Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Side 9
Swift er ferna dyra og er framdrifsgerðin fáanleg með 5 gíra beinskiptingu og sjálfskiptingu. Takið eftir hversu skotthlerinn opnast vel. Stór Suzuki Swift með aldrifi kannski iðulega of seinn að skipta niður þegar hann leggur í langa brekku úti á þjóðvegi eða er að skjótast fram úr. Suzuki er ekki í neinum vandræðum með að fleyta ökumanni sínum snögglega fram úr iestar- stjóra - það er nóg að fara niður í fjórða gír og kannski þriðja ef plássið er naumt - þá gengur alit vel og hann er fljótur að svipta sér framúr. Stýrið er nákvæmt og allgott á að taka en á þessari vökvstýris- öld mætti það að skaðlausu vera léttara. Swift er allmjúkur á sjálfstæðri gorma- tjöðrun sinni og hann er mjög skemmtileg- ur úti á vegi. Vélin er sérlega hljóðlát. Aldrifsbíllinn nýtur sín að sjálfsögðu mjög vel í hálku og úti á vegum þar sem ekið er í lausamöl á holóttum vegum og við mis- jöfn skilyrði. Þar á slíkur bíll best heima Farangursrýmið er allgott og opnast al- veg ft-á stuðaranum. Ökumannssæti er búið hefðbundnum stillingum og mæla- borð er vel útbúið. Suzuki bílar hf. í Reykjavík hafa nú tekið við innflutningi á Suzuki bílunum firá Japan og er fyrirtækið til húsa við Skeifúna. Nýlega kom tif landsins ný gerð af Suzuki Swift, eins konar stóri bróðir þess Swift sem við höfum kynnst síðustu árin og fjallað hefur verið um á bílasíðu. Suzuki Swift Sedan er full- vaxinn og sprækur, rúmlega fjögurra metra langur og þokkalegur fólksbíll, ferna dyra og búinn 1600, 91 hestafls vél, framdrifínn og er einnig fáanlegur með aldrifi. Litli bróðirinn er nú einnig boðinn með aldriii. Aldrifsbíllinn stóri kostar rúma milljón en hinar útgáfúrn- ar frá tæpum 800 þúsund krónum. Suzuki er að ytra útliti allra snotrasti bíll. Hann er ólíkur hinum litla bróður sínum og er auðvitað stærri og meiri, bíll sem óhætt er að gera nokkrar kröfur til. Utlínur eru allar bogadregnar og ávalar og framendinn lágur og straumlínulagað- ur. Grillið er því lítið og framljósin áber- andi og ná vel út á hornin. Stefnuljósin eru felld inn í stuðarann sem er aftur sam- tengdur svuntunni. A hliðum er listi í sömu hæð og stuðar- ar og á sama hátt og að framan er aftur- stuðarinn áberandi og síðan afturljósin. Nær ljósabrettið yfir þveran afturendann og gott rými er fyrir númeraplötu. í heild má segja að bíllirin samsvari sér vel og rúður er allstórar og gefa gott útsýni. Vel búinn bíll Suzuki er rúmgóður að innan og má segja að allvel fari um menn í framsætum sem aftursætum. Þó er hann varla nógu hár því það er ekki laust við að meðalmað- ur stijúki hausnum upp undir þegar hann situr afturí. Sætin eru hins vegar allgóð, hæfilega stíf og hefðbundnar stillingar möguiegar á framsætum. Mælaborðið er vel uppsett og bogadregnar línur má einn- ig sjá hið innra þar sem mælaborðið teng- ist framhurðunum. Stýrið er stillanlegt og mælar með ágætum og á armi við stýrið eru stefnuljósa- og þurrkurofar. Galli á þurrkurofanum er að taka verður höndina af stýrinu til að kveikja á þurrkunum. Arminum er sem sagt ekki