Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Page 7
í Noregi stóð. Einnig þessi mynd fékk al- þjóðlega dreifingu, þó ekki eins mikla og Hustruer fáum árum fyrr. En sjálfur stafnbúinn var þó fyrirsætan, leikkonan, handritshöfundurinn og leik- stjórinn Vibeke Lokkeberg. Mesta augna- yndi norskra ljósmyndavéla sýndi af sér gáska og góða takta í kvikmyndinni Le- perjenten (Hlaupastelpan) frá 1971, norskt nýraunsæi, litað af stemmningu eftirstríðs- áranna meðal þeirra sem bjuggu við bág kjör í Bergen; undur heimsins eru skoðuð á nærfærinn hátt með bamsaugum sem bæði stækka og bjaga alla atburði. Þetta sama sjónarhom bamsins er að vissu leyti fyrir hendi í myndinni Hud (Húð) sem fjall- ar um sifjaspell og var valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þessi mynd er eins konar þjóðvísa í kvikmyndar- búningi, sem frammi fyrir auga myndavél- arinnar' belgist út og snýst upp í útintútna Wagneróperu frá hinu stormasama Vest- urlandi. Smykketyven (Skartgripaþjófur- inn) er ástarsaga úr Ósló nútímans, sem annars er furðulítið notuð sem sögusvið í kvikmyndum. Á seinni áram hefur aðeins skáldsagan Leoparden (Hlébarðinn) borist hvers vegna þyrfti að keppa við Hollywood á þeim forsendum sem sú mikla kvik- myndaborg setti sjálf? Það væri í raun aðeins Leiðsögumanninum sem tækist slíkt. Með því vel að merkja að nýta hin samísku sérkenni, varðveita ræturnar í frosinni jörð. En það var kvikmynd með það óvenju veikburða nafn X sem reyndist vera hlekk- urinn milli karllegra og kvenlegra eigin- leika í norskum kvikmyndum. Oddvar Ein- areon, sem mest hefur fengist við gerð heimildarmynda, gaf fólki (í svarthvítu) innsýn í hvemig það er að vera stddur á röngum hnetti. Osló tók á sig mynd tungl- borgar. Myndmálið minnti svolítið á það hvernig sá mikli Rússi Tarkovskíj skapar andrúmsloft eyðingar og ragnaraka í myndum sínum, dregur upp mynd af and- lega útjaskaðri eyðimörk. Dómnefndin á Feneyja-hátíðinni veitti þessu verki sér- staka viðurkenningu; og þess má geta að í myndinni er spiluð næstum hljóðlaus rokktónlist meðan gefið er í skyn að enn geti kviknað ást milli unglinga sem fjand- samlegt umhverfi hefur ekki náð að bijóta niður. ,Ida litla“ gerist á hernámsárunum 1944-1945. Leikstjóri: Laila Mikkelsen. úr smiðju Lokkebergs, saga sem reyndar er hreint óvenju myndræn, en brátt slepp- ir hún Máfunum (Mákene) lausum í bíó — án þess að líta um öxl til Tsjekhovs. Um miðjan níunda áratuginn fóru svo strákamir að njóta sín svo um munaði. Andsvar þeirra við feminismanum var Orions belte (Óríonsbeltið), vöðva- og has- armynd sem gerist á heimskautasvæðun- um og veltir upp heimspólitískum spum- ingum. í kjölfar þessarar þrautagöngu- myndar fylgdu fleiri spennumyndir. Á sama tíma komu til sögunnar svokölluð kommanditt-félög sem gáfu einstaklingum kost á að festa fé í peningaveltufyrirtækj- um gegn skattaafslætti. Þessi félög fóra brátt að velta háum upphæðum. Nú skyldi reist norek Hollywood í ríki olíuauðsins. Til landans tóku að flykkjast frá ensku- mælandi löndum kvikmyndagerðarmenn sem ekki hafði auðnast að fjármagna verk- efni sín í heimalandinu — og var það auðnuleysi reyndar engin tilviljun. En í Noregi rúllaði þetta einhvem veginn, það er að segja það rúllaði á hausinn að lok- um. Og á meðan var blaðalesendum séð fyrir nóg af krassandi lesningu. En þetta fjármálaævintýri jók engu að síður tengsl- in við áhorfendur og áhuga manna á norsk- um- kvikmyndum og bíói yfírleitt. En meðan á öllum þessum hamagangi stóð, allri yfirborðsmennskunni með öllum sínum kvikmyndagreinum, skrauti, brota- brotum var næstum alveg stolið úr mönn- um hvað listrænn metnaður þýddi fyrir nokkuð. Og margir vörpuðu fram þeirri spurningu hvemig stæði á að skattborgar- ar þyrftu að punga út fyrir öðru eins sukki og viðgengist í kvikmyndagerðinni. Eða Og alveg undir lok áratugarins kom fram enn ein frumraunin sem lofaði góðu. Enda þótt heimsmarkaðurinn hafi ekki tekið öllum jafn vel og Leiðsögumanni Nils Gaups, fékk þó Martin Asphaug að minnsta kosti norrænu byijendaverðlaunin fyrir frumraun sína En hándfull tid (Hand- fylli af tíma). Hér er á ferðinni blanda af siðrænu raunsæi, symbólisma, súrrealisma eða töfraraunsæi. Hvenær hefur hug- myndaflugið áður laðað fram erkiengil í norekri mynd? Þessi myndræna glima við tímann og rúmið á kannski eftir að ýta undir listrænan metnað hjá fleiram, þann- ig að norekir