Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1989, Qupperneq 16
fil
B
Eini Saab-bíllinn í Víetnam.
Eini Saab-inn í Víetnam?
Þeir segja að þetta sé eini
Saab bíllinn í Víetnam og
heimildin er fréttabréf
Saab fyrirtækisins , í
Sviþjóð. Eigandinn,
Dao-Huynh-Long, skrif-
aði nýlega til verksmiðj-
anna og sagði að bíllinn
hefði verið keyptur til Saigon árið 1958 en
hann er af gerðinni Saab 93B. í fréttinni
segir að 108 slíkir bílar hafi verið seidir árið
1958 til landa utan Evrópu og þama sé einn
þeirra kominn, trúlega sá eini sem hafnaði í
Víetnam.
Long hælir bílnum sínum á hvert reipi i
bréfinu til verksmiðjanna og segir hann
skemmtilegan í akstri, sterkan, öruggan og
hagkvæman í rekstri. Svo sem sjá má á
myndinni virðist bíllinn líta vel út en þeim
Saab-mönnum finnst hins vegar sem hjólin
geti vart verið upprunaleg og það hljóti að
hafa kostað talsverð heilabrot að koma þeim
undir.
Sala hjá Saab á þessu ári hefur gengið
allvel. Meðalsöluaukning mánuðina janúar til
apríl miðað við sömu mánuði á síðasta ári
hefur verið 6%. Seldir voru 39.000 bílar þessa
mánuði í ár en 37.600 í fyrra. Meðalsöluaukn-
ing i Vestur-Evrópu varð 18%, í Asíu 27% en
á Bandaríkjamarkaði hefur Saab hins vegar
orðið að þola um 16% minni sölu. Mest aukn-
ing varð á Ítalíu eða 43% þar sem seldust
nærri 2.000 bílar, í Vestur-Þýskalandi varð
aukningin um 27% og seldust þar alls 2.200
bílar, aukningin varð 14% í Bretlandi eða
4.100 seldir bílar, í Frakklandi seldust 1.000
bílar sem var 15% aukning. í byrjun áratugar-
ins hóf Saab markaðssetningu í Asíulöndum
og hefur hún verið að skila sér á síðustu
árum. Varð 30% söluaukning í Japan á fyrsta
hluta ársins þar sem seldust 850 bílar og
svipaðar tölur eru um söiu í Taiwan og Hong
Kong.
Nissan Maxima
í Bandarfkjunum
Verðlaunaður
fyrir þægindi
í viðhaldi
issan Maxima, lúxus-
bíllinn sem hannaður
var sérstaklega fyrir
Bandaríkj amarkað,
heldur áfram glæsi-
legri innreið sinni þar
í landi. Fyrr í sumar
hlaut hann sérstaka
viðurkenningu fyrir að vera auðveldur og
þægilegur í viðhaldi og viðgerðum.
Tímaritið Home Mechanix tekur til skoðun-
ar hveija árgerð bílaflotans og metur öryggi,
aksturseiginleika, útlit og þægindi en sérstak-
lega eru skoðuð atriði eins og hvernig sé að
annast viðhald hvort heldur sem leikmenn eða
bifvélavirkjar eiga í hlut. Við þessa athugun
er í raun leitað að bíl þar sem skynsemin
ræður í vélarhúsinu og ekki spillir ef aksturs-
eiginleikar eru taldir góðir.
Hjá Maxima var þetta fyrir hendi, þar er
sagt þægiTegt á allan hátt að komast að til
viðgerða og fékk hann einkunina A+. Undir
vélarlokinu er sagt gott rými, þægilegt að
komast að síum og hosum, hemla- og vökva-
Þeir náðu fjórða sæti eftir rallsumarið
1988 á óbreyttum Subaru 1800 RX
Turbo, Óskar Ólafsson og Jóhann Jóns-
son.
Nissan Maxima hefur fengið góðar móttökur í Bandaríkjunum.
stýrisbúnaði og kveikjukerfi. Þá segir að auð-
velt sé að fara í hemlaviðgerðir og yfirleitt
þurfi lítið af sérhönnuðum verkfærum og
handbók bílsins er líka hælt fyrir hversu að-
gengileg og upplýsandi hún sé.
Meðal þeirra bíla sem hafa á síðustu árum
fengið viðurkenningu fyrir að vera þægilegir
í viðhaldi eru Buick Regal, Chevrolet Corsica,
Plymouth Reliant og Toyota Corolla.
