálfr-
átt, en þá virðist sá kraftur í honum, sem
nauðsynlegur var til þess að hreyfing hlut-
anna gæti átt sér stað, hafa farið í að
framkvæma hina ósjálffáðu skrift, því þá
komst kyrrð á í kringum hann.
Ósjálfráða skriftin hafði þann stórkost-
lega kost í för með sér fyrir Matthew, að
með henni náði hann valdi á hreyfíngarfyrir-
bæmnum og gat nú komið í veg fyrir þau
margvíslegu vandræði, sem af þeim höfðu
stafað fyrir hann.
Skilaboð Frá látnu Fólki
Og ekki dró það úr undrun manna, þegar
hann fór að skrifa ósjálfrátt, því þá tóku
að birtast á blöðum hans margs konar boð,
að því er virtist frá látnu fólki. Boð þessi
voru ákaflega margvísleg og mismunandi
merkileg. Sumt vom skilaboð til eftirlifandi
ættingja og þar á meðal má nefna boð frá
afa Matthews sjálfs, sem lýsa í einstökum
atriðum hvemig andlát hans hafí borið að
höndum og hvað hafi gerst eftir að hann
yfírgaf lfkamann. Langflest þessara boða
vom þó frá fólki, sem Matthews hafði áður
aldrei heyrt getið um og þekkti ekkert til
og á ýmsum mismunandi tungumálum, jafn-
vel tungumálum, sem Matthew hafði aldrei
lært og botnaði því ekkert í. Þau varð því
að J)ýða.
011 vom boðin skrifuð með allt annarri
rithönd en Matthews, og í þeim tilfellum,’
sem hægt var að ganga úr skugga um það,
hvort rithöndin hefði í rauninni tilheyrt við-
komandi sendanda (eins og f tilfellinu með
afa Matthews) þá kom í ljós að þetta var
rithönd hins látna.
Eins og að framan getur vom flestar
undirskriftir boðsendara nöfn fólk, sem
Matthew hafði aldrei heyrt getið um, en þó
vom nokkur boð frá alkunnum persónum,
eins og til dæmis breska ráðherranum, Sir
Staffords Cripps, sem í sínum boðum kveðst
hafa látist í Sviss þann 21. apríl 1952. Það
reyndist rétt, að Matthew hafði að vísu sök-
um æsku sinnar aldrei heyrt hans getið.
Þá má nefna heimspekinginn Bertrand
Russel, sem alltaf hélt þvf fram meðan hann
lifðí, að ekkert líf væri að þessu loknu, en
hafði nú snúist hugur, og Frederick Myers,
hinn fræga sálarrannsóknamann, sem var
einnn af stofnendum Breska sálarrann-
sóknafélagsins, 1882.
Það sem ekki vakti minnsta athygli á þvf
sem Matthew skrifaði ósjálfrátt vom boð
hans og handrit á arabísku. Þessi handrit
vom send til athugunar arabfska prófessom-
um Suheil Bushmi við bandaríska háskólann
í Beirút. Þótti honum þau svo athyglisverð,
að hann kom til Lundúna ti! þess að ræða
þau við útgefendur bókar Matthews. Hann
kvað handritin vera frá mjög ólíkum persón-
um. Allt frá krafsi ómenntaðs manns til
hinnar listrænustu skriftar hámenntaðra
kennara. Það var skoðun Bushruis prófess-
ors, að með öllu væri útilokað að þessi
handrit hefðu verið skrifuð eftir minni. En
meðal þessara boða var að fínna frásögn,
sem ef til vili er eitt hið dularfyllsta í öllum
þessum boðum, sem Matthew tók við í
ósjálfráðri skrift, en það er frásögn ensks
arkitekts, sem kvaðst heita George Laing
og hafa verið myrtur í Suður-Arabíu.
ÓSJÁLFRÁÐ TEIKNING
í þessari bók em margar teikningar og
myndir, sem sýna enn einn hæfíleikann hjá
þessum undarlega óffeska, unga manni, sem
skrifaði þessa bók. Hann hefur sem sagt
einnig tekið við listaverkum frá látnum
dráttlistamönnum með ósjálfráðri teikningu.
Sumir þessara listamanna em heimsfrægir
menn.
Gagnvart þeim lesendum, sem ekki hafa
gert sér grein fyrir þeim ótrúlegu fyrirbær-
um, sem gerst hafa f návist sálræns fólks,
er það þessari fyrmefndu bók Matthews
Manning mikill styrkur að snemma var leit-
að aðstoðar og ráða manns, sem tekið er
mark á. Það er dr. George Owen. Hann er
hámenntaður vísindamaður, sem auk þess
að vera líffræðingur, stærðfræðingur og
erfðafræðingur er talinn vera sérfræðingur
í fyrirbæmm, sem kennd em við þýska orð-
ið poltergeist.
Þetta þýska orð er myndað af orðinu
polter, sem táknar háreisti, læti, gauragang
og orðinu geist, sem þýðir andi.
