Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Page 2
Hellanöfn síðustu ára
- tílurð naíngifta
Híðið í Hrútárdyngju á Reykjanesi. Sjá nánar í greinargerð.
ODDNÝ SV. BJÖRGVINS
Óðurtil ind-
verskrar
konu
I
Þú líður inní
skugga minn
sólheita óræða kona
Án fótataks, án líkama
aðeins slæðutónar
frá spinnandi vefstól
— glitrandi í
sólstöfum regnbogans
— gneistandi í
stjörnuskini mógúlanna
II
Bærist ég í
viðjableikri
hlébarðamjúkri
áru þinni?
Gekk ég um götur
í líki heilagrar
kýr etandi sorpið
við fætur þér?
Gekk ég í bálið
gaf hönd á stein
í logandi líkama
sólar og tungls?
III
Og hugblærinn
flytur mér
Ijóðtóna Eddu
Indlands
Frá ryðbláu bók-
felli papýrus-
vafninganna
í spegildjúpinu
mætast myndir okkar
Og saman dönsum við
í Shiva á djöflinum
Hring eftir hring í
kringum hnöttinn
Dönsum og dönsum
í speglandi ímynd
okkar ólíku heima
Ljóðandi eddur
undir alskyggnu .
rauðu augnabliki
Höfundur er blaðamaður á Morgunblað-
inu. Ljóðið er úr nýútkominni bók, „Þeg-
ar prentljósin dansa", sem Skákprent
gefur út og er fyrsta Ijóðabók höfundar-
ins. Teikningar í bókinni eru eftir Margr-
éti Birgisdóttur.
Eftir BJÖRN
HRÓARSSON
Asíðustu árum hefur hella-
fræði skotið rótum á
íslandi. íslendingar
hafa eignast sína fyrstu
hellafræðinga og til er
Hellaránnsóknafélag
íslands. Þessi áhugi
hefur leitt til þess að
fundist hafa fjölmargir nýir hellar og mörg
ný hellanöfn litið dagsins ljós.
Hellanöfn síðustu ára eru 57 talsins og
hér skipt niður í átta flokka eftir nafngift.
Fyrst eru hér tekin dæmi um nokkur hella-
nöfn úr hverjum flokki og greint frá tilurð
þeirra.
Skálarbarmshellir (Skálafell)
Það var snemma árs 1990 sem félagar
úr Hellarannsóknafélagi íslands voru við
hellaskoðun á Reykjanesi. I hvirfli Skála-
fellsdyngju er gígur eða skál og umhverfis
að sjálfsögðu gígbarmar. Utantil í barmi
gígsjns að austan fannst hola og hellir und-
ir. Á heimleiðinni, að hellaskoðun lokinni,
hófust eins og svo oft áður rökræður um
nafn á hinn nýfundna helli. Niðurstaðan
varð Skálarbarmshellir enda gengur hellir-
inn niður í skálarbarm.
Hér réð fundarstaður nafni.
Gullbringuhellir (Hvammahraum)
Gullbringuhellir, eða hið minnsta niður-
fallið í hann, hefur verið þekktur um nokk-
urn tíma en nafnið er nýlegt. Nafnið tekur
mið af fjallskolli skammt frá sem nefnist
Gullbringa (308 m.y.s.).
Hér fékk hellirinn nafn af nálægu örnefni.
Híðið (Hrútagjárdyngja)
Þann 18. júní 1989 voru tveir Birnir
(Finnsson og Hróarsson) að leita hella í
Hrútagjárdyngju. Fannst þá hellir sem
nefndur var Híðið eftir veru Bjamanna þar
inni. Þess má geta að annar Bjarnanna
hefur lagst til hvílu í Híðinu ásamt tveimur
félögum sínum í Hellarannsóknafélagi Ís-
lands. Lágu þeir þar í dvala næturlangt og
líkaði vel.
Hér var nafn dregið af finnendum.
Húsheilir (Hrútagjárdyngja)
Húshellir fannst sumarið 1988 og fékk
nafn af mikilli hleðslu, húsi, sem í hellinúm
er.
Hér réð utanaðkomandi fyrirbæri í hellin-
um nafni.
