Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1989, Blaðsíða 14
Rómverskar rústir við Volubiliíí.
á sínum tíma reistur fyrsti há-
skóli í heimi, er dagur í gömlu
borginni ógleymanlegt ævintýri,
hvar þröngar, stundum yfirbyggð-
ar og örmjóar götumar hlyklqast
eins og í völundarhúsi upp og nið-
ur og fram og aftur. I Fes eru
fomar moskur og ein af mörgum
höllum Hassan konungs með
gullslegnum dyrum, ekki færri en
sjö að tölu. í Fes skyldu ferða-
menn líka festa kaup á teppi ef
það er á áhugasviði viðkomandi,
verðlag er gott og gæðin í sér-
Frá miðbæ Casablanca.
flokki.
Í Marokkó búa margir gyðingar
og á stærsta blaði landsins Le
Matin du Sahara, er dagsetningin
á þremur tungumálum, frönsku,
arabísku og hebresku. Allmargir
áhrifamenn em af gyðingaættum
og ísraelskir gyðingar sem eiga
ættir að rekja til Marokkó hafa
hin seinni ár leitað þangað í heim-
sóknir, þurfa að vísu að fara um
þriðja landið til að komast inn.
Hins vegar búa þeir gyðingar sem
fyrir em með aröbunum í friði.
Það er óhætt að mæla með
Marokkó sem áfangastað í leyf-
um. Menn geta notið sumars og
sólar, kynnst framandlegri menn-
ingu og arfleifð, siðum og venjum
sem er þó ekki stærri biti en svo
að hann rennur vel niður. Ekki
hvað síst ef dmkkið er með mintu-
teið sem Marokkómenn em fræg-
ir fyrir og verður seint oflofað.
Og viðmót fólksins er mér öldung-
is að skapi og sama má segja um
gestrisni þess og um mintuteið.
Þar verður ekkert ýkt.
- jk
Fróðleiksmolar
um ferðablöð
FERÐABLÖÐ af ýmsum toga eru býsna vinsæl lesning hjá þeim
sem eru oft á faraldsfæti. Hvort tveggja er að í þessum blöðum
birtast oft mjög gagnlegar upplýsingar og fallega myndskreyttar
greinar. Þessi blöð eru auðvitað sitt með hveiju mótinu og þau
eru sjálfsagt misjafnlega áreiðanleg, stundum er fullsterkur auglýs-
ingakeimur af efni sem þar birtist.
Þegar litast er um í bókabúðum
í Reykjavík er ekki um auðugan
garð að gresja, hafi fólk hug á
slíkum blöðum. Það má raunar
teljast furðulegt þegar skoðað er
í hillur ýmissa bókaverslana og
haft er í huga þau ógrynni tíma-
rita sem er þar að finna.
Breska mánaðarblaðið Business
Traveller kemur þó nokkuð reglu-
lega í sumar búðir. Traveller, sem
er bandarískt, sést stöku sinnum
— eða það selst svona snarlega
upp. Travel-Holiday, einnig
bandarískt, fæst stöku sinnum.
Breska ritið Executive Travel
sem mér finnst ásamt Business
Traveller vera eitt allra besta hef
ég aldrei séð í búðum hér.
Kostimir sem prýða m.a. Busi-
ness Traveller og Executive Travel
eru einkum þeir að þau eru að
mjög litlu leyti auglýsingatengd.
Mér hefur virst að upplýsingar
þeirra séu afar áreiðanlegar og
sérstakur kafli í hveiju riti Busi-
ness Traveller með upplýsingum
um fargjöld til hinna ýmsu staða
í heiminum eru gagnlegar o£ end-
urskoðaðar við allar breytingar.
Að þessu er mikill fengur. í því
blaði er sömuleiðis listi yfir verð-
gildi gjaldmiðla flestra landa, veð-
urfar og hátíðisdaga. Úr slíku má
lesa mikinn fróðleik.
Kosturinn við Business Traveller
og Executive Travel umfram flest
önnur ferðablöð er þó að mínu viti,
að greinar um aðskiljanleg efni eru
skemmtilegar og fróðlegar. Aukin
heldur eru þau fjölbreyttari að efni
en bandarísku ferðablöðin sem
hefur rekið á mínar fjörur; þau
bandarísku gera sjaldnast neinu
skil að ráði utan Bandaríkjanna.
Með undantekningum þó.
Svo eru fleiri gerðir af ferða-
blöðum, sem er ástæða til að nefna.