Orðið táknar því anda, sem hefur tmflan-
ir í för með sér. Þær lýsa sér í ýmiss konar
hávaða, svo sem höggum, sem heyrast í
borðum og veggjum, flutningi á húsgögnum
og fleiru þess háttar. Það sem oft einkenn-
ir þessi fyrirbæri er viss hrekkvísi, sem fram
kemur stundum í þeim, eins og til dæmis
þegar rúm em reist á rönd eða þungir skáp-
ar færðir fyrir dyr og þess háttar. Stundum
kemur fram viss kímnigáfa, eins og þegar
hnífapör sem vandlega hafa verið borin á
borð, finnast á gólfínu í nákvæmlega sömu
röð og reglu.
Því er svo farið um móðurmál okkar,
íslenskuna, að það getur farið illa á því að
taka inn í málið erlend orð óbreytt, eins og
t.d. poltergeist, sem ýmsar þjóðir hafa tek-
ið upp óbreytt í mál sitt úr þýskunni.
Ég hef því leyft mér að þýða þýska orðið
poltergeist með íslenska orðinu ærslandi
(samandregið úr ærsla-andi), sem verður
víst að teljast nýyrði í þessari merking.
Ærslanda-Fyrirbæri
í skýrslu þeirri, sem birt er í bók Mann-
ings virðist Owen ekki vera í neinum vafa
um það, að fyrirbærin, sem gerðust kringum
Matthew Manning séu ærslanda-fyrirbæri.
Hann bendir á það, að undanfarin tvö hundr-
uð ár a.m.k. hafi verið skráðar frásagnir,
mjög vel vottfestar, af slíkum fyrirbærum
og hann kveðst ekki vera í vafa um það
að þau hafi verið sönn, þ.e. að þau hafi í
raun og veru gerst, en hafí hvorki stafað
af ofsýnum né fjöldasefjun. Hvað snerti
þann hávaða eða hljóð þau, sem stundum
komi fram, þá kunni fólki að detta í hug,
að slíkt gæti stafað af eðlilegum ástæðum,
svo sem þenslu eða samdrætti í viðum gam-
alla húsa, vatni í leiðslum o.þ.h. En doktor-
inn segir, að í mörgum tilfellum sé hávaðinn
með þeim hætti að slíkt komi alls ekki til
greina.
Hins vegar flýtir hann sér að bæta við,
ið það sé engan veginn ljóst að þetta stafí
frá öndum. (Það er skýring sem vísindamað-
ur verður umfram allt að forðast!) Eftir því
að dæma er orðið poltergeist, sem hann
sjálfur notar, satt að segja ekki sem heppi-
legast. Samkvæmt skýrslu dr. Owens er
eina skýring hans sú, að fyrirbærin stafí
af einhvetju dularfullu afli, sem enginn veit
hvers eðlis er. Þetta er þó vissulega enginn
smákraftur, því þegar tvö hundruð punda
þungu rúmi er lyft þarf a.m.k. til þess tvö
hundruð punda kraft. Hann telur að þessi
kraftur eigi með einhverjum hætti rætur
sínar að rekja til einhverrar persónu (sem
oft er unglingur), sem þannig valdi fyrirbær-
inu algjörlega án vitundar sinnar.
Þótt dr. Owen að vísu telji sig skorta
hæfni til þess að dæma um ýmsa þætti
þeirra fyrirbæra, sem gerðust í kringum
Matthew Manning, sökum þess, að þau liggi
utan þess sviðs, sem hann er sérfræðingur
á, þá vill hann nú samt forða lesendum frá
þeirri villu eða misskilningi, að nokkrir and-
ar geti verið að verki í ærslanda-fyrirbærun-
um, og hann rökstyður það með þessum
hætti:
Margar Sannanir
Um arabísku handritin segir hannm, að
það liggi í augum uppi, að þau geti Matt-
hew sjálfur ekki hafa skrifað. Enda þurfti
nú tæpast sérfræðing til að komast að þeirri
niðurstöðu. Þetta mál hlýtur að hafa valdið
dr. Owen miklum vonbrigðum, því hér fer
allt úr skorðum, sem hann hefur sett slíkum
fyrirbærum. Þó að vísu enginn félli í „trans",
þá rignir niður boðum frá látnum, sem iðu-
lega sanna sig með þeim hætti, að engar
aðrar skýringar eru til, nema þær að þetta
fólk sé það sem það segist vera, framliðnir
menn. Það er því ekki furða þótt doktorinn
fari vægast sagt fljótt yfír sögu hvað þau
fyrirbæri varðar, því eins og kunnugt er
hafa vísindin enn ekki viðurkennt að líf sé
að þessu loknu.
Sannleikurinn er engu að síður sá, að það
er óvenjulegt að ffarn komi í einni bók jafn-
margar og ítarlegar sannanir fyrir lífí eftir
dauðann og í þessari bók.
