Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Qupperneq 6
FERH4BMÐ jjKiggs Við Bodensee er merkilegur miðjupunktur í þá veru, að þar mætast Þýzkaland, Austurríki og Sviss, og Frakkland ekki langt undan. Rín rennur þarna framhjá dvergríkinu Lichtenstein út í vatnið og þetta enginn smá pollur; líka- iega um þriggja klukkutíma akstur meðfram því á lengdina. Við suð- austurendann gnæfa Alparnir og austurríski bærinn Bregenz er þar á bakkanum. Þýzkalandsmegin er röð bæja meðfram vatninu; Friede- richshaven þeirra mestur. Þessir bæir eru vinsælir dvalarstaðir túr- ista, ekki sízt fara Þjóðveijar þang- að sjálfir og í septemberlok var þar umtalsverður fjöldi eldri borgara og hótelin mjög ásett. Það kom ekki að sök, því við áttum bókað í gömlu og virðulegu hóteli gegnt járnbrautarstöðinni í Lindau Insel, þ.e. eyjunni í Lindau. Þar er elzti hluti þessa bæjar til húsa í afgömlum steinhúsum og göturnar svo þröngar, að bílar komast þar ekki. Ég hélt að ekki væri hægt að villast í ekki stærri stað, en það tókst nú samt og næsta furðulegt, hvað gat orðið flókið mál að finna hótelið. Löngum er auðveldara að komast leiðar sinnar í björtu og í morgunsólinni daginn eftir sýndist þetta allt svo einfalt. Lindau Insel - eyjan Lindau, eða Das grúne Lindau, eins og staður- inn heitir gjaman á auglýsingaplakötum, er ekki stærra svæði en svo, að það verður auðveldlega kannað á hálfum degi. Þvert yfir eyjuna miðja ligg- ur Maximilianstraze, aðal verzlunargatan m 'a * •*'«/- r . Gamli bærmn i Lindau erá eyju í Bodensee. Hand an vatnsins er Bregenz íAust- urríki ogaust- urrísku Alparnir, en aðeins snertu- spölvestarer Sviss. Bóndakona úr Svartaskógi kem- ur með afurðir sínará útimarkað íFreiburg: Margskonar osta, kökur og ber í krukkum. með fínum búðum eins og víða má sjá í Þýzkalandi. Þetta er dæmi- gerður labbitúrastaður, en ég kaus frekar að labba á golfvellinum; þangað er um 10 mínútna akstur austur og upp í landið. Völlurinn er í mishæðóttu skóglendi, fyrri 9 auðveldar, en margar langar og strembnar brautir á síðari helm- ingnum. Ég þóttist sleppa vel frá honum með 79 högg. Astæða er til að benda golfleikurum á að hafa með sér kort, sem staðfestir for- gjöf. Sjálfur hafði ég gleymt því og leit helzt út fyrir að ég yrði gerður afturreka. En svo vildi til að ég hafði verið viku áður að keppa á fjölþjóðlegu golfmóti i Dússeldorf og hafði fyrir tilviljun opinber mótsgögn með nöfnum og árangri meðferðis og það var tekið gilt. Daginn eftir var ætlunin að aka út með Bodensee, yfir Svartaskóg og til Freiburg. Enda þótt við ætt- um gistingu pantaða aðra nótt í Lindau, var ákveðið að kveðja stað- inn og halda áleiðis undir kvöldið til að stytta áfangann daginn eftir, Veitingahúsið Björn- inn er elzta vertshús íÞýzkalandi oghefur starfað óslitið frá ár- inu 1120. EKIÐ UM ÞYZKALAND - ÞRIÐJI OG SIÐASTI HLUTI: Lindau, í Svartaskógi er víða hálent og víðsýnt og svo virðistsem þorpin hafí staðið óbreytt frá ómunatíð. Svartiskógur og Freiburg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.