Lesbók Morgunblaðsins - 31.08.1991, Page 14
Skoðunarferð meðfram Algarve-strönd.
Ferðafréttir
Frá Þýskalandi
svæði þar til Henry prins stofnaði
hinn fræga sjóferðaskóla í Sagres
á 15. öld og safnaði til sín helstu
stjömufræðingum, sjóferða- og
kortagerðarmönnum. (Ótrúlegt að
Portúgöium skyldi takast að finna
næstum 2/3 af óbyggðri jarð-
kringlu á einni öld.) Ennþá má
sjá risastóran „rósa-áttavita“
(Rosa dos Ventos) á steingólfi
kastalans í Sagres - með 39
metra radíus.
Þegar sjóferðaskólinn var
stofnaður trúðu Portúgalir að
„heilagur fundarstaður guðanna“
væri á vestasta skaga Algarve,
enda óþekktur heimur handan við
hafið. Skaginn er kenndur við
heilagan Vincent sem á að vera
jarðsettur þar. Tíu heilagir hrafn-
ar héldu vörð um gröf dýrlingsins
og hrafnar sveima enn yfir bjargi
St. Vincent og eilífum brimvegg.
Sítrónutré og steinsteypa
í stað möndlutrjáa
í leigubíl þjótum við framhjá
öllum nýbyggingum með tómum
gluggum, en líka ekrum af
sítrónutrjám sem eru að verða
ríkjandi í garðyrkju hér. I mildu
loftslagi vaxa flestir gómsætir
ávextir. Hér er gnægtabúr af
ávöxtum og ferskum fiski. Og
Portúgalir kunna að matreiða.
Gætið ykkar ef þið viljið halda í
línurnar!
í janúar kemur vorið og
möndlutrén blómstra með hvítum
blómum. Falleg er þjóðsagan um
Márakonung og norrænu prins-
essuna sem undi ekki í Algarve,
saknaði sVo hvítu snjóflyksanna á
vetuma. Þá lét konungur planta
þúsundum al' möndlutijám. Bar
síðan konu sína að glugganum
einn febrúarmorgun svo hún
mætti sjá hvítu „snjóflyksurnar"
þekja jörðina. Og norræna konan
og Márakonungur lifðu síðan í
hamingjusömu hjónabandi eins og
í ævintýri.
Albufeira, höfuðborg
ferðamannsins
Rökkrið er að færast yfir þegar
við ökum um Montechoro, útbæ
Albufeira, gististað hjá Utsýn/Ur-
val. Hér er mikið um að vera og
allar götur yfirfullar af ferða-
mönnum. Á útsýnishæð horfum
við yfír „St. Tropez" Portúgals.
Ljós em óðum að kvikna í klettun-
um í ótal mörgum veitingastöðum
sem teygja sig út á syllurnar.
Fyrir neðan okkur ströndin, en
hvít hús í þyrpingu ofan á kletta-
hæðinni.
Til að komast niður á ströndina
þarf að ganga í gegnum klettinn
frá aðalverslunargötu miðbæjar-
ins - býsna góð tenging milli sjó-
baða og sölumennsku! Albufeira
var frábær virkisbær, enda
síðasta virki Máranna sem féll
fyrir kristnum 1250. í miðbænum
em alltaf einhveijar búðir opnar,
og í kvöldhúminu eru klettagöng-
in undirlögð af listamönnum sem
vilja mála andlitsmyndir og sölu-
mönnum. - En þetta viljum við -
nóg til að gleðja augað og freist-
ingar á hveiju strái.
Aðaltorgið er umkringt af
minjagripabúðum og mörkuðum.
En yfírbragð bæjarins er márískt,
með hvítkalkaðar húsaraðir með-
fram mjóum öngstrætum sem
teygja sig í hálfhring út frá torg-
inu. Hótelið - Sol e Mar - gnæf-
ir fremst á klettinum. - En
skemmtilegasta byggingin er
gamla ráðhúsið með klukkuturn-
inum - sem minnir á kirkju.
Líkið á blúndubörunum
Aðaldyr kirkjunnar eru lokaðar,
en hálfognar hliðardyr út í hlýtt
kvöldið. I miðjum dyrum nem ég
staðar. Hefsjaldan skammast mín
eins mikið. En augað nemur fagra
sýn. Rétt ofan við ys og þys mið-
bæjarins liggur iík á börum. Látin
kona sem í brúðarskarti. Blúndur
og knipplingar skreyta dánarbeð-
inn. Örþunn grisjuslæða yfir. Inni
í hálfrökkrinu krýpur fólk með
kerti í hljóðri bæn. Og frekur
ferðamaður næstum búinn að
ijúfa friðhelgina!
