Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Page 8
Lewis Hine komu því til leiðar að bama- þrælkun var afnumin og myndir Jacob Riis úr fátækrahverfum New York-borgar sköp- uðu nýjan umræðugrundvöll þeim sem minna máttu sín í hag. En svo eru aðrir sem sjá akkúrat enga ástæðu til að fara út í slíkar réttlætingar. Mapplethorpe er einfaldlega stórkostlegur ljósmyndari og skiptir þá litlu hvort tippi bregði fyrir á myndfletinum eða ekki. Að taka það þema sem listamaðurinn hefur valið sér fyrir innihald og verðleika verksins er hið sama og að fara gjörsamlega á mis við hin listrænu gildi. Undirrót þessa mis- skilnings og þá um leið allra eijanna er að fínna í þeirri staðreynd, að ólíkt öðrum sjón- listum (gjörningar undanskildir) hefur ljós- myndin að geyma eðlislæga tilvísun til raun- veruleikans og er því auðvelt skotmark þeirra sem einvörðungu vilja dæma Mapple- thorpe á forsendu myndefnisins. Það sem setur gæðastimpilinn á verk hans er ekki fyrst og fremst máttur þeirra til að- reka upp heróp gegn ríkjandi hleypidómum, held- ur hversu vel listamanninum hefur tekist að tefla saman ljósi og skuggum, formum og áferð og tengja þær pælingar sínar mikii- vægum formrænum straumum í list sam- tímans. í þessu felst hans mikli galdur. Þessi hópur telur sig vera með sitt á hreinu og því er ekki að neita að ljósmynd- imar eru nokkuð „flottar". Mapplethorpe er samt ekki einn um að hafa smellt af góðri mynd og það er vafamál hvort hann væri það númer sem hann er í listaheiminum í dag ef ekki væri fyrir þann styrr sem stend- ur um verk hans. Eru Listamenn Heilagar Kýr? Fræðingarnir taka svo að segja undan- tekningalaust upp hanskann fyrir Mapple- thorpe. Frá þeirra sjónarhomi er listamaður- inn hálfgerður Rembrandt okkar tíma, þar sem hann laðar fram hið „mannlega" í ein- staklingnum og veitir honum reisn og sam- úð. Það er kannski ekki nema furða að þessi manngæska fari fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum er þeir standa andspæn- is myndunum umdeildu, því hvemig er hægt að tala um mannúð þegar þær greini- lega gylla erótísk ritúöl sem fela í sér vald- beitingu, forsmán og hinar hrottafengnustu misþyrmingar? Spurningin er þó varla hvort slíkt athæfi eigi rétt á sér. Að sjálfsögðu hljóta allir heilbrigðir og upplýstir menn að umbera elskendum þá ánægju að lumbra hvor á öðmm, svo fremi sem það er einlægur vilji beggja aðila. Hitt er svo annað mál hvort skattgreiðendum beri að standa kostnað af sýningarhaldi á ástaratlotunum. Eða hver er kominn til með að segja að menn verði að kyngja úrskurði listspekinganna og allt sem listamenn láta frá sér fara sé heilagt og óumdeilanlegt? Þræta má um hversu vei Mapplethorpe takist að kreista á þessu félagsfræðilega tabúkýli, hafi það í raun verið ætlun hans. Hann einblínir oftast nær einungis á skrokk- inn, og sér í lagi barkakýlin með þeim hætti að í staðinn fyrir að persónugera viðfangs- efni sitt hlutgerir hann það, kynfærin leysa andlit og persónu fyrirsætunnar af hólmi. Spennan sem skapast á milli hinna afmörk- uðu líkamsparta og þeirrar gífurlegu áherslu sem lögð er á að draga fram hvert smáat- riði yfirborðsins, á milli afstæðis og raun- sæis, hefur enn frekar í för með sér að gera einstaklinginn sjálfan að algjöru auka- atriði. I raun virðist Mapplethorpe heppnast lítið annað en að staðfesta þær klisjukenndu