Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 9
Abstraktmynd, 1974. „Jú, til dæmis Kristján Davíðsson. Hann lét sig aldrei og var það þó ekki vel séð. Eftir að hann losnaði undan ofurvaldi Dubuffets, kom fram þessi lýríski málari, sem hann er og hefur verið æ síðan. Engil- berts hefði átt að vera með okkur, en hann var í fjandaflokknum af persónulegum ástæðum milli þeirra Þorvaldar. Jóhannes Jóhannesson má segja, að hafi aðeins tekið trú með hálfum huga. Það var aldrei til fulls. En Jóhannes Geir var þarna fyrir ut- an, einn á báti og málaði bará minningar af Króknum, fjandi góðar myndir; það sér maður núna. Sá eini sem komst upp með að vera „stikkfrí" var Sigurður Sigurðssón. Hann var meðtekinn eins og hann var; enda sáu menn að hann var góður málari og auk þess mikill vinur þeirra í klíkunni. Trúboðið gekk alls ekki svo langt, að þeim gömlu, Ásgrími, Kjarval og Jónl Stef- ánssyni, væri hafnað; það var öðru nær. Slagurinn stóð við miðkynslóðina. Þar voru erkifjendurnir og inn í þann hóp var Jóni Engilberts ýtt, þó hann ætti þar ekki heima. Þar voru fyrir Guðmundur frá Miðdal, Jón Þorleifsson, Gunnfríður Jónsdóttir, Frey- móður og Ásgeir Bjarnþórsson, sem skamm- aðist þó út í alla. Á bak við þetta voru líka pólitísk trúar- brögð. Menn þóttust vera „intelektúal", menn þóttust vera húmanistar og sem slíkir urðum við að vera kommúnistar. Þetta hnýttist saman í allsheijar trúarbrögð." „Þú sagðist eiga fáar myndir í söfnum. Hefurðu verið tregur við að selja þeim mynd- ir?“ „Ég hef einfaldlega aldrei komist í náðina á þeim slóðum; þó átti það sér frekar stað á meðan ég var yngri, að Listasafn Islands keypti af mér mynd. En á öllum mínum helztu sýningum hefur safnið alls ekki keypt neitt. En ég er ekki sá eini, sem safnið hefur vanrækt að þessu leyti. Innkaup þess-' arar stofnunar hafa langalengi verið með eindæmum, en ekki alltaf. Það er engin til- viljun hve safnið á góðar myndir eftir Kjarv- al og Ásgrím frá fyrri árum. Það var vegna þess að Valtýr Stefánsson var lengi formað- ur Menntamálaaráðs og annaðist þá innkaup fyrir safnið. Mér finnst fremur líklegt, að hann hafi notið leiðsagnar Kristínar konu sinnar við það val. Þetta var dæmi um menntað einræði, sem getur stundum gefist vel. Að minnsta kosti efast ég um, að þetta val hefði tekizt betur þótt málið hefði verið sett í nefnd. Nú á safnið sem betur fer lykil- verk eftir þessa brautryðjendur. Ég komst í safnráð í ráðherratíð Magnús- ar Torfa og móðgaði þá forstöðukonuna í safninu. Eftir það var ekki annað að sjá en ég væri kominn á svartan lista, því eftir það voru ekki keyptar af mér myndir. Það var makalaust hvernig Selma ráðskaðist með þetta eftir áliaflega þröngum eigin smekk og ég sé ekki að það sé hætishót Haldið á mynd, 1990. eftir þessari línu, líka húsgögn og annað innanstokks. Ég held samt að fatnaður hafi sloppið við þessa formbyltingu." „Og áhrifin á myndlistina komu aðallega frá París?“ „Þau komu eingöngu frá París. Við höfð- urn allir verið þar, því þar var nafli heims- ins. London þekktu menn rétt af afspurn og enginn vissi til þess að neitt væri að gerast þar, þótt annað kæmi í ljós síðar. Hér heima biðu menn með óþreyju eftir franska mánaðarritinu Art Aujourdhui, sem var þó ekki litprentað. En það var uppfullt af franskri geómetriu og ég kalla, að það hafi beinlínis verið stæit. Á þennan liátt var liægt að raða saman litum á penan máta og ég álít, að Karl Kvaran hafi fengið mest út úr þessu. Auðvitað hefur það lengi verið þannig, að framúrstefnumenn taki mið af því sem þeir sjá í bókum og blöðum. Mér er minnis- stætt, að eitt sinn varði ég stærstum hluta mánaðarlaunanna til þess að eignast lista- verkabók um brezka myndhöggvarann Hem-y Moore. Hún var lengi í láni, bæði hjá Karli Kvaran og Ásmundi og það er auðvelt að sjá, þegar blaðað er í bókinni, að báðir hafa heldur betur farið í smiðju til Moore.“ Síðar hefur komið í Ijós, að sumir hættu að mála á meðan þetta gekk yfir. En voru ekki einhverjir, sem þráskölluðust og héldu sínu striki?"

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.