Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Síða 6
Sigfús opnar með luðrasveit og karlakór
Eftir eina viku, laugardaginn 8. des.
verður mikið um dýrðir hjá hinu
ástsæla tónskáldi og málara, Sig-
fúsi Halldórssyni. Hann stendur þá að sýn-
ingu á uppundir 100 vatnslitamyndum frá
Reykjavík í vestursal Kjarvalsstaða. Hulda
Valtýsdóttir, formaður menningamála-
nefndar Reykjavíkur, flytur ávarp og opnar
sýninguna. Listamanninum til heiðurs munu
vinir hans í Lúðrasveit Kópavogs og Karla-
kór Reykjavíkur flytja nokkuf hinna alkunnu
og vinsælu laga hans.
Þá mun og koma út listaverkabók um
Sigfús, sem bókaforlagið Reykholt stendur
að og verður hún kynnt á sýningunni. For-
mála að bókinni skrifar Indriði G. Þorsteins-
son, rithöfundur, en bókartextann skrifar
Jónas Jónasson útvarpsmaður. Þetta er ekki
beint ævisaga, segir Sigfús; ekki viðtalsbók
heldur, en fjallar á fijálslegan hátt um ævi
Sigfúsar og samfylgd við listagyðjumar.
Ferill Sigfúsar er tekinn saman í lokin og
þýddur á dönsku og ensku. í bókinni er
urmull litprentaðra mynda af verkum Sig-
fúsar og það sem gerir hana sérstaka: Aft-
ast í bókinni er plata með völdum lögum
tónskáldsins og prentaðir textar viðkomandi
ljóða. Hljómplatan ræður að sjálfsögðu
stærð og útliti bókarinnar; hún er í sömu
stærð og plötuumslag, kápan dökk og ekk-
ert á henni, nema að sjálfsögðu litla flugan.
Auk bókarinnar kemur út 118 síðna söng-
lagahefti með lögum Sigfúsar og heiðrar
Kópavogsbær tónskáldið á sjötugsafmæli
með þeirri útgáfu. í heftinu eru 40 lög,
mörg þeirra ný og útsetningar era á lögum
Sigfúsar fyrir karlakóra. Heftið verður einn-
ig kynnt á sýningunni.
Sigfús kvaðst halda, að hann hafi áður
haldið 8 sýningar á Reykjavíkurmyndum.
Sú síðasta var sumarið 1986 á 200 ára af-
mæli Reykjavíkur. Sigfús hefur ekki setið
auðum höndum síðan og enn sýnir hann
Reykjavíkurmyndir, málaðar með vatnslit-
um. Megnið af þeim er úr Kvosinni og af
húsum og götum þar í kring. Sigfús málar
líka portret af fólki, en þau verða ekki með
núna, nema eitt af Vilhjálmi skáldi frá Ská-
holti, sem verið hefur á mörgum sýningum
Sigfúsar.
Sýning Sigfúsar stendur fram að jólum
og allan tímann mun tónlistin fá sitt rúm.
Meðan sýningin stendur munu tónlistar-
menn öðru hvora koma fram á kvöldin.
Þetta verður með öðram orðum marghliða
listahátíð hjá Sigfúsi Halldórssyni, sem
lífgar uppá skammdegið.
G.S.
Afstrakt
sem minnir
á landslag
Opus, 1989, 35x60 sm. Ljósm.Lesbók/Þorkell
Sýning Rúnu Gísladóttur í FÍM-salnum
í Garðastræti hófst fyrir viku og
stendur hún til 11. desember. Því
miður var ekki hægt að gera henni skil
fyrr vegna rúmleysis og raunar lenda sumir
sýnendur í því að liggja óbættir hjá garði,
þegar 5-6 nýjar sýningar hefjast um sömu
helgina. Það er hinsvegar regla sem reynt
er að fara eftir, að kynna sem flestar einka-
sýningar.
Rúna Gísladóttir hefur áður sýnt á Kjar-
valsstöðum fyrir þremur árum og þar að
auki sýndi hún á Blönduósi og á Siglufirði.
í 11 ár, eða frá því hún var við nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands, hefur
hún ræktað þá myndgerð, sem á útlendum
tungum heitir collage. Þesskonar verk hafa
stundum verið nefnd klippimyndir á
íslensku, en Rúna benti réttilega á, að sú
nafngift sé vafasöm í hennar tilviki, því hún
rífur oftast í stað þess að klippa.
Aðferð Rúnu er líka sérstæð í þá veru,
að hún byggir ekki á tilbúnum aðföngum,
þ.e. prentuðum myndum, eða mynstruðum
pappír, nema að örlitlu leyti. Þess í stað
hefur hún þróað þá persónulegu tækni, að
mála með akrýl á hvítan pappír með ýmsu
móti áður en hún rífur hann niður og skeyt-
ir saman.
Áhorfandinn fær þá hugmynd, að hér sé
verið að búa til hálf-afstrakt landlagsmynd-
ir eins og nú er raunar í tízku, enda lýsa
sýnendur því nú yfir næstum því í kór, að
þeir séu að fást við landslag. Rúna kveðst
hinsvegar byija hvert verk óbundin af
ákveðinni hugmynd. En í meðförunum vill
stundum svo til, að myndin fer ósjálfrátt
að gefa hugmynd um landslag og þá kveðst
Rúna skerpa á þeirri hugmynd.
Rúna fékk í fyrra þriggja mánaða starfs-
laun í fyrra og vann þá samfleytt við hluta
þeirra verka, sem hún sýnir nú í FÍM-saln-
um. Auk collage-myndanna sýnir hún nokk-
ur málverk. Jafnframt því að vinna að list
sinni og sinna húsmóðurstörfum, hefur
Rúna kennt myndlist á námskeiðum, sem
hún heldur í vinnustofu sinni að Selbraut
11 á Seltjarnarnesi. Þar hefur hún verið
með 6-10 manns í einu, unga og gamla, og
sumir hafa komið aftur og aftur. GS.