kvikmyndagagnrýnendur þurfi ekki lengur að rísa upp og lýsa yfir einum munni að nú sé greinin endanlega komnin í listrænt þrot. Norðmenn eiga handfylli af hæfum leik- stjórum, marga stórgóða myndatökumenn og leikmyndasmiði miðað við aðstæður og mannfjölda, margt vel þjálfað fagfólk á öllum sviðum greinarinnar og leikara sem alls ekki þarf að skammast sín fyrir að sýna. Eina undantekningin frá þessu síðastnefnda er reyndar eina alþjóðanafnið sem kenna má til Noregs, Liv Ullmann, sem ekki hefur lekið í norskri bíómynd síðan 1959! Kvikmyndagerðin í Noregi er eins og veðurfarið — stórviðrasöm og ofankom- urík, stundum er allt á kafi í snjó — grá- móskuleg eða sólrík, full af fágaðri alvöru — líkt og Brand í samnefndu leikriti Ibs- ens eða gáskafull eins og Pétur Gautur. Þegar best lætur geta norskar kvikmyndir náð langt út fyrir hóp norskra áhorfenda. Þýðing: Kjartan Árnason Höfundur er kvikmyndagagnrýnandi Aftenpost- ens. Ljóð háskólanema ÓLÖF KRISTÍN PETURSDÓTTIR Hugarvíl Simdurlaust, litskrúðugt sáldrast það yfir, líkast bréförðum á kjötkveðjuhátíð. Gargandi flugeðlur fylla loftið. Ekki er víst að nokkur leynist að baki gifsgrímu sem dansar við hjartslátt. Grátandi truðar þurfa ekki grímu og ganga við kveinstafi. VILBORG DAVÍÐSDÓTTIR Gráttu Gráttu brostnar vonir gráttu gamla drauma sem aldrei rættust. Gráttu orðin sem flugu eins og eiturörvar um stofuna gráttu hatrið sem var sáð — ogtilveruna sem þú uppskarst. Gráttu, það er svo gott. ÞORBJÖRG HRÓARSDÓTTIR Án titils Þegar hún nálgaðist heyrði hún nið hafsins og hún fylltist gleði og fögnuði því hún hafði svo oft séð fólkið sem lá í sólbaði á ströndinni eða sem lék sér fijálst í flæðarmálinu og hún settist niður og skrifaði hugsanir sínar í sandinn ogaldan skvettist yfir hana en þegar hún stóð upp varð henni Ijóst að hafíð hafði tekið hugsanir hennar með sér. Ljóðin eru úr Úrvali Ijóða háskólanema veturinn 1990-1991, sem Stúdentaráð Háskóla Islands hefur gefið út og ber heitið „Þessi ást/Þessi ást". Athugasemd vegna greinar um Kvæðakver Halldórs Laxness Þann 29 september síðastliðinn birtist í breytingar og leiðréttingar, sern Halldór Lesbók grein eftir Gerði Kristnýju undir hefur sjálfur gert. fyrireögninni „Kvæðakver Halldóre Lax- ness“. Lesbók hefur borist bréf frá Erni Heimildaskráin, sem upphaflega Ólafssyni, lektor í íslenzku við Kaup- fylgdi grein Gerðar Kristnýjar, er svo- mannahafnarháskóla, og óskar hann hljóðandi: skýringa á „rittengslum" við grein eftir 1) Halldór Laxness: Kvæðakver. hann sjálfan, sem birst hafði í Skírni. í Reykjavík 1930. Prentsmiðjan Acta. bréfi Amar stóð m.a.: „Greinilega bygg- 2) Halldór Laxness: Kvæðakver. ist greinin að hluta á grein minni: „Ungl- Reykjavík 1956. Helgafell. ingurinn í skóginum og Alþingi“, sem 3) Halldór Laxness: „Hin hvítu skip birtist í Skírni 1985, en þess er hvergi Böðvare Guðmundssonar." Tímarit Máls getið, þótt hinsvegar sé kirfilega vitnað og Menningar 1939. Reykjavík. til greinar eftir Óskar heitinn Halldórs- 4) Halldór Laxness: Vefarinn mikli frá son. Þetta er heldur ógeðfellt, vægast Kasmir. Reykjavík 1957. Helgafell. sagt, og ég vona að skýringin sé klaufa- 5) Heimir Pálsson: Straumasr og stefnur skapur byijanda". í íslenskum bókmenntum frá 1550. Lesbók hafði samband við höfundinn, Reykjavík 1978. Iðunn. Gerði Kristnýju, og kom þá í ljós, að 6) Jakob Benediktsson: Hugtök og heiti greininni hafði fylgt heimildaskrá, þar í bókmenntafræði. Reykjavík 1983. Mál sem m.a. var getið um ritgerð Árnar og Menning. Ólafssonar. Af vangá féll þessi heimilda- 7) Óskar Halldórsson: „Kvæðakver“. Sjö skrá niður við birtingu og átti höfundur erindi um Halldór Laxness. Reykjavík enga sök á því. 1 þessu sambandi eru 1973. Helgafell. þó nefndar heimildir nánast aukaatriði 8) Örn Ólafsson: „Unglingurinn í skógin- hjá síðunum úr bókinni, þar sem sjást um og Alþingi". skírnir 1985. Reykjavík. Hallaðu þér upp að brjóstum mínum og finndu hvað þau eru mjúk og hjarta mitt samúðarfullt — gráttu út. Snýttu þér svo í tilfinningar mínar og farðu heim til hennar sem þarfnast þín meira en ég. Óminnishegrinn lætur á sér standa. Skrjáfar í fáum fjöðrum erhann blakarþreyttum vængjum án þess að hefjast á loft. Dautt sem duft fellur það yfir, grá og gljárök aska, kross á hvítu enni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. MARZ 1991 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.