Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1991, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1991, Blaðsíða 6
Iistasöfii lögst Eftir HANNES SIGURÐSSON að heyrðist ábyggilega einhvers staðar hljóð úr horni ef Listasafn íslands tæki allt í einn upp á því að selja listaverk til að standa straum af kostnaði á nýjum verkum. Látum svo að innkaupanefnd safnsins léti eins og einn „slapp- an“ Kjarval flakka í skiptum fyrir eitthvað eftir yngri kynslóðina, eða það sem líklega þætti verra, seldi verk eftir gömlu meistar- ana til að gera við þakleka, bæta kaffiað- stöðuna, eða byggja nýja sýningarálmu. Það er þó harla ósennilegt að Listasafnið muni nokkurn tíma grípa til slíkra örþrifaráða þrátt fyrir þann þrönga fjármálastakk sem því er sniðinn. Stofnunin er eign ríkisins og þau verk sem einu sinni komast í henn- ar geymslu fara þaðan ekki aftur á meðan þjóð byggir land, eða svo ber að vona. Öðru' máli gegnir um söfn í Bandaríkjun- um. Andstætt því sem þekkist heima eru þau oftast rekin sem sjálfseignarstofnanir og treysta þess vegna algjörlega á gjafmildi almennings, rausnarskap listaverkasafnara og fjárframlög risafyrirtækja, er virðast sjá ímynd sinni borgið með nafnbirtingu í sýn- ingarskrám. Hingað til hefur dæmið gengið upp tiltölulega snurðulaust, en með breytt- um skattalögum, síhækkandi listaverka- verði, versnandi efnahagsástandi og fallandi gengi hafa bandarísk söfn freistast til þess í stöðugt auknum mæli að selja frá sér lista- verk. Þetta listaverkabrask gengur undir heitinu „deaccessioning" („aflátssala,“ eða í bókstaflegri þýðingu „vanbót" sbr. viðbót) og er litið afar alvarlegum augum af þeim er ganga með þá flugu í hausnum að tilgang- ur safna sé fyrst og fremst sá að varðveita hluti en ekki standa í vöruviðskiptum. Ætl- aði allt um koll að keyra á síðasta misseri þegar Museum of Modem Art í New York (MOMA) seldi frá sér verk sjö stórmeistara til að hafa upp í eina mynd eftir van Gogh sem safnið ágirndist. Slíkar sölur og afleið- ingar þeirra eru nú þaulræddar um þessar mundir hér vestan hafs. Fyrirbærið er ekki nýtt af nálinnþfremur en svo margt annað í ríki listanna. Á fjórða áratugnum lét Hermitage-safnið 33 verk af hendi rakna til að minnka skuldahalla Sovétríkjanna við Bandaríkin og var fengur- inn nötaður til að koma hinu þekkta Nation- al Gallery of Art í Washington á legg. Fjár- hagskröggur Þýskalands eftir fyrri heims- styrjöldina urðu einnig þess valdandi að þarlend söfn misstu marga dýrmæta hluti úr sinni vörslu. Hitler bætti síðar gráu ofan á svart með því að leggja nútímalist og hennar málsvara í einelti. Listamenn eins og Kandinsky, Kirchner og Nolde vom bann- aðir, myndir þeirra teknar úr þýskum söfn- um og seldar úr landi eða hreinlega brennd- ar á báli. Glapræði af þessu tagi em héldur ekki óþekkt á Englandi og hafa söfn eins og British Museum, National Gallery og Vict- oria and Albert Museum öll einhvern tíma á ferli sínum staðið í sölubraski, en þó aldrei í miklum mæli. Almenn óánægja með þessi viðskipti leiddi til þess að Bretar settu mjög ströng lög í sambandi við slíkar sölur árið Það er nýlegt fyrirbæri í listaheiminum, að gömul og virt söfn.selji af listaverkaeign sinni til þess að Qármagna innkaup á einhverju mjög dýru og hefur til dæmis þótt nokkuð langt gengið, þegar Nútímalistasafnið í New York seldi verk eftir sjö stórmeistara listasögunnar til þess að fjármagna kaup á einni mynd eftir van Gogh. Til þess að hafa efni á að verða sér úti um myndina afpóstinum Joseph Roulin (1889) eftirvan Gogh, seldi Nú tímalistasafnið í New York (MoMA) frá sér málverk eftir sjö heimsþekkta listamenn, samtals að verðmæti 45 milljón- ir dala. Segja forr- áðamenn safnsins að þetta sé eina leiðin fyrir stofnunina til þessað geta lialdið áfram að bæta við sig nýjum listrænum landvinningum. „Evangelísk kyrra- Iífsmynd“ (1916) eft- ir de Chirico er eitt af þeim verkum sem MoMA varð að leggja ísölurnar til að eign- ast portrettið af Ro- ulin eftir van Gogh. brask r 1 4956 til að koma í veg fyrir að þjóðin missti enn fleiri góða muni úr landi. Sam- kvæmt þeim lögum er óheimilt að selja er- lendum aðila nokkurn þann hlut sem hefur verið í Bretlandi lengur en hálfa öld og metinn er á, samkvæmt tölum síðasta árs, yfir eina og hálfa milljón íslenskra sé inn- lendur kaupandi fyrir hendi. Á heildina litið hafa evrópsk söfn gloprað sáralitlu markverðu frá sér á síðustu áratug- um ef miðað er við Bandaríkin, en þau eru líkt og heima flest að hálfu eða öllu ríkisrek- in. Eftir að Bandaríkin urðu leiðandi afl í pólitík og listum í lok síðari heimsstyijaldar- innar varð mörgum söfnum ljóst að ekki væri nógu fínt að sitja uppi með eitthvert afdankað dót sem enginn vildi sjá. Voru heilu lagerarnir af listaverkum keyrðir i uppboðshúsin og seldir til þess að söfnin gætu haldið áfram að viða að sér meistara- verkum. Illræmdasta dæmið á sjötta ára- tugnum eru listaverkasölurnar í Minnea- polis, þegar nútímalistasafnið losaði sig vic hvorki færri en 4.500 verk á einu bretti, Listasögutímabilum sem falhð höfðu úi tísku, eins og það egypska, gríska og róm- anska, var þannig fórnað svo að safnif gæti eignast perlur eftir stærstu hetjui módernismans og forvera þeirra á síðari 6 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.