ranghugmyndir að hómósexúalitet snúist um ekkert nema leður og keðjum skrýdd vöðvaíjöll á borð við Amold Schwarzeneg- ger og líkamsræktarkonuna Lisu Lyon, eina af eftirlætisfyrirsætum listamannsins. Ver- öld hans rúmar auðsjáanlega aðeins hasar- kroppa og í portretdeildinni þungavigtar- stjömur úr peninga-kúltur og „glamor“- bransanum, eins og Leo Castelli, Doris Saatchi, Lord Snowdon, Roy Lichtenstein, Willem de Kooning, Francesco Clemente, Richard Gere, Kathleen Tumer, Peter Gabri- el o.s.frv. Mapplethorpe beitir miklum andstæðum í ljósi og birtu og lukkast einatt að brydda upp á grípandi sjónarhomum, en undir öllum „arti-smartiheitunum“ (einn og einn gagn- rýnandi á stangli hefur dirfst að kalla hann lítið annað en tískuljósmyndara) glittir í hömlulaust ofbeldi, oft táknað með hnífúm, og að því er sýnist leynda kynþáttafor- dóma. Allavega er erfitt að túlka myndina af nöktum blökkumanni með nokkurs konar Ku Klux Kian poka yfir hausnum sem ann- að en beina tilvitnun til glæpaverka þessa hóps, hér að viðbættum lostafullum yfirtón- um. Lisa Lyon, 1981. KenMoody og Robert Sherman, 1984. Alister Butler, 1980. ' forstöðukonu Háskólalistasafnsins í Berke- ley, að bera í bætifláka fyrir listamanninn prufaði ákærandinn nyja taktík og spurði hver tilgangur þessara sadistamynda væri. Hún svaraði sallaróleg að hann væri sá að búa til list. List, hrópaði lögsækjandinn for- viða. Já, ítrekaði Baas: „Það getur verið mjög erfitt að skapa listaverk.“ Þessi glefsa úr réttarhöldunum ætti að gefa lesandanum smá hugmynd um þánn leikaraskap sem þama átti sér stað. Þegar öllu er á botninn hvolft virðist málið nefni- lega vera eintómur heimatilbúningur frá upphafi til enda. í samtali við undirritaðan lýsti Baas því hróðug yfir að farandsýning- in hefði trekkt til sín 106.000 gesti þegar hún fór um sali Háskólalistasafnsins síðast- liðinn vetur. Hún sagði ennfremur að marg- ir vildu fjalla um málið á grundvelli ritskoð- unar, þar eð hugtakið „klámfengni" („ob- scenity“) væri ekki verndað samkvæmt fyrstu stjómarskrárbreytingu Banda- ríkjanna. Hins vegar hefði málsaðilum verið það fullkomlega ljóst frá byijun, að ógjörn- ingur er að dæma nokkurn þann hlut sem safn kærir sig um að sýna sem klám, vegna þess að „fagurfræðileg“ gildi koma í veg fyrir að þetta lagaákvæði nái til listaverka. Með öðmm orðum, ef safn stendur á því föstum fótum að eitthvað sé list, þá skal það vera og heita list. Eina vopnið sem saksóknarinn hafði í raun og veru vom einhvers konar „Svefn- eyjamyndir" af tveimur börnum. Sýnir önn- ur þeirra nakinn dreng, en í hinni sést í sköp lítillar stúlku. Bamaverndarlög hér- lendis, ekki síður en heima, taka vitaskuld afar strangt á slíku. Til að sanna að Mapple- thorpe hafi búið ljótt eitt í huga er hann tók þessar myndir, þurfti ákærandinn aftur á móti að sýna fram á svo ekki væri um villst, að umræddar myndir hefðu að geyma „grafískar áherslur“ á kynfærum sakleys- ingjanna. Eins og gefur að skilja reyndist þetta honum lífsins ómögulegt, enda gátu sérfræðingamir talið kviðdómnum trú um að getnaðarfæri þeirra væru algjört aukaat- riði í myndbyggingunni. Það er kannski til marks um þá hræsni sem hefur einkennt málið, að Terri Sultan, safnvörður Nýlistadeildar Corcoran-safns- ins, ætlar að fá listamannahópinn „Group Material“ til að útbúa sýningu sem fjalla á um ritskoðun. Hefur hann hvatt listamenn- ina til þess að nota í því skyni eitthvað af lósmyndum Mapplethorpe og Serrano. Ekkert Nýtt Undir SÓLINNI Líkt og samverkamaður hans ög átrúnað- argoð, Andy Warhol, á Mapplethorpe því ýmislegt að launa að hafa nuddað bökum saman við nafntogað fólk, sbr., limmna glettnu: „Eg verð frægur af þér og þú af mér og kverið af sjálfu sér.