Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Síða 11
Gleðileg jól á
erlendri grund
Litið á helgarfargjöld Flugleiða og tilboð í jólaferðum
Fólk hefur raargar ástæður til
að vilja eyða jólunum erlendis;
fjárhagslegar, heilsufarslegar,
fjölskyldulegar - eða bara löng-
un eftir meira sólarljósi. Hver
sem ástæðan er - skulum við
aðeins lita á jólavenjur í þeim
löndum sem íslendingar gætu'
hugsanlega heimsótt yfir jólin.
Jesús á móti Búddha
Til að losna alveg við jólahald
er best að eyða jólunum í búddha-
trúarlandi í Asíu, þar sem ekki er
haldið upp á jól. Beint flug frá KMH
til Bangkok eru aðeins 11 tímar
(flugmiði héðan 84.000 kr). Píla-
grímsferðir til ísrael um jól hafa
verið farnar héðan og dvalið yfir
jól í Jerúsalem og Betlehem á vest-
urbakkanum. Samkvæmt helgi-
sögnum á Jesús að hafa verið lagð-
ur til hinstu hvíldar í Grafarkirkj-
unni í Jerúsalem. Krossfarar börð-
ust við að frelsa kirkjuna undan
yfirráðum Tyrkja. Nú er jólaguð-
þjónusta kaþólskra haldin í kirkju
heilagrar Katarínu í Betlehem.
Hátíðamessa er líka í Fæðing-
arkirkju en þangað komast aðeins
útvaldir. Hinir syngja með kórum
á torginu fyrir utan og horfa á
athöfnina á sjónvarpsskermi. Mót-
mælendur heimsækja gjarnan -
hirðingjasléttuna - utan við Betle-
Glóðarvíni skenkt á þýskum jólamarkaði.
hem en eftir henni eiga María og
Jósep að hafa komið.
Þýskjól
Jólatréð og norrænir jólasiðir
koma að mestu frá Þýskalandi. í
upphafi aðventu (30. nóvember í
ár) er kveikt á jólatré á öllum
torgum í þýskum borgum og þorp-
■um. Alla jólaaðventuna liggur ilm-
ur af glóðarvíni og góðiim mat
yfir torgum t.d. við Römerberg í
Frankfurt. Sérkenni þýskrar jóla-
aðventu eru skrautlegir jólamark-
aðir. Aðalhátíðin er á aðfanga-
dagskvöld eins og hjá okkur. Jóla-
maturinn er jólagæs, engiferbrauð
og heitt glóðarvín. Margir fara í
kirkju á aðfangadagskvöld.
í fyrsta skipti í 45 ár fagna
allir Berlínarbúar jólum. Jólahald
var ekki bannað í Austur-Þýska-
landi en jóladagur var ekki helgi-
dagur - og erfitt að ná í jólatré.
Fólk kom saman í kirkjum en það
voru engar jólamessur. Á nýárs-
nótt, „Sylvester Nacht“, er mikil
flugeldahátíð í Berlín, sem sló öll
met í fyrra, þegar Brandenborgar-
hliðið opnaðist rétt fyrir jól. Öll
veitingahús eru opin í Berlín um
Listakona að leggja síðustu hönd á jólaengil, sem á að fara á
jólamarkað.
jólin. - Berlín er borg sem aldrei
lokar.
Dauf jól í London
Norskt jólatré piýðir Traf-
algar-torg í London - og aðventan
einkennist af jólatónleikum og
söngvum. En sjálf jólin eru fjöl-
skylduhátíð. Öll minni hótel og
veitingahús loka - hvorki neðan-
jarðarbraut, strætisvagnar eða
leigubílar starfa eðlilega. Jóladag-
ur er aðalhátíðin en lítið um að
vera á aðfangadag. Þá eru versl-
anir opnar eins og venjulega og
Englendingar eyða oft aðfanga-
dagskvöldi á kránni.
Frönsk hátíðamáltíð
í París er meira haft opið en í
London yfir jólin. Aðfangadagur
er venjulegur vinnudagur. Aðal-
hátíð á jóladag, en á annan í jólum
mæta flestir til vinnu. Á jóladag
fara margir út í sveit til að borða
jólakalkúninn. Á gamlárskvöld er
venja að fara út að borða. Flest
veitingahús eru með hefðbundna
áramótamáltíð; reyktan lax, ka-
víar, ostrur og kampavín. Um
tólfleytið safnast síðan fjöldi
manns saman í miðborginni.
Montparnasse, Latínuhverfið og
Champs-Elysées eru vinsæl. Allir
óska góðs árs og ókunnugir kyssa
hvern annan á kinnina. Á meðan
Þjóðverjar horfa á flugelda á
himni eru Frakkar hávaðasamari
og þeyta bílhorn með miklum lát-
um þegar klukkan slær 12.
Sólríkjól
Vinsæll áfangastaður um jól
eru Kanaríeyjar - að eyða jólunum
á sundlaugarkanti og strönd eða
dansa í diskóteki fram eftir nóttu.
Hitastig er um 20 gráður. En á
Majorka getur verið kalt og rign-
ingasamt um jól. Flórída og
Karabíska hafið eru líka að verða
vinsælir jólaleyfisstaðir. Loftslag
þar er þægilegt í desember og
janúar og vatnið hreint.
