Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Page 13
..
,
- "U'v' .. .
Pjakkaklúbbur Veraldar við sandkastalavirki á ströndinni.
Hvað býður V eröld?
Andri Ingólfsson situr fyrir svörum
Og við höldum áfram að kynna okkur ferðaskrifstofu-þjónustuna.
Andri Ingólfsson er framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Ver-
aldar. Andri hefur flakkað víða um heim, átt heima á Spáni um
árabil og í Bandaríkjunum, verið fararstjóri þar og víðar. En
hvað býður Veröld; ný ferðaskrifstofa á gömlum grunni?
nýir, 1-4 ára, með einni undan-
tekningu og ný íbúðahótel eru í
boði á öllum áfangastöðum okkar.
Hreinna umhverfi — meira
öryggi
Frá fjórða áratugnum var stöð-
ug sókn ferðamanna til Spánar,
sem verulega dró úr síðustu árin.
En nú er stóraukin eftirspurn, sem
er athyglisvert. Fólki finnst Spánn
vera bæði heillandi og öruggur
dvalarstaður. Spánska ríkisstjóm-
in er með fjárveitingu í að auka
enn við eftirlit á ferðamannastöð-
um og miklu fjármagni er nú veitt
til uppbyggingar og hreinsunar
og gatnakerfið hefur gjörbreyst
til hins betra. Spánverjar eru
meðvitaðri um umhverfi sitt.
íslendingar eru hópsál; vilja
vera saman í fríinu og í hringiðu
mannlífsins. Til dæmis er athygl-
isvert að vinsælasti áfangastað-
urinn er Benidorm, sem má
kannski líkja við Manhattan í New
York — samþjappað mannlíf á litlu
svæði og mikil kvöldstemmning.
íslendingar elska að geta gengið
út í hlýtt kvöldið, útimarkaði og
opin veitingahús, sem Spánarfríið
veitir þeim ríkulega.
—Eru erfiðir tímar í íslenskri
ferðaþjónustu, Andri? „Veröld
byijaði 1989, á erfiðasta ári í ís-
Ienskri ferðaþjónustu um langt
árabil. Við áttum stóran hóp við-
skiptavina og starfsfólks með
mikla reynslu í ferðaþjónustu.
Með þetta að leiðarljósi lögðum
við upp og vöxturinn hefur verið
ótrúlega hraður. í fyrra fóru
5.200 farþegar með okkur í leigu-
flugi, þriðjungi fleiri en árið áður
— 5.000 manns í áætlunarflugi.
í sumar munu líklega 7.000 far-
þegar fljúga með leiguflugi okkar.
Þjónustutrygging, góð
„vara“
Mér hefur oft fundist þjónusta
við ferðamenn of einhæf; ekki leit-
að leiða til að gera „vöruna“ betri.
Samkeppni um áfangastaði er að,
baki, því flestar ferðaskrifstofur
bjóða Spán í leiguflugi. Nú er
samkeppnin fólgin í að bjóða bestu
„vöruna“. Veröld býður þjónustu-
tryggingu, sem þýðir að við
ábyrgjumst aðbúnað farþega okk-
ar. Og þetta hefur haft sitt að
segja, eins og könnun á vegum
Félagsvísindastofnunar sýndi. I 2
ár í röð hefur Veröld verið með
ánægðustu farþegana.
Smáátriðin skipta geysimiklu
máli. Ef íbúðir eru orðnar „þreytt-
ar“ — líta ekki nógu vel út, njóta
gestir hvíldar ekki eins vel. Það
er áberandi hvað farþegar okkar
hafa verið ánægðari með Kanarí-
eyjar í vetur, af því þar var nú
gist í glænýjum íbúðum. Sólar-
landafarar leita með hverju ári
eftir meiri gæðum. Sá tími er lið-
inn að fólk láti sér nægja lélega
gististaði, aðeins til að komast í
sólina. Allir gististaðir okkar eru
Sundlaugargarður við Trabolgan-sumarhúsin á írlandi.
