Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1988, Blaðsíða 15
Glaðir ferðafélagar frá síðastliðnu vori á Mallorca.
Haustferðir að hefjast
hjá eldri kynslóðinni
Aðalferðamannatími sum arsins er að baki — börn, unglingar,
foreldrar að mestu horfin af sólarströndum Spánar, Mallorca,
Júgóslavíu og víðar. En yngri kynslóðin er vart farin heim þegar
sú eldri tekur við og einmitt núna er eldra fólkið að ferðbúa sig
eða er farið á sólarstrendur. Heimilislegur og hlýr andi var inn-
an dyra í Félagsmiðstöð aldraðra í Hvassaleiti 56-58 — þaðan eru
skipulagðar og seldar innanlandsferðir fyrir aldraða á vegum
Reykjavíkurborgar og hjá Önnu Þrúði Þorkelsdóttur, deildar-
stjóra í Félagsmáladeild aldraðra, var eins og á ferðaskrifstofu,
fólk að koma og borga inn á miða í næstu ferð; tyllti sér gjarn-
an niður og rabbaði um ferðina í sumar eða fyrirhugaða ferð
og „hvað það var nú gaman í fyrrahaust — skyldi það verða jafn-
gaman núna“.
Utanlandsferðir á vegum
Reykjavíkurborgar frá 1977
— Er sá tími kominn Anna, að
fólk geti notið þess að vera gam-
alt, ferðast og skemmta sér? „Ég
er nú reyndar alveg á móti þessum
kynslóðaskilum, búin að fara í
innanlandsferðir með eldri borg-
urum í 13 ár og 10 ár í utanlands-
ferðir, fínnst ég vera ein af hópn-
um. í ferðunum ríkir oftast afar
léttur og afslappaður blær, hópur-
inn kann að skemmta sér, fólkið
fróðleiksfúst og mjög þakklátt
fyrir allt sem fyrir það er gert.
Reykjavíkurborg á vegum félags-
starfs aldraðra hefur frá 1977
sent fólk í utanlandsferðir, eina
til tvær áður og staðið mjög vel
að þeim, alltaf sent sérstaka far-
arstjóra og hjúkrunarfræðinga
með og ferðimar urðu stöðugt
vinsælli.
Vant góðri þjónustu
í fyrra brá svo við, að yfir 300
manns vildu fara með okkur, ferð-
imar vom orðnar of fjölmennar
til að Reykjavíkurborg gæti staðið
fyrir þeim og ferðaskrifstofur
tóku við. Ferðirnar vom boðnar
út til ferðaskrifstofa og hagstæð-
asta tilboðinu tekið, en nú verð-
leggja ferðaskrifstofumar ferð-
imar, en samkeppnin um far-
þegana er hörð og vonandi kemur
það ekki niður á þjónustunni við
þennan aldurshóp. Nokkrar ferða-
skrifstofur standa sig mjög vel
og halda áfram að senda hjúk-
mnarfræðinga og sérstaka farar-
stjóra með hópnum. En sama fólk-
ið fer ár eftir ár og er orðið vant
góðri og ömggri þjónustu — erfitt
fyrir það, ef á að breyta til allt í
einu og draga úr þjónustu.
Að hafa öryggi
til að njóta
Eftir að tekin var sú ákvörðun
að senda ekki starfsfólk úr félags-
starfínu, hafa ferðaskrifstofur
leitað til okkar og beðið okkur um
að fara með, þar sem skjólstæð-
ingar okkar vildu hafa einhveija
sem þeir- þekktu áfram með í
hópnum. Við Kristín fömm þvi
núna með Atlantik og Kolbrún
Ágústsdóttir með Úrvali, en þetta
gemm við í okkar sumarleyfi
núna. Samband fararstjóra og
hjúkmnarfræðinga við samheld-
inn hóp er vináttusamband, eins
og frænkur eða vinkonur séu með
honum og þannig er þetta mjög
þakklátt starf. Við emm vanar
að vera með í öllu og búum á
hótelinu, ef leita þarf til okkar -
hvort sem er á nóttu eða degi.
Fólk yfir 70 ára þarf sérstakt
öryggi - að einhver sé til staðar,
sem það þekkir og getur treyst -
aðeins með slíku öryggi getur það
notið dvalarinnar.
Verður að standa vel að
ferðum fyrir aldraða
Vissulega er mikil breyting á
þessum 10 ámm frá því að ég
byijaði sem fararstjóri, hvað
miklu fleiri geta bjargað sér á
erlendri gmnd, en á móti kemur
að heilsu getur verið farið að