Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Qupperneq 12
I i « unum halda sig hafa gleymt einu núlli — verðið er það hagstætt. Fyrir Islendinga eru Bandaríkin eitthvert ódýrasta ferðalandið sem stendur. Hamborgari í Bandaríkj- unum kostar frá hálfum dal eða 27 kr. Ég og bandarískur vinur minn fórum sl. viku á hamborgara- stað í Reykjavík og borguðum 1.210 kr. sem samsvarar 20 dölum fyrir: 1 tvöfaldan ostborgara, 1 venjulegan, 1 stórt og 1 lítið kók- glas! Og athygli okkar var vakin á því að þetta væri tilboðsverð. — Er nokkurt vit í þessu, ég spyr?“ í framhaldi af hugleiðingum Páls er fróðlegt að bera íslenska verðið saman við nokkur veitinga- hús í London, þar sem matseðill var svipaður. í öllum tilfellum var um kjötrétti að ræða. Sá fyrirvari er hafður á, að hér er aðeins verið að leika sér með tölur. í Leonis Quo Vadis, sem er mjög þekkt veitingahús, var verð á mann kr. 2.224 eða 4,3 sinnum lægra en íslenska verðið; í Lupa restaurant, líka þekkt, kr. 2.575 kr. eða 3,8 sinnum lægra; á mjög góðum ind- verskum stað kr. 1.465 eða 6.6 sinnum lægra. Og svona mætti lengi halda áfram. O.Sv.B. Heimilis- skipti á veg- um Intervac 30. september 1989 birtist í Ferðablaðinu kynning á Intervac, alþjóðasamtökum um heimilisskipti. Síðan hafa borist ótal fyrirspurn- ir, sem hér er svarað. Starfsemi Intervac er alltaf að aukast. Samtökimstarfa nú í yfir 47 löndum og eru með skrifstofu hér á landi. Þau voru lengi bundin við kennara- stéttina sem stofnaði þau, en fólk úr öllum starfsstéttum býður nú heimili sitt í skiptum. Samtökin sjá um tryggingar og útvega meðmæli. Þijár upp- lýsingabækur eru gefnar út árlega með myndum og upp- lýsingum um heimilin. Þeir sem hafa áhuga geta_ látið skrá sig og heimili sitt. Árlegt félagsgjald með þremur bók- um er kr. 3.800. Aðalstarfsemin felst í því að fólk skiptist á heimilum í fríinu. Traust verður að takast á milli skiptifjölskyldna. Oft myndast vináttusamband með bréfaskriftum og símtölum. Félagsmenn bjóða líka „gest- risni“ — eða bjóða gistingu á heimili sínu með einhverskon- ar skiptum, e.t.v. borga með mat eðá þjónustu á heimilinu. Nýlega var íslensk stúlka í þriggja mánaða námi í Frakkl- andi og þáði „gestrisni" hjá fjölskyldu í Intervac. „Hús- seta“ er einnig í boði. Þá vilja fjölskyldur að einhver taki ábyrgð á heimili þeirra á með- an þær eru fjarverandi, aðeins gegn ábyrgð á húsi og góðri umgengni. Nánari upplýsingar hjá Int- ervac á íslandi, Elísu M. Kwas- zenko, Nýbýlavegi 42, Kópa- vogi. Símsvari er opinn allan daginn, en Elísa er með síma- tíma daglega milli kl. 7 og 9 á kvöldin í síma 44684. vinna. Og þegar búið er að starfa í þessu í jafn mörg ár og ég, skapast vináttusamband milli einstaklinga og þjónustan verður ósjálfrátt betri. I ferðamálum geta menn alltaf gert betur. Ef einhver sem starfar í ferðaþjón- ustu, álítur sig ekki geta gert betur, þá er hinn sami staðnaður í starfi sínu og á að hætta. Ferða- þjónustan er miklu kröfuharðari en áður og það er meira að gera, sem er vel.“ Ferðaþjónusta Vestmannaeyja „Pabbi tók á móti ferðamönn- um, ég hef lifað og andað í ferða- ' þjónustu frá því að ég man eftir mér — og synir mínir fjórir og tengdadætur starfa nú með mér við Ferðaþjónustu Vestmanna- eyja, sem við rekum. Segja má að við feðgarnir séum með alla þræði ferðaþjónustu í eyjunum og séum þar leiðandi afl. Við rekum tvö hótel: Hótel Bræðra- borg (gamla Gestgjafann) sem býður upp á betri gistingu en víða uppi á landi, t.d. sjónvarp og sími í hveiju herbergi; Gisti- húsið Heimir sem er ódýrari gist- ing; bjóðum líka svefnpokagist- ingu. Og punkturinn yflr i-ið er báturinn okkar, PH Viking. Fólk hefur jafnvel látið gifta sig um borð og lyft kampavínsglösum í hellum úti í eyjum! Á Hótel Bræðraborg er svarað fyrir Ferðaþjónustu Vestmanna- eyja. Fólk getur hringt til okkar, pantað gistingu, máltíðir, bókað sig inn á skemmtanir eða í skoð- unarferðir. Hópar og einstakl- ingar gera mikið af því að hringja og leita tilboða. Og við reynum alltaf að gera okkar besta.