O.Sv.B.
í helgarverði Flugleiða til nokk-
urra borga er innifalið: þriggja
nátta gisting á 3. stjörnu hóteli,
morgunverður og flug. Frankfurt
kr. 32.400 - London kr. 35.000
-París kr. 33.900 -Glasgow kr.
26.000 -Amsterdam kr. 32.050
(4 nætur). Helgarpakkar eru að-
eins dýrari í desember. Gisting í
3 nætur á 4. st. hóteli og flug
yfir helgi til New York kr. 47.000
-til Baltimore kr. 41.000 (gilda
til 13.12.). Flórída -5 náttagisting
í Orlando, 10 nætur í St. Péturs-
borg og flug- frá kr. 78.000. Jóla-
ferðin til Kanaríeyja 19.12. -
9.1/91, frá kr. 83.400.
Jólaferðalög-
in í loftinu
Litið á fargjaldatilboð SAS
Jólaferðalögin nálgast. Milljónir manna taka sig upp og fljúga til
og frá um hnöttinn. Námsfólk hópast heim til litla íslands. Fjölskyld-
ur nota langt jólafrí til að heimsækja ættingja erlendis. Og enn
aðrir vilja hverfa frá jólaundirbúningi, jólastreitu og eiga langt og
gott jólafrí á framandi slóðum - eða upplifa skrautlega jólaað-
ventu og kaupa jólagjafir í stuttri ferð fyrir jólin. Við skulum líta
á hvað okkur er boðið upp á, hjá-
í helgarpökkum SAS til KAUP-
MANNAHAFNAR er boðið upp á
gistingu á 4 SAS hótelum. Brottför
á laugardagsmorgni og tilbaka á
mánudagskvöldi. Sem sagt tími til
að skemmta sér á laugardags-
kvöldi, hvíld á sunnudegi, en trú-
lega annasamur innkaupadagur á
mánudegi! - Athugið að biðja um
„Tax-Free“ eyðublöð eftir að hafa
verslað fyrir 600 DKR. (14-15%
afsláttur) í sömu verslun. - Fram-
vísið söluskattsnótum á Kastrup-
flugvelli til „customs service" áður
en þið bókið farangur inn. Frá
1.-23. desember er jólahátíð á SAS
Royal. Gisting í 2 nætur, morgun-
verður, flug frá 27.310 til 29.970
kr. í tveggja manna herbergi.
Skíðafólk getur notfært sér sér-
fargjald til ZURICH kr. 37.270.
Frá og með 4. desember er flogið
SAS.
til PARÍSAR frá KMH alla daga
nema laugardaga - tæpir 2 tímar
milli flugferða. Ódýrasta fargjald
til Parísar er á kr. 30.180. ISTAN-
BUL er vinsæll áfangastaður, enda
aðeins þriggja tíma flug til svo
framandi borgar þar sem margt
er að skoða og ódýrt að versla.
Fram til jóla er þar yfirleitt milt
haustveður, en oft kaldara eftir
áramót. Flogið er til KMH laugar-
daga eða þriðjudaga, gist þar eina
nótt og áfram til Istanbul daginn
eftir, þar sem dvalið er í 5 nætur.
Síðan samdægurs tilbaka um
KMH. Verð um 60 þúsund kr. fyr-
ir flug, gistingu með morgunverði
og ferðir til og frá flugvelli.
Athugið að flug til KAÍRÓ leggst
niður frá og með 3. desember -
eða þangað til spennan minnkar á
þessum slóðum. Vinsælasta
Glæsilegur framandi heimur á lystiskipi úti fyrir klettavirki á
Karabíska hafinu.
Ameríkuflug SAS frá íslandi er til
SEATTLE. Þá er gist í KMH á
útleið - gistiverð 2-3.000 kr. Lagt
af stað til Seattle kl.11.30 næsta
morgun og lent í Seattle um miðjan
dag. Mest er þetta fólk að heim-
sækja ættingja. Verð kr.
63,390.00.
í jólamánuðinum gilda jólafar-
gjöld til Norðurianda. Til OSLÓ,
BERGEN, KRISTIANSAND, STA-
VANGER kr. 30.750.00. Til
GAUTABORGAR kr. 32.050.00
-MALMÖ kr.35.820.00 -STOKK-
HÓLMS, JÖNKÖPING, NÖRR-
KÖPING, KALMAR og.VÁXJÖ kr.
37.630.00 VÁSTERÁS
kr.38.720.00.
Önnur sérfargjöld: Til SAO
PAULO kr.79.900.00, -NEW
YORK, CHICAGO kr. 59.510.00,
-LOS ANGELES kr. 73.430.00,
-AÞENA kr. 44.640.00, -RÓM kr.
42.640.00, -TEL AVIV kr.
46.280.00, -LISSABON kr.
46.280.00, -NICE kr. 44.390.00,
BARCELONA kr. 46.290.00.
Athugið að komu- og brottfarar-
dagur er bundinn í öllum þessum
fargjöldum, sem gilda fram til 31.
mars.
O.Sv.B.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1. DESEMBER 1990 1 1