Árið 1973 kom hinn frægi Uri Geller til
Bretlands og sýndi í sjónvarpi hvemig hann
getur beygt málmhluti með hugarorku einni
saman. Áfrek Gellers á þessu sviði og öðram
sviðum hugarorku vakti gífurlega athygli
um allt Bretland. Vora menn sammála um
það, að honum hafí tekist að sannfæra millj-
ónir Breta um það, að hæfíleikar hans vora
ósviknir með öllu, þótt ótrúlegt væri.
Ári síðar var öðram þætti sjónvarpað um
þetta efni. Bar hann nafnið: Uri Geller:
Er að sjá að trúa? Þetta gerðist í janúar-
mánuði 1974. Eins og vant er, þegar
ótrúlegir, sálrænir hæfíleikar era sýndir
opinberlega stóð ekki á ýmsum gagnrýnend-
um, sem neituðu að trúa eigin augum, þótt
ekki tækist þeim að sýna framá það hvem-
ig Uri Geller færi að því að beita brögðum
undir Argusaraugum ýmissa sérfræðinga,
sem vitanlega töldu heiður sinn í veði, ef
þeir létu blekkjast. Æstastir allra þessara
gagnrýnenda vora þeir, sem hafa atvinnu
af sjónhverfíngum. En þeir töldu, að Uri
Geller væri ekkert annað en einn af þeim,
þ.e.a.s. venjulegur töfrabragðameistari.
Enginn bauðst þó til að leika þetta eftir
honum í sjónvarpi við sömu skilyrði og hann
varð að hlíta. Þó spunnust um þetta miklar
deilur í blöðunum, þannig að tvær grímur
tóku að renna á suma sjónvarpsáhorfendur. _
Eins og aðrir fylgdist Matthew Manning
spenntur með þessum sjónvarpsþáttum og
deilunum um þá í blöðunum. Hann segir svo
frá þessu í bók sinni:
„Foreldrar mínir horfðu á þennan þátt
með mér. Og þegar honum var lokið, þá
var það móðir mín sem bað mig að reyna
hvort ég gæti beygt málmhluti með þessum
hætti. Eg sagði henni að mér myndi ekki
takast það, en tók samt upp ryðfría stál-
skeið til þess að gera tilraun á, og það
frekar til þess að gera henni til geðs.
Ég strauk skeiðina mjúklega og einbeitti
huganum að því að hún bognaði. Eftir tíu
mínútna tilraun var skeiðin enn í sinni upp-
haflegu mynd og var bersýnilegt að særing-
ar mínar höfðu ekki áhrif á hana. Þegar
aðrar tíu mínútur vora liðnar kom faðir
minn inn í stofuna og ég sýndi honum skeið-
ina og sagði honum að ekkert hefði gerst.
Innkoma hans í stofuna traflaði einbeit-
ingu mína, sem beindist frá skeiðinni, þegar
ég fór að tala við hann. En einmitt á því
andartaki fann ég að eitthvað hafði kom-
ið fyrir handfang skeiðarinnar. Það
virtist ekki eins beint, eins og það hafði
verið. Við nánari athugun kom í ljós, að
ekki var um að villast, handfangið hafði
bognað á einum stað. Og það var ekki nóg
með það, nú hélt það áfram að bogna hratt,
þangað til það var orðið í laginu eins og
hámál."
ÁN NOKKURRA BRAGÐA
Síðan lýsir Matthew því hve illa honum
gekk að trúa því að hann gæti gert þetta.
En áframhaldandi tilraunir tóku af allan
vafa. Hann veit þess vegna að þetta er
hægt án nokkurra bragða, hvort sem Uri
Geller beitir þeim eða ekki.
Þessi hæfileiki náði hámarki, þegar hann
beygði handjám, sem sérstaklega höfðu
verið smíðuð fyrir bresku leyniþjónustuna
og eðilisfræðingar höfðu fullyrt, að ekki
væri hægt að beygja. Rannsóknarstofnun
Lundúnalögreglunnar skoðaði hin beygðu
handjám og lýsti því yfir að rannsókn lo-
kinni að engum efnislegum krafti hefði verið
beitt á þessi handjám, því þótt þau hefðu
verið beygð með venjulegu afli um ekki
nema þijár gráður, þá hefði það haft í för
með sér breytingu á uppbyggingu sameind-
anna en slíkt hefði ekki átt sér stað. Með
öðram orðum: Þetta var óskiljanleg.
Hinn háttsetti foringi í leyniþjónustunni,
sem hafði lánað handjárnin til þess eins að
fletta ofanaf Matthew Manning sem svik-
ara, varð æfur, en fékk auðvitað ekki að
gert.
Eins og eðlilegt er hefur Matthew Mann-
ing síðan þetta gerðist verið til rannsókna
hjá ýmsum vísindastofnunum í dulsálar-
fræðum beggja megin Atlantshafsins. Hann
hefur hvarvetna hlotið lof rannsóknarmanná
fyrir ágætan og hiklausan samstarfsvilja.
Má vænta þess að einhveijar niðurstöður
þessara rannsókna taki brátt að birtast í
vfsindaritum um þessi efni.
Höfundurinn er leikari og rithöfundur t
Reykjavík.