Treystið ekki „plastinu“
í Portúgal!
Aftur í ys og þys og erfítt að
velja úr litlum, notalegum veit-
ingahúsum. En útsýnið heillar og
uppi á klettinum er veitingahúsa-
röð meðfram sjónum. Oft er vara-
samt að treysta um of á „plast-
ið“! Þjónninn hristir bara höfuðið
og við eigum ekki fyrir 4.950
króna ljúffengri máltíð. Hvað skal
gera? Þeir koma að borðinu okk-
ar, hver eftir annan, en enginn
skilur ensku, þýsku eða spönsku-
hrafl. Nú reynir á fingramál og
blíð bros! Um síðir fallast þeir á
að við sendum peninga tii þeirra
frá hótelinu.
Leigubflstjórar taka um 1.675
kr. á klst. í skoðunarferð. En
skemmtilegra að taka sér bíla-
leigubfl í nokkra daga, hér er svo
margt að sjá og stutt að aka yfír
til Spánar. Frá Villamoura Marina
er boðið upp á þriggja tíma sigl-
ingar. Góður valkostur er líka að
leigja sér bát (og fiskimann) yfír
daginn - fylla bátinn af mat og
drykk og fara á eigin vegum í
leit að ósnortnum víkum og hell-
Með haustinu færist fjör í
menningarviðburði ársins á
meginlandinu - og ný tilboð
fyrir ferðamenn. Listahátíðir
eru í gangi í Hamborg og Niirn-
berg, nýtt eplavínssafn og
fjallaferðir í Frankfurt, göngu-
ferðir um Svartaskóg, Mozart-
tónar og gömul klausturmenn-
ing í Efra-Bæjaralandi.
Listahátíðin í Hamborg „sumar
í Hamborg ’91“ stendur fram í
september með hljómleikum, leik-
hús- og listsýningum. Hafið sam-
band við Tourismus-Zentrale
102249, D-W-2000 Hamburg 1.
Sími: 040/300510.
Eins og undanfarin ár býst
þýska borgin Núrnberg við um
milljón gestum á 21. hátíð gömlu
borgarinnar 12.-23. september.
Um 3.000 leikarar taka þátt í 90
menningar- og þjóðháttaviðburð-
um. Meðal annars er Pegnitz-áin
skrautlýst, flugeldasýning og
blásturshljómsveitir spila. Þeir
sem vilja taka þátt í hátíðahöldun-
um geta bókað helgardvalir frá
kr. 2.415. Upplýsingar: Congress-
og Tourismuszentrale 4248,
D-W-8500 Núrnberg, sími
0911/23360.
Skoðunarferðir um
Frankfurt og nágrenni
Nýjung frá hefðbundnum skoð-
unarferðum í Frankfurt eru
Taunus-fjallaferðir á sunnudög-
um. Þá er Bad Homburg, róm-
verska virkið í Saalburg heimsótt,
Hessengarður, Krónberg og Kön-
igstein. Einnig er komið við í hinni
sérkennilegu, gömlu borg Höchst.
egar dagurinn styttist og
lægðir fara að gera sig
heimakomnar með tilheyrandi
veðráttu þá er að athuga hvernig
unnt er að nota frístundir þessa
árstíma til útiveru. Ferðafélagið
sníður sína ferðáætlun eftir þess-
um aðstæðum og býður upp á
dagsferðir við hæfi og helgarferð-
ir. Beijaferð í Skorradal verður
farin 1. sept. og eins og allsstaðar
á landinu þetta árið eru næg ber.
Beijatínsla fylgir haustinu og auð-
velt að virkja alla fjölskylduna til
þess að taka-þátt. Gönguferðir er
ómissandi fyrir stóran hóp fólks
og sífellt fleiri ánetjast þeirri iðju
að rölta um utan alfaraleiða.
Ferðafélagið er með sínar dags-
ferðir um hveija helgi og þar
kennir margra grasa og alltaf er
gaman að ganga með góðu fólki.