Langflest flugfélög gefa út rit sem
er dreift í flugvétum og þó að fyr-
ir komi að full áberandi glansmynd
sé dregin upp, er þar oftast að
finna leiðbeiningar sem koma að
gagni. Þó ekki væri nema um flug-
völl og komu í því landi sem er
verið að fara til og alls konar hag-
nýtir punktar þar að lútandi. Sjálf-
sagt er að hvetja fólk til að glugga
í þessi blöð á flugi og taka þau
með sér að ferð lokinni.
í þessum flugfélagsblöðum er
langoftast ein grein eða jafnvel
fleiri sem flalla um landið og fólk-
ið og hvað sem áðumefndri glans-
mynd líður á stundum, geta sumar
sem eru ekki of hástemmdar verið
ágætis lestrarefni.
Á síðustu árum hafa sprottið
upp eins og gorkúlur alls konar
ferðaklúbbar og margir þeirra gefa
út sérstök blöð sem er misjafnlega
mikið í lagt. Þessir ferðaklúbbar
eru að ég held upprunnir í Banda-
ríkjunum og Austurlöndum fjær,
nánar tiltekið Hong Kong. Þeir
heita félögum sínum afslætti á
hótelum — oftast dýrustu hótelum
á hveijum stað að vísu, svo að
venjulegur ferðamaður notar sér
það tæpast. Bílaleigubíla með vild-
ar kjörum og alls konar bónus ef
dvalið er á vissum stöðum. Síðan
eru gefnir punktar fyrir og hægt
að „safna“ uns tilsettum fjölda er
náð, en þá taka við boð um enn
frekari ferðalög, hnattferðir og
hvaðeina af girnilegum varningi.
Sömuleiðis eru í boði tryggingar.
Og svo mætti lengi telja.
Meðal ferðaklúbba sem ýmsir
þekkja hérlendis er IAPA og all-
margir eru félagsbundnir í, þeir
gefa út blað fjórum sinnum á ári
sem heitir First class og má gera
því skóna að í hveiju blaði sé að
minnsta kosti ein ágætis grein.
Annar klúbbur, sem hefur íslenska
félaga innan sinna vébanda, er
FBTC-Frequent Business Travel-
ers Club og hefur aðalbækistöðvar
sínar í Hong Kong. Þeir hafa verið
með fréttabréf og stundum er
klúbburinn skrifaður fyrir sérútg-
áfum á ritinu Chiná Pacifíc sem
er vandað blað. Best þeirra ferða-
klúbbablaða sem ég hef gluggað í
er Traveler (ekki átt við samnefnt
rit sem ég minntist á fyrr og er
bandarískt) sem Wexas-klúbbur-
inn í Bretlandi gefur út fjórum
sinnum á ári.
Það er vitanlega undir öllu
mögulegu komið hvað helst vekur
áhuga þegar litið er í ferðablöð.
En hvert með sínu móti eru þau
forvitnum og áhugasömum ferða-
löngum — hvort sem er á ferðalagi
eða við undirbúning — uppspretta
og þau bæta við vitneskju sem oft
er fátækleg fyrir. Þar með getur
ferðin orðið skemmtilegri og við
haft af henni meiri ávinning fyrir
bragðið.
jk
Smnar-
tilboð frá
hótelum
íKaup-
manna
höfii
Nítján af stærstu
hótelunum í Kaup-
mannahöfn hafa sam-
einast um að bjóða
ódýran „Kaupmanna-
hafnarpakka". Hótelin
bjóða 30-45% afslátt á
gistingn og morgun-
verði. Böm undir 12
ára borga um 730 kr.
í herbergi með foreldr-
um og eldri böm um
1460 kr. Kaupmanna-
hafiiarkort er innifa-
lið, sem gefiir ókeypis
aðgang að um 40 söfii-
um, í strætivagna og
lestir innan borgarinn-
ar, í Tívolí og afslátt á
miðum í „Sirkusinn"
og með ferjunni yfir
til Svíþjóðar. Gestimir
fá kortið, um leið og
þeir skrá sig inn á hót-
elin.
Tilboðið gildir frá 23.6.
til 6.8. Lágmarksdvöl er
gisting í tvær nætur.
„Kaupmannahafnarpakk-
ann“ er hægt að panta hjá
ferðaskrifstofiim, á
„Grand Hotel“ eða lijá því
hóteli, sem gist er á.