Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 11
FERD4BMÐ LESBÓKAR Páll í essinu sínu, á siglingu með PH Viking, innan um ferðamennina. Rætt við ferðamálafrömuð ársins, Pál Helgason Þrettánda febrúar sl. ríkti eftirvænting á Holiday Inn, þar sem mikið af ferðaþjónustuliði var samankomið. Eftir fáeinar mínútur yrði tilkynnt hver yrði útnefndur Ferðamálafrömuður ársins á vegum ferðatímaritsins Farvís. Menn spurðu og spjöll- uðu um hver þetta gæti verið? í mikilli samkeppni eins og ríkir milli fyrirtækja í ferðaþjónustu, yrðu örugglega ekki allir sammála um útnefningu. En þegar nafn gamalkunna eyja- peyjans Páls Helgasonar kom upp, færðist bros yfir öll andlit — um hann voru allir sammála! — Af hverju heldurðu að þú hafir verið útnefndur, Páll? „Kannski af því að hjá mér koma allir að grænu ljósi. Það er sama hvort það er 1 maður eða 100 manns, hvort það er forseti eða launþegi — hjá mér gildir „það besta fyrir alla“. Einn ferðamað- ur fær skoðunarferð á við heilan hóp. Ég tek alltaf á móti farþeg- um úti á flugvelli eða við skip. Ferðaskrifstofur og flugfélög sem skipta við mig vita þetta og finnst það mikils virði.“ — Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða, sagði að í fyrsta skipti sem hann sá þig, hefðir þú geyst inn á skrifstofu til hans og hund- skammað hann. Af hveiju? „Við úti á landi viljum að ferðaskrif- stofur standi við sitt. Helgi hafði pantað fyrir heilan hóp sem ekki kom — og ég reiddist og tók næstu flugvél í land.“ — Síðar sagðist Helgi hafa komið til að forvitnast af hverju allir væru svona ánægðir hjá þér — og það tók hann aðeins klukkutíma! „Já,“ segir Páll og hlær. „Hann fór út á bát með mér. Og Eyjarn- ar heilluðu hann eins og marga aðra. Mitt starf er fólgið í að hjálpa ferðamönnum til að njóta eyjanna." „Opnið augun og skynjið" „Eyjarnar eru eins og opin Páll með blómakörfuna sem bæjarstjórn Vestmannaeyja sendi honum í tilefni af kjörinu ferðamálafrömuður ársins. margir aðrir, en tóku aldrei neina borgun. Við bjuggum í stóru húsi og þar var alltaf opið hús fyrir gestkomandi sjómenn og fjái-vana íþróttahópa ofan af landi. Eitt sinn sagði faðir minn við mig, að ég yrði að leiðbeina einum hópnum um eyjarnar. Ég varð dauðhræddur og sagðist ekki geta sagt neitt. „Segðu það sem þú veist,“ sagði faðir minn, „allir vita meira um sína heima- byggð en gestkomandi!" Og ég fór í mína fyrstu ferð sem leið- sögumaður!“ Skrítin hestanöfn í Vestmannaeyjum! „Við ókum fram hjá hvítgirtu leiði við veginn. Og ég fór að segja þeim sögur af hestabónd- anum á Kirkjubæ, sem átti svo einstakan góðhest, að hann drapst ekki — en dó. Bóndi gróf hann með reiðtygjum og öllu, lét reisa legstein, gróðursetti blóm og girti í kring. En ég var svo óheppinn, að einn úr hópnum stökk yfir girðinguna og las á steininn. „Þau eru skrítin hesta- nöfnin í eyjum,“ sagði hann sposkur á svip. „Aldrei hef ég heyrt fyrr um hest, skírðan Jón Þorsteinsson píslarvott!" Þama hafði eitthvað skolast til í kolli litla eyjapeyjans. Auðvitað var þetta gröf séra Jóns, en ekki einhvers gæðings Kirkjubæjar- bóndans!“ I skoðunarferð um nýja hraunið gæða ferðamenn sér á glóð- volgu, nýbökuðu rúgbrauði upp, úr „bökunarofni" hraunsins. skólabók fyrir náttúruunnendur, jarð- og fuglafræðinga. Ég opna bara bókina og hjálpa fólki til að lesa hana.“ — Það er sagt að þú hafir byijað í ferðaþjón- ustu aðeins 11 ára. „Á ég að segja þér,“ segir Páll, „fyrir nokkrum árum kom fullorðinn maður hingað í skoðunarferð. Hann leit á mig og skellihló. Hann hafði verið með mér í minni fyrstu leiðsöguferð, þegar ég var 11 ára og aldrei gleymt sögunni sem ég sagði þá. Foreldrar mínir stunduðu ferðaþjónustu, kannski meira en Litla gula hænan „Ferðaþjónusta er eins og sag- an um litlu gulu hænuna. Óhemjumikið þarf að leggja í uppbyggingarstarfið. Hjá þeim, sem halda sig geta byijað án þráðar eða upphafs, er ekki von á góðu. Ferðaþjónusta er hóp- Eyjar, opin skólabók fyrir náttúrufólk

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.