í september er mikil fjölbreytni
í gönguferðum bæði fyrir bratt-
genga og eins fyrir hina sem vilja
rölta á láglendi. Sunnudaginn 1.
september er gönguferð á Skarðs-
heiði og í þeirri ferð verður komið
við á Skessuhorni. Þessi ferð er
fyrir þá sem vilja leggja á bratt-
ann, en sama dag er einnig göngu-
ferð um sléttlendi og verður geng-
ið frá Nesjavallaveginum nýja að
Borgarhólum, sem er gamall
gígur á Mosfellsheiði. Viku
seinna, þ.e. sunnudaginn 8. sept-
ember, verður gengið á Botnssúl-
ur (1.095 m) brottför kl. 10.00
og á sama tíma verður einnig
boðið upp á gönguferð um Gagn-
heiði að Hvalvatni og niður í
Botnsdal í Hvalfirði. Kl. 13.00
sama dag verður fjöruferð fjöl-
skyldunnar á Bjarteyjarsand í
Eplavínið er þekktasti mjöður
ferðamanna í Frankfurt. í Römer-
berg er búið að opna safn yfír
þróun eplavínsins, sem býður að
sjálfsögðu upp á smökkun! En
árið um kring geta ferðamenn
farið í skoðunarferðir um borgina
á eigin vegum með segulbands-
tæki í farteskinu, með þýsku eða
ensku tali. Ritið „Frankfurt City
Tours“ er fáanlegt á upplýsinga-
stöðvum ferðamanna í Frankfurt.
„ísöld“ að ganga í garð
- segja Þjóðveijar þó að veðrið
sé ekki að kólna! „ICE“ er skamm-
stöfun fyrir borgarhraðlestina,
nýja straumlínulest, sem hóf ferð-
ir 2. júní og gengur eftir tveimur
brautarlínum, Hannover-Frankf-
urt og Maúnheim Stuttgart.
„ICE“ nær 250 km hraða á klst.
og mun tengja Hamburg-Frankf-
urt-Basel-Zúrich árið 1993.
Bjartir litir og nýtísku
straumlínulögun einkenna borg-
arhraðlestina. í henni hafa ferða-
þægindin náð hámarki. Símar,
þijár útvarps- og tónlistarrásir
eru við öll sæti og sérstök skrif-
stofudeild fyrir viðskiptafarþega
með öllum nýjasta 'tæknibúnaði.
Mozart í Efra-Bæjaralandi
„Tónlistarsumarið" í Efra-Bæj-
aralandi stendur fram í október.
Nærri 50 hljómleikar eru haldnir
í 40 þorpum, t.d. í Herren-
chiemsee-höll, St. Bartholomew,
Königssee, Frauenchiemsee og í
Baumburg (gimsteinn í rókókól-
ist). Mozart er mikið á dagskrá,
enda árið helgað undrabarninu.
Hvalfirði og á sama tíma verður
í boði gönguferð að hæsta fossi
landsins, Glym í Botnsá í Hval-
firði.
Úrval helgarferða er hjá Ferða-
félaginu í september og reyndar
fram í október. Fyrstu helgina í
sept. (6.-8.) verður ferð í Jökul-
heima (við brún Vatnajökuls),
Heljargjá verður skoðuð í þessari
ferð og einnig Hraunsvötn (urðu
til í gosi um 1480) sérstæð nátt-
úrusmíð, en þau teljast til Veiði-
vatnasvæðisins. Helgarferðir til
Landmannalauga aðra helgi í
amó.
A
Inágrenni Reykjavíkur og víða
sunnanlands er mikið um al-
menningsbeijalönd og heldur
ekki langt að skjótast út á Snæ-
fellsnes, ef fólk stefnir á beija-
tínslu yfir helgi. Svæðið undir
Jökli er þekkt beijaland. Barða-
ströndin er líka full af beijum.
Og þegar undirrituð var á ferð
um Vestfirði í júlí voru krækiber
næstum fullþroska, bláber farin
að blána og krökkt af beijum frá
ísafirði til Skutulsfjarðar. Frá
Austfjörðum berast fréttir um
góða sprettu.
Upplýsingar: Konzertgeschaftsfu-
hrung í Landratsamt, Ludwig-
Thoma-Strasse 2, D-W-8200
Traunstein. Sími: 0861/58316.
Gömul klaustur í
Efra-Bæjaralandi
Sýningin „Hápunktur og hrörn-
un gömlu klaustranna" er haldin
í Benediktbeuren-klaustri í
Múnchen og opin til 20 október.
Nýlega er búið að endurreisa þetta
12 alda klaustur eftir eldsvoða.
Upplýsingar: Haus der Beyerisc-
hen Geschichte, Liebigstr. 22,
D-W-8000 Múnchen 22, sími
089/2165583.
