Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Blaðsíða 8
FERÐALÖG Aldarafinæli Agöthu Christie Agatha Christie fæddist í ferðamannabænum Torquay. „Ég er í góðum félagsskap," sagði Agatha 1972, þegar hún sá vaxmynd af sér hjá Madame Tussau í London! haldið hátíðlegt með pomp o g prakt í Devon og víðar Aðdáendur hafa hlaðist upp eins og hinar ílóknu morðgátur í 78 leynilögreglusögum Agöthu. Og þeir hafa kallað hana „þjóð- ardýrgrip", „býflugnadrottningu hins leyndardómsfúlla morðs“ eða „einstakt fyrirbæri“. Nú á að minnast aldarafmælis Agöthu Cristie, eins vinsælasta rithöfundar leynilögreglusagna á 20. öld, með röð af hátíðahöldum. Agatha er ennþá ein af mest lesnu glæpasagnahöfundum í heimi, þó 14 ár séu frá láti henn- ar. Bækur hennar hafa verið gefnar út í yfir billjón eintökum á ensku - og álíka magni a.m.k. á 44 öðrum tungumálum. 25. nóvember 1952 var byrjað að sýna „Músagildruna" í St. Mart- ins-leikhúsinu í London - sýning- ar standa enn, sem er heimsmet og 8 milljón manns eru búnir að sjá leikritið. í vaxmyndasafni Madame Tussaud í London má sjá Agöthu, umkringda af fræg- ustu leiðtogum heimsins. Suður-Devon er miðpunktur hátíðahaldanna, en Agatha fæddist og dvaldist lengst í hin- um vinsæla ferðamannabæ Tor- quay. Herbergi til minningar um Agöthu er í Torre-klaustri (frá 12. öld) á hafnarbakka Torquay. Þar má sjá Remington-ritvél Agöthu frá 1937, upprunaleg handrit og fleiri minjagripi. Agatha gat skrifað bók á 6-12 vikum - og samdi söguþráðinn, á meðan hún sat í baði og úðaði í sig eplum! Hátíðin í Torquay - eða „Leyndardómar á ensku Ríve- ríunni“ stendur yfir allt árið, en mest verður um dýrðir 8.-16. september. Austurlandahraðlest- in (líka 100 ára) kemur í heim- sókn, „morð-helgar“ á Manor House, hótelinu hans Magnúsar, og úrval sýninga á leikritum Agöthu. Torquay, 190 mílur í í herbergi Agöthu í Torre-klaustri í Torquay má sjá Remington- ritvélina hennar, upprunaleg handrit og fleira henni tengt. suð-vestur frá London, nær yfir þrjá bæi, Torquay, Paignton og gamla fískimannabæinn Brix- ham. Svæðið þykir mjög fallegt. Ferðir með leiðsögn um Suður-Devon, tengdar aldaraf- mæli Agöthu, eru í boði hjá: Wessex Heritage, St. Peter’s Cottage, Cattistock, Dorchester, Dorset DT12 OJD - frá tveggja nátta gistingu með morgunverði, 8.500 kr. - upp í sex daga lúxus- ferð með Austurlandahraðlest- inni, sem fer frá London 10. sept- ember, 83.000 kr. O.SV.B. 52 spil - kortleggja ferðalagið! lllSi Já, spil eru ekki lengur aðeins til leikja! En það skiptir ekki máli hvort þú ert þrautþjálfað- ur í brids eða hvort þú hefur aldrei snert á spilum, enginn er í vandræðum með að nota nýju korta-spilin, sem auðvelda ferðamönnum að rata um borg- ir eins og New York og Lon- don. Hvert spil er nákvæmt kort yfir lítið svæði innan borg- anna, en þegar öllum 52 spilun- um er raðað saman, kem- ur út stórt yfirlitskort. Afar hand- hægt að stinga spiia- pakka í vas- ann, ekki satt? Og fáir veita því at- hygli, þó að verið sé með litið spil í hendi á götuhorni í stórborg. Og nú er bara að spila borgarstrætin! „Map Deck“- spilin eru líka leiðarkort fyr- ir ferðamenn. sig í gegnum Korta-spilin eru teiknuð af J. Richard Block, sem safnar óvenju- legum spilum og hefur skrifað og haldið fyrirlestra um listrænan uppruna þeirra. Hann er núna að undirbúa útgáfu á kortaspilum fyrir Boston, Washington og