Fólk vill ráða hvað það dvelur
lengi í fríinu og við verðum með
vikulegt dagflug á alla áfanga-
staði á Spáni frá 23. maí fram í
október — með Oasis til Alicante
og Costa del Sol og með Flugleið-
um til Mæjorka og Ibiza. Það er
mikið öryggi og þægindi í þessu
beina flugi milli íslands og Spán-
ar.
Mæjorka er vinsælasti fjöl-
skyldustaðurinn og gististaðir
okkar eru á Alcudia, sem er ein
hreinasta ströndin með merki bláa
umhverfisfánans.. Uppbygging á
Alcudia er ný, sem þýðir nýja,
rúmbetri gististaði og rýmra um-
hverfi í kring.
Beint flug vikulega til írlands
Suður-Irlands frá 7. júní fram í
miðjan ágúst. Flogið verður til
Cork, en þar í kring er mikil nátt-
úrufegurð. Þetta eru ódýrustu
ferðirnar og í írlandi er ódýrt að
lifa. Við bjóðum upp á glæsileg
sumarhúsaþorp, með sambæri-
lega þjónustu og t.d. orlofshús í
Borgarfirði, — en líka sumarhúsa-
garðinn Trabolgan með alla þjón-
ustu: yfirbyggða sundlaug með
rennibrautum, gufuböð og sólar-
lampa, íþróttamiðstöð, veitinga-
hús, krókódílaklúbb fyrir börnin
o.fl. Trabolgan er 35 km frá Cork,
við góða sandströnd. Veðrið hefur
verið mjög gott þarna sl. sumur
svo hægt hefur verið að stunda
sjóböð. Þeir sem gista í sumar-
húsaþorpi geta gengið inn í þjón-
ustuna í Trabolgan.
Ég held að Islendingum muni
líða vel á írlandi. íslenskur farar-
stjóri verður á staðnum. Hægt er
Að komast í burtu frá öllu
amstri ...
að komast í góða laxveiði í 3-4
daga á kr. 2.500; í verslunarferð-
ir til Cork og Dublin eða snæða
kvöldverð í kastala. Tvær vikur í
sumarhúsi eru á meðalverði: kr.
31.250 á mann (2 börn, 2 fullorðn-
ir). „Flug og bíll“ og gisting með
morgunverði í viku á bóndabæjum
eða iitlum hótelum: kr. 29.000.
Hægt er að flakka á milli bónda-
bæja, kaupa ákveðinn fjölda af
gistinóttum og ákveða gistingu
rjk
%
%
Fjölskyldan sam-
einast í hollri úti-
veru.
samdægurs, eða gista á herra-
görðum, sem er aðeins dýrara.
Veraldarreisur og Flórída
Við bjóðum líka 3-7 daga sigl-
ingu um Karíbahaf frá Miami á
Carnival Cruise Line á hagstæðu
verði. Til Flórída eru 10 daga
ferðir algengastar (7 daga sigling
og 3-4 dagar á Miami) og verð
um 85.000 kr. Gríska eyjahoppið
er sívinsælt. Þú ákveður brottför
og komudag, en ræður svo ferð-
inni í Grikklandi er þú flakkar á
milli Aþenu og eyjanna."
Veraldarreisur með Ingólf Guð-
brandsson sem fararstjóra, eru
þriggja vikna ferðir um framandi
heimshluta. Um páskana verður
farið um Gullna þríhyrninginn í
Suður-Ameríku; Brasilíu, Chile og
Argentínu. Verð kr. 169.000 (að-
eins máltíðir undanskildar). I
september verður menningar- og
listaferð um Ítalíu, einnig undir
stjórn Ingólfs. Og .í október fer
hann með hóp til Japans, Kóreu
og Taiwan. Þeir feðgarnir Ingólf-
ur og Andri ættu að kunna að
skipuleggja ferðirnar.
O.Sv.B.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. MARZ1991 13