Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1989, Síða 15
Skotland;
Flugiiveiöiskóli í
stanffaveiðiparadís
Skotland er ekki lengra í burtu
en svo, að það tekur innan við
tvær klukkustundir að fljúga
þangað. Þar er víða afar fallegt
landslag og skemmtilegt smá-
þorpamannlíf, ekki síst í Hál-
öndunuin og Scottish Borders.
Margir íslendingar hafa átt
erindi til Skotlands, í nám,
verslunarferðir og fleira.
Nokkrir íslendingar hafa farið
þangað til að reyna laxveiðina
sem þykir víða góð þar um slóð-
ir . Nú vinnur Ferðaskrifstofan
Ferðabær að því að setja saman
pakkaferðir fyrir íslenska
sportveiðimenn til Skotlands.
Það er eitt og annað í boði, t.d.
fluguveiðiskóli með þekktum
snillingum í kennarastólunum,
lax- og silungsveiði í frægum
ám eins og Tweed, Dee og Don
og síðast enn ekki síst einhver
Qölbreytilegasta skotveiði sem
völ er á þótt víðar væri leitað
Ferðablaðinu gafst kostur að
skoða aðstæður og aðbúnað á
þeim slóðum sem um ræðir, lax-
og silungsveiðisvæði í ánni Tweed
sem er sennilega besta laxveiðiá
Skotlands. Þar sem Ferðabær
mun bjóða Islendingum að veiða
er gisting í Tweed Walley hótel,
sem er fjögurra stjörnu sveitahót-
el. Heimiiislegt og snyrtilegt. Og
við Dee og Don þar sem völ er á
fjölbreytilegri gistingu og að-
búnaði Hótelið og þau veiðisvæði
sem eru í boði við Tweed eru frem-
ur ofarlega og laxveiðin verður
þar fyrst boðleg er halla tekur
sumri. Er best í október og nóvem-
ber. Aftur á móti er góð siiung-
sveiði í ánni allt sumarið, urriði
sem vegur að jafnaði eitt til tvö
pund. Og svo er regnbogasilungur
í nokkrum íjallatjörnum. Dee er
betri er líða tekur á, en Don er
fyrst og fremst frábær silung-
sveiðiá, en þó með von um lax
hvenær og hvar sem er.
Fluguveiðiskólinn í Tweed Wal-
ley Hotel á sér aldarfjórðungs
langa sögu og þangað koma fær-
ustu kennarar til starfa. Hann
hefst þegar í þessum mánuði og
standa námskeiðin í viku í senn.
Á laxveiðum í ánni Dee.
Það er farið í gegn um allt sem
heyrir undir veiði og stæra kenn-
ararnir sig af því að segja engum
að eitthvað eigi að vera svona og
svona. Þeir leggi línur og leyfi svo
sérviskum og töktum hvers og
eins að njóta sín sem best, hvort
heldur um er að ræða fluguköst,
hnýtingar eða val á flugum og
mat á aðstæðum. Meðal námsefn-
is má auk þess nefna þurrflugu-
kennslu, en það gæti verið afar
áhugavert. Fáir íslendingar
kunna þá veiðiaðferð, skilyrði á
íslandi hafa verið talin óhagstæð.
En til þess eru vígin að fella þau
og þeir fáu íslendingar sem hafa
lagt sig eftir því að veiða með
þurrflugu hafa fengið hörkuveiði
við vissar aðstæður þegar annað
hefur brugðist.
GG
Lj ósmyndaferðir
í ColoradoQöllum og á ótroðnum slóðum í Idaho-fylki
Ljósmyndun er áhugamál
margra ferðamanna. Ef
myndavélin gleymist heima, er
ferðalagið oft að hluta eyði-
lagt! Allir halda að þeir geti
tekið myndir, en oft kemur
annað í ljós að loknu ferðalagi!
Töluvert er um ferðatilboð, þar
sem fagljósmyndarar fara á
myndrænar slóðir með ferða-
menn og sýna þeim hvernig
þeir ná bestum árangri í Ijós-
myndun. Ferðablaðið kynnir
hér skipulagðar ljósmynda-
ferðir um slóðir, sem fáir ís-
lendingar þekkja.