Amsterdam. Ferðamenn þurfa aðeins að líta á eitt spil í einu yfir tiltekinn borgarhluta. Hveij- um spilapakka fylgir leiðarvísir. T.d. sýnir hjartasjöan kort yfir „Tower of London"! Hugmyndina af kortaspilunum fékk Block þeg- ar hann skoðaði spil frá 1676, sem sýndu kort yfír England og Wales. Spilapakkinn: um London og New York kostar um 370 kr. plús tæpar 100 kr. í flutningsgjald. Upplýsingar og pantanir hjá: Y&B Associates, 33 Primrose Lane, Hempstead, N.Y.11550. O.SV.B. Hvað býðst ferðamann- ínum í Þýskalandi í sumar Þjóðveijar eru háþróaðir í móttöku ferðamannna - og gefa árlega út góð leiðbein- ingarrit fyrir ferðamenn. Fyrsta mars tók nýr forsljóri við skrifstofii þýska Ferða- málaráðsins í Kaupmanna- höfii, Udo Grebe að nafiii. Skrifstofan er fyrir öll Norð- urlönd, veitir upplýsingar og sendir bæklinga ef óskað er. Fyrir upplýsingar um ferðalög innan Þýskalands, biðjið um „Welcome to Germany" og „Germany: Holiday dreams, íive“. Hinir nýútkomnu bækling- ar „Holidays in Germany ’90/’91“ og „Self-catering in Germany" eru fyrir fjölskyldur, eldri borgara eða ferðamenn sem ætla sér í skoðunarferðir um Þýskaland (í gildi fram í mars 1991 - þýskt verðlag er í föstum skorðum!) og sýna um 300 ferða- mannaþorp í Þýskalandi. Gistitil- boð eru frá 3-7 daga í hótelum í kyrrlátu umhverfí, þar sem bamafjölskyldur eru velkomnar. Vikuverð fyrir gistingu og morg- unverð frá 4.780 kr., en frá 8.070 kr. fyrir gistingu og fullt fæði. Ulm-dómkirkja, en í ár er þess minnst að 100 ár eru síðan hæsti kirkjuturn í heimi var fiillgerður. Efst á myndinni, í hægra horninu, er merki Ferðamálaráðs Evrópu. Af 2.000 þýskum tjaldsvæð- um, eru 400 skráð í „Camping in Germany" og gæðamerkt frá í ár er 500 ára aftnæli þýska póstsins. „góð“ upp í „mjög góð“. Einnig er hægt að fá bækling yfir 600 þýsk farfuglaheimili innan Al- þjóða farfuglasambandsins. Tíu akstursleiðum um Þýskaland er lýst í sérriti. Og alltaf er verið að bæta við nýjum feijuleiðum um ámar þijár, Main, Rín og Mósel. Úrval 23 feijuleiða í boði frá 13. maí til 14. október! - Og fyrir lestarflakkara ganga end- umýjaðar gufulestir frá 1930 og ’40 eftir ýmsum leiðum. Biðjið- -um„Nostalgia Tour“! „Events from April to October 1990“ er dagatal yfír allar vöru- og list- sýningar, leikhús, tónlistar- og menningarhátíðir, íþrótta- og útiskemmtanir um allt Þýska- land. Upplýsingar: Tysk Turist In- formation, Vesterbrogade 6 D, DK-1620 Kaupmannahöfn V. Sími: 33127095. Stærstu viðburðir á Ferðamála- ári Evrópu Nýlega var birt dagskrá yfir helstu viðburði Ferðamálaárs Evrópu, sem eru Iíklegastir til að draga ferðamenn til Evrópu á árinu. Og Ungverjaland er með í fyrsta skipti. Athygli er vakin á, að Evrópulöndin 24 leggja áherslu á að taka vel á móti ferðamönnum á Ferða- málaári. Meðal stærstu viðburða eru afmælin: Grikkland fagnar 2500 ára lýðveldisafmæli. Holland minnist þess að 100 ár eru liðin frá dauða Van Goghs. Þýska borgin Speyer er 2000 ára, Rott- erdam 650 ára, sænsku borgirnar Lund og Vásterás 1000 ára og Ennis á írlandi 750 ára. Allar borgirnar fagna með hátíðahöld- um og menningarviðburðum. Og ekki má gleyma menningarborg- inni Glasgow, sem oft er búið að kynna á þessum vettvangi, en þar verða yfir 1.500 viðburðir — þar á meðal ný óperuverk og stærsta „götuveisla" í heimi! (Frétt frá ferðamálanefind Evrópu)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.