Hafri (Selvogsheiði)
Hafri er ekki stór en gólfið í honum
er mjög upphleyptá köfluni. Ekki er það
ósvipað því sem sjóði í afar stórum graut-
arpotti og af þeirri ímynduðu grautár-
suðu tók hellirinn nafn.
Hér réðu innviðir hellisins nafni.
Hvassi (Hallmundarhraun)
Hvassi er mjög óþægilegur yfirferðar.
Skríða þarf um mestallan hellinn sem ekki
er auðvelt sökum þess hve gólfið er odd-
hvasst.
Hér réðu innviðir nafni.
Spunahellir (Gullborgarhraun)
Við heliaskoðun í íslenskum hraunhell-
um er sjaldgæft að rekast á lífverur.
Lífvera fannst ekki í Spunahelli en þar
er hins vegar köngulóarvefur.
Her réð utanaðkomandi fyrirbæri í
hellinum nafni.
Langiþröngur (Purkhólahraun)
Langiþröngur (320 m) er 18. lengsti
hraunhellir landsins en lengsti hellir i Purk-
hólahrauni. Hellirinn er þröngur og áber-
andi langur miðað við aðra hella í nágrenn-
inu.
Hér réð lega hellisins nafni.
Selhellar (Purkhólahraun)
Fyrir enda þessa mikla heilakerfis er
holur hóll. í honum eru mannvistarleifar,
sem gætu bent til að um gamalt sel væri
að ræða. Svo taldi hið minnsta hellamaður-
inn sem fyrstur kannaði hellana og gaf
þeim samheitið Selhellar.
Hér réð utanaðkomandi fyrirbæri í hellin-
um nafni.
K-l, K-2, K-3, K-4 og K-5 (Kerlingarhóla-
hraun)
Fimm hellar hafa fundist í Kerlingarhóla-
hrauni og lengi gengu þeir aðeins undir
samheitinu Kerlingarhólahellar. Nýlega
voru þeir hins vegar nefndir K-1 til K-5.
Hér réð nýstárleg aðferð, raðtöluaðferðin,
nafngiftunum. Ástæður hennar eru e.t.v.
andagiftarieysi við nafngiftir eða sú ástæða
að vilja ekki hrúga niður mörgum nýjum
örnefnum á lítið svæði.
Togarahellir (Þeistareykjahraun)
Töluverð saga er kringum nafn Togara-
hellis. Um 1960 var flokkur manna við
mælingar á Þeistareykjum en ekki var veð-
ur til starfa. Skiptist hópurinn þannig að
tveir gengu út en hinir lögðust til hvílu.
Þeir tveir sem út gengu fundu Togarahelli.
í honum er vatn og má þar sigla á gúmmí-
bát nokkra tugi metra. Finnendunum var
hins vegar í mun að sýna fram á .ágæti
gönguferðarinnar í stað skálaverunnar svo
þeir lýstu hellinum Ijálglega þegar í skála
kom og sögðust hafa fundið helli þar sem
sigla mætti síðutogara kílómetrum saman.
Sagan þróaðist eftir því sem árin liðu og
að lokum fékk hellirinn nafnið Togarahellir.
Hér réðu utanaðkomandi atvik nafni hell-
isins.
Jörundur (Lambahraun)
Jörundur fannst á hundadögum og því
var ákveðið að nefna hann í höfuðið á Jör-
undi hundadagakonungi.
Hér réðst nafngiftin af utanaðkomandi
atriðum.
Vörðuhellir (Syðra-Eldborgarhraun)
Þegar Vörðuhellir fannst 4. júlí 1947 var
innst í honum varða, hlaðin 15.7. 1922.
Ákveðið var að nefna hellinn eftir vörðunni.
Hér réð utanaðkomandi fyrirbæri í hellin-
um nafni.
Tvíbotni (Syðra-Eldborgarhraun)
Tvíbotni er víða á tveimur hæðum þar
sem storkuborð ná saman og þar eru tveir
botnar í hellinum. Þá opnast niðurfallið ekki
við en'da hellisins þannig að út frá því má
ganga í botn hans í báðar áttir. Hellirinn
hefur því tvo botna hvernig sem á hann er
litið — er Tvíbotni.