FERÐIR 16.-19. OG 19.-22.
JÚLÍ: Verndun náttúru og um-
hverfis er tilgangur ljósmynda-
ferða, út frá og í fjallabænum
Crested Butte í Coloradofjöllum —
námubær, með sögu aftur til árs-
ins 1870. Villigróður fjallanna
umhverfis bæinn verður í fullum
blóma á tíma ljósmyndanámskeið-
anna. Þátttakendum verður skipt
í hópa eftir getu og reynt að
tryggja að þeir snúi aftur heim
með betri þekkingu í ljósmyndun,
en líka með meiri tilfinningu fyrir
náttúru og verndun umhverfis.
Upplýsingar: Westcliffe Publis-
hers, P.O.Box 1261, Englewood,
CO 801560. Sími:(800)523-3692
eða (303)935-0900.
SIGLINGAFERÐIR FRÁ JÚNÍ
FRAM í OKTÓBER: Á hveiju
sumri eru skipulagðar 3-6 daga
ferðir út frá Mackay Bar í Alaska
um einar stórbrotnustu óbyggðir
í Bandaríkjunum. Ár og vötn eru
þrædd, t.d. í „Salmon" og „Middle
Fork“. Siglt er með árabátum og
þátttakendur fá næg tækifæri til
að ljósmynda, liggja í sólbaði eða
stunda silungsveiðar. Og dýralíf
á þessum slóðum er fjölbreytt —
skógarbirnir, otrar, fjallageitur og
jafnvel fjallaljón.
Upplýsingar: Mackay Bar, Ida-
ho’s Wilderness Company, 3190
Airport Way, Boise, ID 83705.
Sími: (800) 635-5336 eða (208)
344-1881.
Margt getur orðið myndrænt ef réttri ljósmyndatækni er beitt
Fjallasauðkindin með stóru hornin er forvitnilegt ljós-
myndaefni.
Ferðamenn í hjólreiðaferð um Danmörku.
Nýir bæklingar um hjólreiðaferðir í Danmörku;
Hjólið um Danmörku
- segja Danir
Danmörk er kjörið land til
hjólreiða. Hæsti punktur yfir
sjávarmáli er hið 173 metra
háa fjall „Himmelbjerget“ —
kostuleg nafhgift í augum ís-
lendinga og gott að muna það
í barnaskóla. En Danmörk er
ekki alveg flöt heldur smá-
hæðótt, svo að sjónarhringur
breytist aðeins í beygjum og
bugðum. Danir eru farnir að
sjá, að ferðamenn njóta þess
að hjóla eins og þeir sjálfir
og nú streyma fram upplýs-
ingabæklingar til ferða-
manna, með skipulögðum hjól-
reiðaferðum, með kortum yfir
hjólreiðastíga og margskonar
afþreyingu í tengslum við hjól-
reiðaferðir.
Og þar sem hjólreiðar eru
holl íþrótt, tengja Danir ferðatil-
boð á reiðhjólum við heilsurækt
og bjóða upp á safaríferðir, með
líkamsrækt og heilsufæði eða
það sem þeir kalla „græna ferða-
þjónustu" og holla útivist. Land-
svæði sem sérstaklega er mælt
með fyrir hjólreiðar eru: Fjónn
og eyjar, Borgundarhólmur og
Kaupmannahafnarsvæðið.
Ferðaskrifstofur viðkomandi
staða eru tilgreindar og tekið
fram hveijar eru með reiðhjóla-
leigu, skipulagðar hjólreiðaferðir
eða ferðatilboð.
Upplýsingar um safatýferðir á
hjólum hjá „Dansk Cykel Safa-
ris“ í síma: 01 11 11 75. Upplýs-
ingabæklingar hjá „Danmarks
Turistrád, Vesterbrogade 6 D,
DK-1620, Kobenhavn V“, sími:
01 11 14 15, hjá „Dansk Cyklist
Forbund" og ferðaskrifstofum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. MAÍ 1989 15