Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Side 9
FERMRlAfí
1. DESEMBF.R 1990
Á miðjum „róm-
antíska vegin-
um“ í Þýskalandi
Augsburg dregur nafn sitt af rómverska keisaranum Ágústusi,
sem trónar yfir Ágústusarbrunni (frá 1600) í miðbænum
Augsburg
aðventuborgin fræga
Augsburg ber nafn Ágústusar keisara úr jólaguðsspjallinu, sem
ákvað að skattleggja allan heim. Borgin á sér 2000 ára sögu eins
og byggingar hennar og listiðnaður bera vitni um og hátíðir rekja
hefðir til. Þangað er urn þriggja tíma ferð í lest frá Frankfurt.
Augsburg er fræg fyrir margt og ekki síst fyrir sinn árlega jóla-
markað, sem þykir einn sá skrautlegasti og líflegasti í öllu Þýska-
landi.
Á hveiju ári í byijun jólaað-
ventu breytist hið sögufræga ráð-
hús í Augsburg í risastórt jóla-
dagatal, þegar jólaenglarnir í
Augsburg koma fram og leika
jólalög. Jólaenglarnir eru eftirlík-
ingar af máluðu altarisenglunum
í Augsburg eftir Hans Holbein
eldra, einn frægasta sons borgar-
innar, sem málaði í gotneskum
stíl. Og framan við ráðhúsið rís
risastór jólamarkaður þar sem
seldur er m.a. fallegur listiðnaður
sem framleiddur er í Augsburg,
en borgin er fræg fyrir tréskurð
og margskonar iðnað frá fornu
fari.
Hvað er að sjá og skoða?
Ferðamenn á jólaaðventu í
Augburg geta (með fyrirvara)
komist í: kertaljósa-kvöldverð í
hinum sögufræga „Fuggerkeller",
''jólasýningu brúðuleikhússins í
Augsburg, sem þekkt er úr út-
varpi og sjónvarpi í Þýskalandi. Á
hveijum laugardegi kl. 14-00 (til
30.3.’91) er lagt upp í tveggja
tíma skoðunarferðir um borgina
frá Hótel Drei Mohren, Maximil-
ianstrasse.
Jólamarkaðurmn fyrir framan raðhusið í Augsburg þar sem
Augsburg-jólaenglarnir syngja um hverja helgi á aðventu.
A krossgötum á
meginlandinu
Fuggerei er einstætt þorp í borginni; elstu félagslegu byggingar
í heiminum, reistar fyrir fátækar ekkjur árið 1516 og enn eftir-
sóttar til íbúðar.
í eins dags skoðunarferð um
Bavaríuhérað er hægt að skoða
Neuschwanstein kastala,
Andechs-klaustur með sam-
nefndri ölgerð, hinn hefðbundna
tréútskurð í réttu umhverfi sínu
í Oberammergau, Wieskirche,
sem þykir ein fegursta kirkja í
Bavaríu. Og einnig er hægt að
skipuleggja fyrir 4-40 manns
(verð kr. 3.515 á mann): hring-
ferð í fótspor Lúðvígs konungs,
ökuferð í hestasleða eða hestvagni
frá Graswang til Linderhof kast-
ala, þar sem draumar Lúðvígs
konungs rættust.
Allt frá dögum Ágústusar keis-
ara hefur Augsburg staðið á mikl-
um krossgötum viðskipta og
ferðalaga um meginland Evrópu.
Á miðöldum var borgin mjög
áhrifamikil vegna legu sinnar og
á 13. öld var gamla dómkirkju-
borgin fríríki innan hins heilaga
Rómaveldis. Og síðar alþjóðleg
verslunarborg undir stjórn Fugg-
er-bræðranna, sem teygðu við-
skiptasambönd sín út um allan
heim — fluttu gull og gersemar
frá Austurlöndum fjær inn í miðja
Evrópu og veittu jafnvel Portúgöl-
um harða samkeppni í viðskiptum
þegar sjóveldi Portúgala reis
hæst.
Tískuborg
endurreisnartímans
Augsburg var „París“ síns
tíma. Hvergi þóttu konur jafn
fallegar og vel klæddar. Þaðan
bárust tískustraumar og bergmál
frá dansandi aðli. Á endurreisn-
artímanum reis Augsburg hæst
og var miðdepill byggingarlistar,
tónlistar og málverka. Rokokó var
„stíllinn í Augsburg". Ferðamenn