Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Qupperneq 9
GUÐMUNDUR DANÍELSSON Endalok Hvað getur orðið skáldi skelfilegra en skilja ekki að það er hætt að lifa og þjóðin veit, að það er loksins dautt? Sjá má þó ennþá skugga þess að skrifa, skrjáfar penni á blaði, en húsið autt og yfirgefið, hrörlegt, snjáð og snautt. Afvelta liggur út við rúðu fluga í andaslitrum, fætur krepptir tifa. Umferðarljósið týrir rökkur-rautt. Það græna er löngu slokknað og kviknar ekki framar. I regnið starir blint og kalt og blautt. Höfundurinn er þjóðkunnur rithöfundur og býr á Selfossi. JÓHANN ÁRELÍUZ Samhljómur tíðarandans — brot — / mig knýr þörf og þrá að brenna ljóð á tungu þjóðarinnar, slá samhljóm tíðarandans: streng í hörpu Islands og jarðar gervallrar, flasða grænum angandi tónum um augu og eyru samlandans: ó lífsins blóm og brum! II ég hold og blóð flugfiskur gangandi andi sem deyr aldrei blóð mitt bijálað og heitt heilinn sviflétt eyja á svölu vatni heilabúsins ég III jökulkaldur var febrúar og blár á ís fiskur á disk ís-Iand og vertíð minninganna ... ég tendra tón öldunnar án fískimiða óralangt inni í grænni skelinni langferðir strandir og djúp IV hér er dagur fagur og blágrár tónn inni í mér klukka feit og gul samhljómur tíðarandans hjartað æðasláttur blóð mitt bijálað og heitt... Höfundurinn er frá Akureyri en býr í Svíþjóð. Ljóðið er úr nýrri Ijóöabók hans, Söngleik fyrir fiska, en áður gaf hann út Ijóðabók 1983. myndafræðilegu oki konseptsins — enda eru myndlistarmenn litlir hugmyndafræðingar — og fögnuðu nýfengnu frelsi með ærslum og kátínu. Hvergi birtist það betur en í lista- hátíðinni Gullströndin andar árið 1983. Kristján og fleiri ungar listaspírur höfðu fengið sér vinnustofur í Jötunshúsinu við hlið JL-hússins og hugmyndin kviknaði í samræðum þeirra. Gullströndin andaði svo sannarlega fersku og heilnæmu lofti inn í listalíf höfuðborgarinnar þá viku sem hátíð- in stóð og alla vega listamenn tróðu upp. Ekki löngu eftir að henni lauk þótti Krist- jáni svo kominn tími til að taka saman pjönkur sínar í Jötunshúsinu og halda utan til frekara náms. „Ég valdi að fara til Þýskalands aðallega vegna þess að þar var þetta „nýja málverk" f hvað mestum blóma og reyndar má segja að það hafí verið upprunnið þar — og kannski á Ítalíu. í Hamborg bauðst mér mjög góður prófessor, Bernd Koberling, en honum hafði ég kynnst á íslandi; hann hef- ur komið oft hingað til lands og mikið fengist við íslenska náttúru í verkum sínum. Námið í Hamborg fólst, eins og oftast er um myndlistamám á háskólastigi, einkum í því að ég fékk vinnuaðstöðu, uppörvun og félagsskap en hafði svo algert frelsi til að mála það sem mér sýndist. Koberling kom reglulega frá Berlín, þar sem hann er búsett- ur, og við ræddum um verk mín; hann setti fram sína skoðun og ég sagði honum hvað ég væri að reyna að gera. Þetta var allt saman mjög gagnlegt en skólinn kenndi mér kannski ekki sfst að listin er vinna. Hin svokallaða náðargáfa eða snilld felst aðallega í vinnunni sem skapast þegar sam- an koma þörf og þekking og skóli getur aldrei alið af sér skapandi list, það liggur f hlutarins eðli. Ég vona hins vegar að mér hafi tekist að bijóta til mergjar það sem skólinn hafði upp á að bjóða, þannig að eftir sitji einhver þekking. Frelsi til 'sköpun- ar öðlast sá einn sem kann að hrista hana saman við innri þörf sína, eins og ég var að segja, en lætur menntunina ekki verða sér hurðarás um öxl. Ég veit að skólaganga hentar ekki öllum en ég var mjög ánægður með dvölina í Hamborg og held að hún hafi nýst mér vel. Hamborg er líka mjög þægileg borg og þar var afskaplega gott að vera." Landslag Hefði ÞÓTT lítils Virði í Nýlistadeild — Tóku verkin þfn á námsárunum mikl- um breytingum frá því sem þú hafðir verið að fást við hér heima? „Að vissu leyti, já. Þegar ég kom út til Þýskalands hafði þessi ný-expressjónismi verið við lýði þar í tæpan áratug og þýskir málarar voru að verða búnir að nýta flest- alla möguleika hans, að minnsta kosti eins og þeir birtust í þröngum skilningi. Þótt ég hafi alltaf verið opinn fyrir áhrifum úr öllum áttum er ég lítið gefinn fyrir að apa hugsun- arlaust eftir öðrum og þess vegna fannst mér ég verða að byija að vissu leyti upp á nýtt; ég varð að fínna mér minn eigin far- veg innan listarinnar. Meðal annars í þeim tilgangi fór ég að mála landslag sem hefði líklega þótt alveg botninn f nýlistadeildinni á sínum tíma! En náttúran hefur alltaf ver- ið mér ofarlega f huga og landslagið kom Sókn, 1987. 