ýtt upp eða niður til að kveikja heldur þarf að snúa honum. Þetta er óþarfa galli. Swift hinn stóri er allvel búinn, þ.e. al- drifsbíllinn sem prófaður var og er af gerð- inni GLX: Rafdrifnir hliðarspeglar, raflæs- ing, rafmagn í afturrúðu að sjálfsögðu og dagljósabúnaður sem kviknar þegar stigið er á hemla. Vélin ei1 1590 rúmsentimetr- ar, 91 hestafl, hún er hljóðlát og viðbragðs- góð. Bíllinn vegur 910 kg, er 4,07 m lang- ur, 1,6 m á breidd og 1,38 m hár. Þessi gerð með stærri vélinni er á 14 þumlunga hjól- börðum en 1300 bíllinn kemur á 13 þumlunga börðum. Aldrifsbíllinn er með fimm gíra kassa og sömuleiðis framdrifsbíll- inn en hann er ■einnig fá- anlegur með sjálfskipt- ingu. Snöggur Suzuki Swift hinn stóri er snöggur og skemmti- legur í viðbragði. Bíll sem ekki er stærri en þetta og með þessa 91 hestafla 1600 vél getur vart annað en verið sprækur. Þó var hann ekki reyndur fullskipaður farþegum eða farangri en skemmtileg gírskipting lofar góðu þannig að vinnslan ætti að vera sæmileg ef vel er spilað á gíra þótt bíllinn sé fuilhlaðinn. Má kannski minna á það í leiðinni að hinn venjulegi ökumaður er og enginn vafi leikur á því að bróðir hans sem aðeins er með framdrifi fer ekki allt sem aldrifsbíllinn fer. Framdrifsbíllinn er hins vegar liprari í snúningum og það finnst kannski helst í ýmsu skaki í borg- inni, við bílastæði og þess háttar. Góður í aldrifsbílasamkeppnina Suzuki með aldrifi hlýtur að vera óskabíll fyrir þá sem fara þurfa víða við alls kyns skilyrði, til dæmis þá sem aka daglega milli Reykjavíkur og nágranna- byggða vegna vinnu. Þar er hann enn einn kosturinn í aldrifsbilaflokknum og varla sá lakasti. Nú eru þessir aldrifsbílar með sítengdu drifi eða ekki farnir að nálgast tuginn. Sem fyrr segir kostar hann rúma milljón, í staðgreiðslu 1.010.000 kr. kom- inn á götuna með verksmiðjuyrðvörn en umboðið mælir þó með hinni íslensku ryð- vörn sem kostnar 15 þús. kr. jt TVEIR EINS? Það er sennilega ekki oft sem tveir bílar liafa fengið svo líka dóma sem þeir frönsku Citroen XM og Peugeot 605. Báðar gerðirnar eru í flokki lúxusbíla í hæsta gæða- og verðflokki og eru þeir sláandi líkir um margt, þægindi, vélarstærð, þyngd, eyðslu og fleira. Þýska bílablaðið Auto, Motor und Sport sem gerir mikið af því að bera saman ýmsar gerðir bíla tók þessa tvo til skoðunar. Báðir eru búnir þriggja lítra vél, um 170 hestafla, báðir vega 1.480 kg, XM eyðir 13,7 lítrum á hundraðið og 605 eyðir 13,6 lítrum og hámarks- hraði beggja bílanna er 222 km á klukkustund. Auk þess sem tölurnar benda til svipaðra eiginleika hjá þessum bílum gefur blaðið þeim svipaða umsögn hvað varðar þægindi seg- ir útlit þeirra álíka virðulegt en Peugeot fær þó þann stimpil um- fram XM að vera betri alhliða bíll í umgengni. Verðið er svipað í Þýskalandi, XM kostar 48.900 mörk og 605 kostar 46.000 mörk. Citroen XM og Peugeot 605 - tveir franskir gæðagripir sem fá svipaða einkunn lijá Þjóðverjum. *> k4f.4 » 11 f- á k * IJ. ii ÍÍÍJliítfSí13 LESBÓK MORGUN8LAÐSINS ZU APRÍL .1990 0

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.