“ Nýfundin frægð hans sem þrífst á alnæmisótta almennings, byggist þó fyrst og fremst á áhrifum svæsn- ustu myndanna til að erta og sjokkera borg- aralýðinn („épater les bourgeois") og þeirri staðföstu trú margra að listin sé sönnust þegar hún er hvað öfgakenndust og mest umdeild. Það er því hálf sorglegt að Mapple- torphe, sem nú er allur, þurfi að láta öðrum eftir að spóka sig í sviðsljósinu fyrir sína hönd. Segja má að það hafi verð Édouard gamli Manet sem hafi gefið framúrstefnumönnum tuttugustu aldarinnar tóninn í þessum efn- um, raunar alveg óviljandi, er hann sýndi fyrst verkin „Litli skattur á engi“ og „Ólympía" (bæði frá 1863). Ætlaði hann næstum því að trylla salónliðið, sem stóð í þeirri meiningu að verið væri að uppheija hórdóm. Sú „aðferð" að kmkka í bannhelg- um málum til að ná athygli markaðarins hefur reynst mörgum listamanninum afar happadijúgt meðal, þó ekki sé ætlunin að gefa í skyn að slíkt sé ekki stundum allra gjalda vert, og virðist þessi formúla, ef svo má að orði komast, sjaldan hafa gefist bet- ur en einmitt núna á hinum póstmódemísku tímum. Árið 1971 hélt Nútímalistasafnið í New York (MoMa) til dæmis yfirlitssýningu á ljósmyndum Diane Arbus, en myndefni hennar fjallaði meðal annars um klæðskipt- inga og geðveilu, málefni sem á sínum tíma voru afar viðkvæm. Var yfírlýstur tilgangur hennar að svipta hulunni af sýndarmennsku kapítalismans og fá Bandaríkjamenn, líkt og Richard Avedon sem fókusað hefiir á hinar dekkri hliðar Bandaríkjanna, til að horfast í augu við staðreyndir síns eigin þjóðfélags. Þó báðir ljósmyndaramir verði að teljast harla athyglisverðir útaf fyrir sig, er ekki frá því að verkefnaval þeirra hafí lagt úrslitalóðin á vogaskálar orðstírs og frama, hvort heldur sá orðstír er nú góður eða vondur. Minnist John Szarkowski, safn- vörður Ljósmyndadeildar MoMa, þess að gæslumenn hafí mátt þurrka hráka af gler- inu á verkum Arbus í lok hvers vinnudags. Svipaða hneykslissögu er að segja af konseptlistamanninum Vito Acconci, sem síðar á sama áratugnum sá fram á nauðsyn þess að fara út í aðeins persónulegri sálma. Nýjasta dæmið af nálinni eru svo gjörn- ingar listakonunnar Karen Finley, en hún notar líkama sinn eins og léreft til að út- mála fóbíur og kynóra karlmanna. Lista- maðurinn er þar af leiðandi bæði efni og inntak verksins. Þessir „þjóðfélagsskúlptúr- ar“ hennar miðast að því að vekja fólk, og þá sérstaklega karlmenn, til umhugsunar um stöðu kvenna og þeirrar kynferðislegu svívirðu sem þær mega oft þola. Tilraunir Finley til að draga slík feimnismál út úr skúmaskotum klámiðnaðarins hafa engu að síður farið fyrir bijóstið á ýmsum. Þó tók fyrst tappann úr þegar listakonan flutti nýverið verk sitt berstrípuð á gjöminga- hátíð í Walker Art Center, Minneapolis. Þakti hun líkamann súkkulaði til að líkja eftir saur og vildi á þann máta sýna hvern- ig körlum hættir til að koma fram við kon- ur — eins og skít. Finley hefur þrisvar feng- ið styrk úr sjóði NEA síðan 1984 