Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1989, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1989, Qupperneq 13
Sykurreyr vefur um helming eyjarinnar. WHpnnmimnnnBaHMBMi ÍbasUiÍ 4>t; ■ V- ''*■ ‘111 'iíi" > ' •; T>*1 A-Íj■> 'I.Ci\>(.?( -■J'-'.i-ii';v -’J-lfl/Víc i m. t$ LESBÓE [mi@[rj!gj u [n|[b;llí[aJ[p]lsi[7][n] s 19. AGUST 1989 FERÐ4BMÐ Sega-dansinn er sagður eiga uppruna sinn í því að afrískir þrælar koniu saman á ströndinni á kvöldin áður fyrri og leituðu sér hugarhægðar eftir púl á plantekrunum í dansi og söng. Máritíus Máritíus er um fjögur hundruð kílómetra austur af eynni Madag- asgar. Þetta er fjarska lítið land, innan við tvö þúsund ferkíló- metrar að stærð. Það er sjálfstætt ríki innan Breska samveldisins og fékk sjálfstæði árið 1968. Máritius hafði þá verið undir breskri stjórn i um hundrað og fimmtíu ár. Bretar höfðu náð eynni af Frökkum, sem riktu þar áður. Franskra og breskra áhrifa gætir í ríkum mæli. Máritíus er ákaflega falleg eyja, helmingur hennar vaxinn sykurreyr og hefur sykur lengi verið mikilvægasta framleiðslu og útflutningsvaran. Eftir að sykur- verð lækkaði í heiminum hefur stjórnin ýtt undir iðnað með dijúg- um árangri. Umhverfis 160 kíló- metra langa strandlengjuna eru kóralrif og á þeim finnast fagrar perluskeljar sem ferðamenn eru sólgnir í. Aður og fyrrum var eyjan öll skógi vaxin en Hollendingar sem settust að á Máritíus um hríð í lok 16. aldar hjuggu skóg í skip og vildu rýma til fyrir sykurreyrnum sem þeir fluttu með sér frá Aust- ur-Indíum. Á síðustu öld hófst mikil skógrækt á Máritíus svo að þar eru nú stór skógarflæmi. Gestir sem leita tii Máritíus hrífast af mörgu á eynni. Lands- lagsfegurðin og veðursæld er mik- il. Sjóstangaveiði er iðkuð út af suðurströndinni, veiðar í ijöllun- um þykja eftirsóknarverðar, þær eru undir eftirliti og á ákveðnum árstíðum. Þar eru hótel af öllum stærðum og gerðum, en sjálfsagt er að taka fram að gisting er fremur dýr. Mörg hótel bjóða upp á fullt fæði og þar með missir gesturinn af þeirri reynslu sem mér finnst að minnsta kosti afar skemmtileg á ferðalögum; að finna litla og girnilega staði þar sem maturinn er bæði ódýrari og yfirleitt betri en á stærri hótelum. Langflestir koma til Máritíus að njóta sólar og fegurðar en eyj- an býður upp á miklu meira. Mannlíf er fagurt og ég leyfi mér að ætla að Máritíus sé eitt fárra landa í heiminum, þar sem fólk af öllum kynstofnum, litarháttum og trúarbrögðum býr saman í sátt og samlyndi. Allir eru jafn- réttháir og ekki örlar á mismunun. Um helmingur íbúanna eru af indversku bergi brotnir; forfeður þeirra voru fluttir sem þrælar til Máritíus á tímum Hollendinga og Frakka. Allmargir eru afkomend- ur afrískra þræla frá Austur- Afríku og Kínverjar eru nokkuð fjölmennir. Evrópubúar hafa verið á Máritíus frá því Hollendingar námu þar land og vitanlega hefur orðið blöndun innan þessara kyn- stofna. Höfuðborgin er Port Louis, þar eru helgistaðir allra,kirkjur, moskur hof. Þjóðminjasafnið er auðvelt að finna í miðbænum; þar getur að -líta uppstoppaðan dodo- fuglinn. Dodo-fuglinum var út-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.