Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Page 5
Töfraflauta. Skorín íbein fyrirum 30.000 árum í Frakklandi. Tónlist Cro-magnon- manna gegndi veigamiklu hlutverki í andlegu lífi þeirra. Spjótkastari. Áhaldið var notað sem handfang við að kasta vopnum. „ Venus a la Come. “ Afar breiðar mjaðm- ir og vöxtuleg bijóst á þessarí 43 sm smástyttu eru einkenni á höggmyndum af konum frá ísöld. Hestur úr fílabeini. Smástytta þessi er 7,5 sm og talið að hún hafí veríð telgd fyrír um 14.000 árum. Lampi gerður úr sandsteini. Grunn skál var fyllt með tólg sem Ijósmeti, en rakið eða kveikurinn var snúið saman úr mosafléttum. Vegglist. Fyrir um 20.000 árum var þessi kýr máluð á hellisvegg í Frakklandi. „Venus frá Lespugue.“ Þessi 15 sm stytta var skorin út í tönn fyrir meira en 250 öldum í Frakklandi. haldbær vitneskja sé fyrir hendi um að Neanderthals-menn hafi yfírleitt átt sér meiri lífslíkur en eitthvað um það bil 45 ár, þá er hitt þó vitað, að a.m.k. sumir Cro- magnona hafa náð allt að sjötugsaldri, og því lifað nægilega lengi til að koma þeirri uppsöfnuðu vitneskju, sem hinir öldruðu höfðu aflað sér um ævina, vel og tryggilega til skiia til nokkurra kynslóða eftirkomenda sinna. Náttúrulegt Sambland Cro-magnon-menn ruddu sér til rúms svo skyndilega fyrir um það bil 35000 árum á landsvæðum þeim, er áður höfðu verið byggð Neanderthals-mönnum, að svo gæti virzt, að þessi nýja, sigursæla aðvífandi manngerð — Cro-magnona- hafi hreinlega geystst inn í Evrópu, og í leiðinni gert útaf við hina frumstæðari frændur sína, sem kenndir eru við Neanderthal. Nýlegir, stór- merkir steingervinga-fundir þylq'a á hinn bóginn benda eindregið til þess, að ofan- greind ályktun sé röng. Mannfræðingar telja sig núna geta rakið rætur Cro-magnon- manna til suðurhluta Afríku, þar sem fram komu fyrir um 70 þúsund árum manngerð- ir, sem að hluta reyndust fyrirrennarar nútímamannsins, að sumu leyti einungis vísar að mannverum, er ekki stóðust hinum snúning á þróunarferlinum og dóu út. Ef til vill voru hinar nýju manngerðir einfald- lega afsprengi tilviljunarkenndrar stökk- breytingar og náttúrulegs vals hinna hæfustu; þetta eru venjulegar ljósmæður nýrra tegunda. Mannfræðingurinn Fred Smith við Tennessee-háskóla í Bandaríkjun- um grunar á hinn bóginn, að annað afl hafi í raun og veru verið þama að verki — það er að segja ný tækni í höndum manna. Ein- hver uppfínning — ef til vill betri aðferð til að smíða eggvopn — mundi t.d. hafa gert stóran, kraftmikinn mannslíkama ónauðsyn- legan þátt í að lifa af. Þróunarferillinn gat þá orðið sá að mynda fremur grennri, ekki eins grimmúðgar manntegundir. Fýrsta uppfínningin mundi þá einnig hafa örvað heilastarfsemi uppfinningamannsins og gert hann enn snjallráðari. Þau þáttaskil höfðu þar með orðið, að í fyrsta sinn á þróunar- ferli lífs á jörðu hafði menningin lagt líffræð- inni lið sem aðaldriffjöður framþróunar hjá einni tegund, og alveg ný manngerð — afar lík Cro-magnon-mönnunum — varð smátt og smátt til. Hin nýja manngerð kom fyrst fram á sjónarsviðið í sunnanverðri Afríku fyrir 50 þúsund árum, í norðanverðri Afríku og í Mið-Asíu fyrir um það bil 40 þúsund árum og svo í Evrópu nokkrum árþúsundum síðar. Þetta kann að gefa til kynna reglulega þjóð- flutnigna eftir endilöngum heimsálfunum þremur, Afríku, Evrópu og Asíu, en vísinda- menn nú á dögum draga stórlega í efa, að frumforfeður okkar hafí verið haldnir því- líkri flökkunáttúru. Að áliti mannfræðings- ins Eriks Trinkaus við háskóla New Mexíkó-fylkis í Bandaríkjunum, hefur það fremur verið þannig, að nokkrir af nýjustu manngerðinni hafi í fyrstu blandað blóði við Neanderthal-nágranna sína. Afkvæmi þess- arar blóðblöndunar manngerðanna tveggja hafi síðan haldið sig við sama heygarðs- homið í makavali sínu og haldið áfram að blanda blóði við Neanderthals-mennina fyrir norðan; þannig hafi Cro-magnon-erfðavís- irinn borizt æ lengra til Asíu og Evrópu. Mannfræðingar hafa fundið steingervinga í Asíu og Afríku, sem virðast helzt vera böm þess konar blóðblöndunar milli áðumefndra tveggja manngerða frá ísöld. Evrópubúar Verða Til Nokkram árþúsundum síðar gæti hinn framþróaði Cro-magnon-maður sem bezt verið á gangi á götum Parísar nútímans, án þess að skera sig á nokkum hátt úr öðram vegfarendum í útliti, hefði höfuðhár hans verið klippt að hætti nútímamanns, andlitið vel rakað, og hann klæddur fötum eins og þau gerast nú á dögum. Þegar ætt- bálkar af Cro-magnon-upprana vora teknir að dreifast um Vestur-Evrópu, reyndist munurin á þeim og hreinræktuðum Neand- erthals-mönnum svo mikill, að smám saman hafa á einhvem hátt orðið algjör umskipti á íbúum álfunnar Cro-magnon-fólkið átti á allan hátt auðveldari leik með ráðsnilld sinni og aðlögunarhæfni í samkeppninni við hina mun frumstæðari Neanderthals-menn, er voru vitsmunalega á miklu lægra stigi held- ur en hinir aðvífandi Cro-magnon-menn. Þá þegar hefur það sennilega verið orðið Áfangaskil á langri leið Fyrir 2 milljónum ára Fyrir 100 þús. árum Fyrir 35 þús. árum Fyrir 32 þús. árum Fyrir 29 þús. árum Fyrir 27 þús. árum Fyrir 23 þús. árum Fyrir 17 þús. árum Fyrir 12 þús. árum Fyrir 7 þús. árum Homo habilis: Fyrsti verkfærasmiðurinn Homo sapiens neanderthalensis: Neanderthalmaðurinn Homo sapiens sapiens: Cro-Magnon maðurinn • Flautan — fyrsta hljóðfærið sem um er vitað • Hellamyndirnar • Smástyttur (Venusar) • Nálin kemur til sögunnar • Spjótvarpan • Bogi og ör • Isöld endar LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. OKTÓBER 1987 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.