og átti von á rúmum tveimur milljónum króna nú í ár. Var henni tilkynnt í kjölfar sýningarinn- ar að NEA, vegna þrýstings frá þinginu, hefði ákveðið að klípa verulega af núver- andi Ijárveitingu. Þessi refsiaðgerð, er virð- ist miðast að því að draga úr súkkulaðiinn- kaupum listakonunnar, hefur hins vegar reynst Finley hin mesta lyftistöng. Áður en ofangreint atvik átti sér stað var Finley fremur lítið þekkt, en eftir að hún komst á svarta listann „eftirsóknarverða" hafa vin- sældir hennar stórum aukist og má nú kalla að hún sé einn fremsti skandalasérfræðing- urinn vestan hafs. HVER ER AÐ BLÖFFA HVERN? Þegar höfundur farandsýningarinnar var beðinn um að réttlæta myndimar sjö fyrir kviðdómnum i Cincinnati-málinu umrædda lýsti hann til að mynda „Sjálfsmynd með svipu“, er minnst var á í byijun, sem há- klassískri myndbyggingu. Hann lagði áherslu á skálínumar í verkinu „Þvaglát í munn“, en afgreiddi mynd af manni með putta á kafi í tippinu með því að benda á að Mapplethorpe hefði þótt handarhreyfing- in þama sérlega fögur. Þegar röðin kom að Jacquelynn Baas, JÓNOG SÉRAJÓN Þó að andstæðingar Mapplethorpe hafi á pappírnum farið halloka út úr málaferlun- um, er óhætt að fullyrða að allir deiluaðilar hafi borið eitthvað úr býtum. Afturhalds- seggimir vöktu á sér óskipta athygli, Jesse Helms bætti við sig fylgi, fjölmiðlamir fengu heilmikið að tala og skrifa um (greinarhöf- undur ekki undanskilinn) og söfnin sem höfðu rænu á að bjóða farandsýninguna velkomna settu flest ný aðsóknarmet. Það ber vott um skopskyn talnaguðanna, að aðsóknin á Mapplethorpe-sýninguna hjá Nútímalistasafninu í Cincinnati skyldi hafa sexfaldast frá því sem hún er vanalega. Þá má heldur ekki gleyma galleríum og uppboðsfyrirtækjum sem hafa grætt vænan skilding á allri „auglýsingaherferðinni". í lok síðasta árs, eftir að umræðan komst á veralegt skrið, þaut verð á myndum Mapp- lethorpes upp' úr öllu valdi. Seldist þrístæða af módelinu Lydiu á uppboði hjá Christie’s á 1,8 ftiilljónir króna og stakar ljósmyndir á um milljón. Er þetta helmingi hærra verð en uppboðshaldarar höfðu þorað að vona. Á sama tíma seldist myndröðin „Skýjastúdíur" eftir Alfred Stieglitz á 22 milljónir króna og er það ef til vill vísbending um að ljós- myndin sé nú loksins komin á stall með „alvöra" listum. Það er kaldhæðni örlaganna, að sama dag og forstöðumaður Nútímalistasafnsins í Cin- cinnati var sýknaður af öllum ákæruatriðum var eigandi plötubúðar í Flórída dæmdur sekur um klám fyrir að selja nýjustu breið- skífu rapp-hljómsveitarinnar „2 Live Crew“, „As Nasty As They Wanna Be“. Þóttu söng- lagatextamir ganga full langt í „grafískum" lýsingum á samföram, en því má bæta við að hljómplatan er gerð af blökkumönnum, gefin út af hljómplötufyriftæki í eigu svartra og að búðareigandinn, sem einnig er svart- ur, var fundinn sekur af kviðdómi sem ein- ungis var skipaður hvítum. Hafa nú yfir- völd í 13 fylkjum varað við sölu á plötunni. Þeir sem eiga erfitt með að átta sig á hvað flokkast undir myndlist í dag ættu þó a.m.k. að fá staðfestingu á því að enn er gerður skýr greinarmunur á listamönnum með litlu og stóru L-i. Eða hvað skyldi annars gerast ef „Live Crew “ setti ljósmynd eftir Mapplet- horpe framan á næsta plötuumslag? Höfundur er listfræðingur og starfar í New York.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.