Hér réðu innviðir hellisins nafni.
Vegkantshellir (Syðra-Eldborgarhraun)
Hellismunni Vegkantshellis er rétt við
vegkant.'
Her réð því staðsetning nafni.
Fallhellir (Syðra-Eldborgarhraun)
Fallhellir gengur milli tveggja niðurfalla
en hefur ekki önnur op til yfirborðs. Vegna
niðurfallanna fékk hellirinn nafnið Fallhellir.
Hér réði því lega hellisins nafni.
Samantekt
Þá hefur í stuttu máli, verið gerð grein
fyrir ástæðum er liggja að baki nokkrum
hellanöfnum úr hveijum flokki.
Rétt er að líta á örlitla samantekt þeirra
ástæðna sem réðu nafngiftum á þeim 57
hellanöfnum sem til hafa orðið á síðustu
árum.
1. Raðtöluaðferðin réð nafni (16 hellar,
28%): K-l, K-2, K-3, K-4, K-5, T-2, S-l,
S-2, S-3, S-4, S-5, S-6, S-7 og S-10.
2. Innviðir hellis réðu nafni (9 hellar,
16%): Gljái, Hruni, Hafri, Fosshellir, Hvassi,
Stúthellir, Dímon, Tvíbotni og Súluhellir.
3. Utanaðkomandi fyrirbæri í helli eða
við hann réðu nafni (9 hellar, 16%): Húshell-
ir, Rótahellir, Áni, Rjúpnahellir, Sandi,
Spunahellir, Selhellar, Vörðuhellir og Lamb-
hellir.
4. Lögun og/eða lega hellis réð nafni (7
hellar, 12%): Aðalhola, Aukahola, Flóki,
Strompahellir, Bratti, Langiþröngur og Fall-
hellir.
5. Nafn dregið af finnanda eða finnendum
(6 hellar, 11%): Dátaskúti, Híðið, Hjartar-
tröð, Árnahellir, Halur og Litli-Björn.
Þess skal getið að aðeins í einu þessara
tilfella gaf finnandi hellinum nafn sitt.
6. Nálægt örnefni stjórnar nafni (4 hell-
ar, 7%): Gullbringuhellir, Kistufellshellar,
Hellirinn eini og Klofahellir.
7. Utanaðkomandi atvik eða atburður réð
nafni (3 hellar, 5%): Togarahellir, Jörundur
og Stullahola.
8. Fundarstaður ræður nafni hellis (3
hellar, 5%): Skálarbarmshellir, Lofthellir og
Vegkantshellir.
Athygli vekur að 20 nöfn eða aðeins 35%
af þessum 57 nöfnum enda á -hellir. Þegar
öll íslensk hraunhellanöfn eru aftur á móti
skoðuð kemur í ljós að um 70% þeirra enda
á -hellir. Því virðist sem nafiigefendur hella
á síðustu árum hafi mun frekar en áður
sleppt endingunni -hellir.
Raðtölunafngiftin hefur verið notuð á
flesta hella, þrátt fyrir að henni hafi aðeins
verið beitt á þremur stöðum. Aðferðinni
fylgja bæði augljósir kostir og gallar en
e.t.v. skekkir hún nokkuð mynd þá er sýnir
orsakir nafngifta á hellum.
Með því að sleppa raðtölunafngiftinni og
einfalda myndina enn frekar fæst eftirfar-
andi tafla sem verður hér látin standa sem
lokaniðurstaða þessarar samantektar á til-
urð nýlegra nafngifta á íslenskum hraun-
hellum:
Fyrirbæri í helli ráða nafni: 18 hellar eða
44%
Lögun og/eða lega ræður nafni: 7 hellar
eða 17%
Nafn dregið af finnendum: 6 hellar eða
15%
Nálæg örnefni stjórna nafni: 4 hellar eða
10%
UtanSðkomandi atriði ræður nafni: 3
hellar eða 7%
Fundarstaður ræður nafni: 3 hellar eða
7%
Höfundur er jarðfræðingur og formaður Hella-
rannsóknafélags l’slands.