í nýlegu fréttablaði frá Subaru segir að
rallökumönnum á íslandi hafi vegnað vel á
síðasta sumri í óbreyttum notuðum Subaru
1800 RX Turbo. Ökumennirnir voru Óskar
Ólafsson og Jóhann Jónsson og segir í blað-
inu að þeir hafi valið þennan bíl eftir vand-
lega athugun. Þeir hafi ekki orðið fyrir von-
brigðum því viðgerðarmenn þeirra hafi lítið
haft að gera meðan aðrir voru á kafi. Frásögn-
in endar á því að þeir félagar hafi lagt höfuð-
ið í bleyti til að finna bíl til að taka við og
þeir hafi að lokum komist að niðurstöðu: Nýr
Subaru 1800 RX Turbo.
Mengunar-
búnaður
sem eykur
eldsneytis-
nýtingu
Mengunarmál
eru sífellt meira
til umræðu
þegar bílar eru
annars vegar
og víst hefur
gífurleg fjölgun
bíla og_ aukin
notkun kallað á sérstakar aðgerðir. Á þetta
við um bíla og umferð erlendis en hérlendis
eru menn einnig að vakna til vitundar um
að þörf sé á að sinna mengunarvörnum. Út-
blástur bíla getur verið jafnmikill mengunar-
valdur á íslandi sem annars staðar í heiminum
og því full þörf á ákveðnum reglum sem koma
eiga til framkvæmda á næstu misserum um
útbúnað og aðgerðir í mengunarvömum. Um
þessar mundir er verið að koma á markað á
Islandi sérstökum búnaði sem eykur brennslu
og nýtingu eldsneytis sem þýðir að um leið
er dregið úr mengun í útblæstri bílanna.
Bandaríkjamenn tóku fyrir alimörgum
árum að velta fyrir sér aðgerðum til að draga
úr mengun í stórborgum. Árið 1972 voru
settar reglur um að bílaframleiðendur skyldu
gæta þess að allt eldsneyti skyldi brennt í
bílvélunum en því ekki sleppt út í andrúmsloft-
ið í svo og svo miklu magni. Mengunarbúnað-
ur var hannaður og honum komið fyrir við
útblástur þannig að það eldsneyti sem enn
var óbrunnið brann þar. Gallinn var hins veg-
ar sá að þessi búnaður jók eldsneytiseyðslu
bílanna og lengi var slíkur búnaður rifinn úr
bandarískum bílum er komu hingað til lands.
Búnaður sem kallaður er „Platinum GaSa-
ver“ hefur verið reyndur um nokkurra ára
skeið í Bandaríkjunum, meðal annars af neyt-
endaþjónustu þar í landi. Sýnir fjögurra ára
úttekt neytendaþjónustunnar að efnið eykur
bruna eldsneytis úr 68 í 90 af hundraði. Er
þar með dregið úr mengun í útblæstrinum
og þessi búnaður dregur líka úr þörf á blý-
bensíni þar sem hann eykur í raun oktantöku
bensíns. Einnig dregur efnið úr sótmyndun í
vél og hreinsar vélina.
Prófanir á efni þessu hafa staðið yfir hér-
lendis undanfarna mánuði og hafa atvinnubíl-
stjórar, bifvélavirkjar og opinberir aðilar tek-
ið þátt í þeim. Ákveðnar niðurstöður liggja
ekki fyrir ennþá en þeir sem sett hafa þenn-
an búnað í bíla sína segja að hann dragi stór-
lega úr eyðslu. Þannig taldi jeppaeigandi
eyðsluna hafa minnkað úr 20 í 16 lítra á
hundraðið í langkeyrslu og svipað var að segja
um fólksbíl. Svavar Haraldsson hjá bifreiða-
verstæðinu Túrbó hefur annast sölu og ísetn-
ingu þessa búnaðar. Er hann tengdur við
sogið á blöndungnum og þarf að tryggja jafnt
sog og segir hann því misjafnt eftir bílum
hvernig best er að koma honum fyrir. Nánar
verður íjallað um þennan búnað þegar niður-
stöður athugana liggja fyrir og verður frek-
ari markaðssetning skipulögð í framhaldi af
því.
Nýr BMW fáanlegur á næsta ári
N
annar slíkra meðal þ'
ýr BMW 850i verður
opinberlega kynntur í
haust á hinni árlegu
alþjóða bílasýningu í
Frankfurt. Hér er um
að ræða sportlegan
glíésivagn, með tólf
strokka vél og er hann
þýskra bíla. Bíll þessi
verður settur á markað á næsta ári.
Vangaveltum og getgátum þeirra sem
fylgjast með hönnun nýrra bíla er nú svarað
og er BMW 850i með 300 hestafla vél sem
getur komið bílnum úr kyrrstöðu í 100 km
hraða á skemmri tíma en 7 sekúndum. Há-
markshraðinn er kringum 250 km og menn
geta valið um sex gíra beinskiptingu eða raf-
eindastýrða sjálfskiptingu sem einnig býður
upp á þrenns konar aksturseiginleika.
BMW 850i er líklega frekar hannaður fyrir þýskar hraðbrautir en íslenska þjóð-
vegi.
4
16
H