200xl40cm. í kjölfarið, með misjöfnum árangri. Myndim- ar vom iðandi af fjöri og krafti; þróttmiklar, tjáningaríkar og oft grófar baeði að gerð og innihaldi; stundum abstrakt og fígúratíf- ar í senn; umfram allt expressjónískar enda hefur þessi bylgja verið nefiid ný-ex- pressjónismi. Hún var engin ný uppfinning á íslandi; sama hafði gerst nokkrum árum áður bæði í Evrópu og Ameríku og alls stað- ar var svipað upp á teningnum; menn voru dauðfegnir að varpa af sér þrúgandi hug- Vökudraumur, 1985. Illxl24cm. Ástarbrall, 1986. 250xl45cm. mér að góðu gagni á þessum tíma. Það má minna á að ég var alls ekki einn um það af myndlistarmönnum af minni kynslóð sem fór að mála landslag — sama gerðu ýmsir fleiri. Ég hugsa að landslagsverkin okkar hafí verið öllu expressjóniskari en fyrri landslagsmálverk, vegna okkar fortíð- ar, en ætli hafí samt ekki eitthvað svipað vakað fyrir bestu landslagsmálurum hér áður fyrr og okkur ungu mönnunum. Reynd- ar stóð þessi landslagsperíóða hjá mér ekki mjög lengi í þetta sinn, ég sýndi aðallega landslagsverk á samsýningunni á Kjarvals- stöðum ’84 en sfðan sneri ég mér að öðrum hlutum. Ég er hins vegar viss um að ég á eftir að fara aftur út í landslagið með einum eða öðrum hætti seinna meir.“ Landslagið sem Krisfján málaði voru aðal- lega svört drungaleg fjöll, jökulhellar og klakahröngl; hann fór meðal annars upp í Kverkfjöll til að leita sér að innblæstri. En svo sneri hann sem sé við blaðinu; alls kon- ar fígúrur og tákn og minni skutu upp kollinum í myndunum; bakgrunnurinn var í fyrstu kannski ólögulegt vélahrúgald en varð síðan æ óhlutbundnari. „Ég heyri því oft fleygt," segir hann, „að allt sé leyfílegt í listum á okkar tfmum. Vissulega eru möguleikamir fleiri nú en oft áður en frelsið er vandmeðfarið. Að skapa list er jafn vandasamt og endranær því við erum sífellt að bæta við þekkingu okkar og gildismatið breytist þar af leiðandi líka. Aukin þekking endumýjar þörfína fyrir nýj- ar hugmyndir og nýja list. Annars myndu gömlu meistaramir duga okkur enn þann dag í dag. Því þurfa listamenn stöðugt að vera að endurskoða sig og endurmeta stöðu sína og þetta á reyndar við um alla sem fást við listir, þar með talda gagmýnendur. Ella er hætta á að menn séu alltaf að heim- færa sömu gömlu tugguna upp á allt og alla. Að vfsu er ekkert nýtt undir sólinni en það er þó mismunandi skýjafar." Að Klæða Af Sér Kuldann — Og hvemig er veðrið núna? „Það er norðangarri! í myndunum mínum er ég að reyna að klæða af mér kuldann. Þessar myndir em með ýmsum hætti tengd- ar íslensku þjóðlífí, sér f lagi eins og það var áður fyrr þegar sjómennskan var allsráð- andi. Ég nota mikið ýmis minni úr sjó- mennsku og raða þeim saman á alla þá vegu sem mér fínnst henta en vil taka það fram að ég er alls ekki að segja sögur í þessum myndum. Sumir hafa þóst sjá áhrif frá súrrealisma f myndunum mínum en undir það get ég ómögulega tekið þótt ég geri mér að vísu grein fyrir því af hveiju menn láta sér detta það í hug. Annars ætla ég ekki að reyna að skilgreina sjálfan mig; það er hlutverk annarra. Eg held bara þessa sýningu og vona að fólk hafí eitthvað upp úr því að glfma við verkin. Hún er ákveðin niðurstaða og um leið uppgjör við tiltekið tímabil í lífi mínu. Ég hef árum saman leit- að lausna á sjónrænum vandamálum og verið að byggja mig upp til frekari átaka; ég ætla ekki að reyna að halda því fram að hún lýsi einhveijum voðalegum þroska — það væri óheiðarleiki — en hún sýnir þó þroskaferil minn síðustu þijú árin eða svo. Ég er rétt að byija!" LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. OKTÓBER 1987 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.