Gönguferðir í Svartaskógi
Þjálfaðir leiðsögumenn fylgja
göngufólki um vesturveg frá
Pforzheim til Basel. Norðurslóð
frá Pforzheim til Hausach verður
gengin 14.-21. september, en suð-
urslóð 28. september til 5. októ-
ber og endar í Basel. Verð á ein-
stökum gönguferðum frá um
18.000 kr. á mann. Fyrir vel þjálf-
að göngufólk má fara alla leiðina
með því að leggja á baki 16-27
km á dag, sem kostar með gist-
ingu og morgunverð á sveitabýl-
um eða hótelum um 35.000 kr.
Upplýsingar í upplýsingamiðstöð
Svartaskógar (Schwarzwald)
D-W-7530 Pforzheim, sími
07231/14051.
Ný sundlaug í Travemunde
I Travemunde er búið að opna
sundmiðstöð fyrir almenning.
Helsta aðdráttaraflið er 105 m
löng vatnsrennibraut. Endur-
september þar sem Jökulgilið
verður skoðað, en það er einungis
hægt á haustin þegar vatn
minnnkar í Jökulgilskvíslinni.
Haustlitaferðir í Þórsmörk eru á
áætlun. Margir þekkja Þórsmörk-
ina helst í sumarskrúða en haust-
litir þar eru með því fegurra sem
gerist. Eins og fram hefur komið
í þesari upptalningu á ferðum
Ferðafélagsins er úr mörgu að
velja fyrir þá sem vilja leggja land
undir fót með Ferðafélagi Islands
í september þetta árið. Við vísum
til ferðaáætlunar FÍ fyrir árið
1991 þar kennir margra grasa og
mikið ferðaval allar helgar til ára-
móta.
Nokkrir ferðaþjónustubæir
auglýsa beijatínslu og gefa upp-
lýsingar um sprettuna. Beija-
tínsla er ókeypis fyrir dvalar-
gesti. Gæsaveiðitíminn er hafínn
og stendur fram í miðjan mars.
En ijúpnaveiðin byijar ekki fyrr
en 10. október til 23. desember.
Margir ferðaþjónustubæir bjóða
upp á 20% afslátt á gistingu frá
15. ágúst fram til 15. júní ’92.
Afslátturinn miðast við dvöl í
miðri viku, frá mánudegi til
föstudags. Bóka þarf fyrirfram.
O.Sv.B.
um.
Oddný Sv. Björgvins
Almennar upplýsingar
Síðasta brottför í leiguflugi Útsýnar/Úrvals til Faro er 2. október,
en auðvelt að fara í samtengdu, beinu flugi um London.
VEÐRÁTTA: Á Algarve eru yfir 3.000 sólskinsstundir á ári og úrkoma
nær ekki 100 mm á sumrin. Lofthiti um 25 gráður í september, 22 í
október. Sólgular; langar almenningsstrendur, en auðvelt að fínna „eig-
in“ klettavíkur. IÞROTTIR:. köfun, sjóbretti, sjóskíði, sjóstangaveiði,
tennis og reiðtúrar. Val um bestu golfvelli í heimi. NÆTURLÍF: úrvaí
veitingahúsa, diskóteka, næturklúbba og bara í nágrenni Albufeira,
Montechoro, Areias de Sao Joao og Oura. INNKAUP: úrval af keramik
og handmáluðum leirvörum. Fallegar handfléttaðar körfur, útsaumsvör-
ur, pijónles, skinn og leðurvörur.
Ferðir Ferðafélags íslands
Þegar hausta tekur finnst mörgum að þá sé ekki rétti timinn
til þess að eigra um úti í náttúrunni og njóta útiveru. En það er
aldeilis ekki rétta viðhorfið, því að hver árstíð hefur eitthvað sér
til ágætis fyrir náttúrunnendur, þó því verði ekki neitað að sumar-
ið sé sá árstími sem flestir vilja ferðast og skoða landið.
Frá Ferðafélagi íslands.
Berjatínsla og gæsaveiði
á ferðaþjónustubæjum
Og haustið er að læðast að eftir heita, sólríka sumarmán-
uði. Lyngið í brekkunum hefur teygað í sig sólarhitann og
beijavísar og sætukoppar eru þrungnir af dísætum beijasafa.
Beijaspretta víða um land er með eindæmum góð. Og nú er
bara að nýta sér gjafir náttúrunnar og klyfja sig af stað í beij-