“ Ákvað að eiga afmæli! „Með vorinu koma skólamir, sumir ár eftir ár. Það vorar allt- af fyrst í Vestmannaeyjum; orðið hvanngrænt þegar snjór er kannski enn fyrir norðan. Svo eru allskonar starfsmannahópar og blessuð kvenfélögin. Það er svo gaman að taka á móti „mak- alausum" konum! Eitt sinn var óvenju þungt yfír blessuðum konunum, svo að ég ákvað að eiga afmæli og bauð upp á tvö- faldan „screw driver“. Það kvöld endaði á dansleik með miklu fjöri! Maður reynir alltaf að gera sitt besta!“ Háhyrningavaða við golfvöllinn „Golfvöllurinn í Eyjum er til fyrirmyndar og mikið sóttur. Að sjálfsögðu tek ég eiginkonur kylfinganna að mér — ef þær stunda ekki golf. Eitt sinn kom Jóhann Sigurðsson, starfsmaður Flugleiða í London, með hóp. Gott kvöld á veitinga- húsi í Reykjavík „Veitingahús á íslandi verða að fara að gera eitthvað! Ferða- menn hrökkva við þegar þeir bera saman verðið hér og heima hjá sér,“ segir Páll Helgason, nýkjörinn ferðamálafrömuður ársins. „Við vorum 5 saman sem vildum eiga gott kvöld á veitingahúsi í Reikningurinn má ekki standa í viðskiptavininum! Reykjavík í síðustu viku. Vínföng- in: 3 borðvínsflöskur, 5 fordrykkir, 3 koníak og 2 líkjörar með kaff- inu, fóru upp í 23.533 kr. Marg- réttaður matseðill kostaði 4.800 kr. á mann eða 24.000 kr. Mest blöskraði mér að koníakið með kaffinu — naumt skammtaður dreitill neðan í glas — skyldi kosta kr. 1.470 á mann! Að vísu var þetta Camus, sem er „klassa“-kon- íak. En ég vil taka fram að matur- inn var mjög góður og þjónustan til fyrirmyndar. Það er nærtækt fyrir mig að bera verð á þessu eina kvöldi sam- an við 9 daga ferð fyrir tvo til Hawai frá Los Angeles, sem ég er nýbúinn að fara. í þeirri ferð var innifalið 5 tíma þotuflug fram og til baka og gisting í 9 daga á góðu hóteli á Hawaii. Sú ferð kost- aði 58.300 kr. eða 29.150 kr. á mann, á meðan kvöldmáltíð fyrir 5 kostar 48.463 kr. eða 9.692 kr. Óvíða í heiminum er sjónarhorn kylfinganna skemmtilegra í björtu veðri. vöðu fast við golfvöllinn! Flestar helgar eru mót í Eyjum og við státum af einni bestu íþróttamiðstöð á landinu. Sú eina úti á landi, þar sem fatlaðir geta keppt.“ „Ferðahvetjandi" eldgos — Hvaða áhrif hafði eldgosið á ferðaþjónustu? „Eldgosið losaði um litla samfélagið úti í eyjum og hafði bætandi áhrif á íslenskt mannlíf. Vestmanneyingar urðu víðsýnni, fóru að ferðast meira og gerðu sér betur grein fyrir kostum eyjanna, góðu mannlífi og öruggri atvinnu. Harðasti kjarni eyjabúa varð eftir, en þeir sem fóru upp á land, komu sér vel fyrir. Ferðamenn mæta opnu og vingjarnlegu samfélagi í Vest- mannaeyjum. Eyjabúar hafa gaman af að tala við ferðamenn. Eldgosið hefur fært okkur nær hvert öðru, því við vitum að þeg- ar eitthvað bjátar á standa íslend- ingar saman. Og eldgosið gerði Vestmannaeyjar, bæði náttúru og samfélag, að mjög eftirsóttum áfangastað fyrir ferðamenn.“ O.Sv.B. Verð í tveggja manna her- bergi með morgunverð: Hótel Bræðraborg kr. 4.800 á mann; Gistiheimilið Heimir kr. 4.000 í herbergi með baði, kr. 3.500 í herbergi með handlaug. Svefn- pokagisting kr. 700. Pakkaferðir fyrir skólana í ár kr. 5.500, frír fararstjóri á hveija 14-25 nem- endur. Hópverð fyrir 8-10 manns með 2 kvöldverðum, skoðunar- ferðum og tveggja nátta gist- ingu um 9.400 kr. Sprangað efst úr fuglabjörgum, ofan við höfn og báta. Og ég fór með eiginkonurnar út á bát. Kylfingarnir sáu bátinn snúast hring eftir hring á sjónum fast við golfvöllinn og álitu hann bilaðan. Þeir hentu frá sér kylfu og kúlu og hlupu til bjargar, en var snúið til baka. Eiginkonurnar og Páll höfðu lent í háhyrninga- 005 5 SHÖKKUNARSEDILL 24000 4 V0DKA 900 2 DJUS 260 1 BI^TER CAMPARI 308 1 cos 150 1 DJUS 130 1 CHERRY 210 13/02/91 SAMTAL 25958 005 2 DU PAPE 11390 13/02/91 SAMTAL 37348 005 1 DU PAPE 5695 005 5 MOLAKAFFI 650 3 CAMUS EXTRA 4410 2 LIKJÖR 1 360 13/02/91 SAMTAL 48463 INNIFALINN VSK 2A.50Z 9537 ALLS. A8463 G.K0RT «48463 Reikningur Páls fyrir 5 manns á reykvísku veitingahúsi hljóð- aði upp á litlar 48.463 kr. á mann. Ég er nýbúinn að dvelja 2 mán- uði í Kaliforníu og verðmunur á máltíðum hér og þar er ótrúlegur. í Las Vegas er allt gert til að lokka þig inn í spilavítið. Og þar er verð- lag á máltíðum einstaklega hag- stætt. Góður morgunverður þar kostar frá 0,99-1,45 bandaríkjad- ala (55-78 kr.) og algengt að borga 4 dali (220 kr.) fyrir fulla máltíð. Annars er það alþekkt að þeir sem fara út að borða í Bandaríkj- 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.