Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Page 13
17. NÓVEMBER 1990
Munchen
'ryr~'^ c
ObejjurgL
Eins gott að gæta sín að lenda ekki á tré!
Svifið á vit fjallanna yfir grenitrjám og snjóhlöðnum brekkum.
Bestu skíða-
svæðin \f
Austurríki
Vel heppnað skíðafrí felst í meiru en bara snjó
Byggt á breskri könnun.
Austurríki er tvímælalaust vinsælasta skíðaland íslendinga.
Eftir lítinn skíðasnjó sl. ár hefur skíðafólk skiljanlega mestan
áhuga á snjólikum. Tölurnar (1-10) eru reiknaðar út frá með-
alsnjódýpt síðustu ára og hæð skíðasvæðis. Stjarna aftan við
tölustaf sýnir að stuðst er við tiibúinn snjó. Fyrst lítum við á
bestu skíðasvæðin í vesturhluta Austurríkis. næst Munchen.
Bestu hótel á hverjum stað eru
Alpbach, 1000 m
Snjólikur 4. Fyrir fjölskyldu-
fólk. Múnchen 2 tímar, Innsbruck
1. Týrólskt andrúmsloft upp á
sitt besta. Hrífandi hlýleiki og
undurfagurt landslag bæta upp
takmarkað, lítið skíðasvæði —
rútuferðir þangað. Þó eru nokkrar
góðar brunbrekkur. Góðar byij-
endabrekkur í miðju þorpi. Glað-
værar fjölskylduskemmtanir á
Gasthof Post síðdegis.
KOSTIR: Siðfágað, hrífandi
tilgreind.
þorp. Góður skíðaskóli. Góð hót-
ei. Stutt á næsta flugvöll.
ÓKOSTIR: Lítið, lágt skíðasvæði.
Hótel: Boglerhof — þægilegt,
miðsvæðis, dýrt, með eigin sund-
laug. Messnerwirt — einfalt og
ódýrt. Post er áþekkt, þó meira
næturlíf.
Brand, 1.050 m
Snjólíkur 4. Fyrir íjölskyidu-
fólk. Zurich tímar. Vinalegt
skíðasvæði fyrir byijendur í Vor-
arlberg. Glaðvært þorpslíf eftir
Hvílst ofan við St. Anton áður en lagt er í brekkurnar.
skíði. Góð skiðaaðstaða fyrir
börn. Lítið skíðasvæði aðeins
hærra, tilvalið fyrir þá sem vilja
fara sér hægt — brunbrekkur í
Burserberg rétt hjá. Áhugaverðar
gönguskíðabrautir.
KOSTIR: Góð hótel. Vinalegt
andrúmsloft. Þægilegar brekkur.
Dansað snemma á kvöldin.
ÓKOSTIR: Lítið, lágt skíðasvæði.
Tvístrað þorp. Fjarlægð milli að-
alskíðasvæðis og barnabrekkna.
Hótel: Hammerle — miðsvæðis,
þægilegt, frábær þjónusta. Lag-
ant — þægilegt skíðahótel, eigin
sundlaug.