Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Qupperneq 2
Að vera læs á þær rún- ir sem nátturan ristir ofviðrinu sl. vetur vorum við óþgilega minnt á óstöð- ugleik veðráttunnar á og kringum vort ástkæra fósturland. Hitt ætla ég að fáir, alltof fáir, hafi hugleitt að Iandið sjálft á ekki óverulegan þátt í því tjóni, sem þá og oft áður hefur orðið við strend- „Það er raunar í hæsta máta ámælisvert að hlutaðeigandi yfirvöld skuli ekki hafa drifið í að koma upp kerfisbundnum mælingum á afstöðu láðs og lagar við landið fyrir löngu, svo oft sem búið er að benda á nauðsyn þess.“ Eftir JÓN JÓNSSON ur þess og sem jafnan virðist koma innbyggj- um þess á óvart enda þótt við séum ósjaldan minnt á að það er ekki sú „terra firma“ sem sýnist. Tjarnirnar og örlög þeirra Hér á höfuðborgarsvæðinu eru nokkur ör- nefni, en ömefni eru lifandi saga, vitni um það, sem einu sinni var, en ekki lengur. Ör- nefni þau, sem ég hér er að hugsa um eru: Seltjörn, Lambhúsatjörn, Skógtjöm og Garð- atjörn. Allt eru þetta nú hafsvíkur eða hafs- svæði og raunar sést móta fyrir síðast nefndu tjörninni aðeins um stórstraumsfjöru niður af kirkjustaðnum Görðum. Hefði nú náttúran verið ótrufluð af aðgerðum manna sýnist lík- legt að við hefði mátt bæta við Reykjavíkurt- jöm, því slík munu örlög hennar verða. Það er aðeins tímaspursmál. Rannsóknir hafa sýnt að fyrir um 9.000 árum hófst mómyndun í austanverðri Seltjöm á Seltjamarnesi og með tímanum varð þar mómýri á þriðja metra þykk a.m.k. Þar var unninn mór fram yfir síðustu aldamót, og má enn sjá þar móta fyrir mógröfum um fjöru, en nú fellur sjór yfir' þessi jarðlög, sem um stórstraumsflóð em líklega allt að 3 m neðst við yfirborð sjáv- ar. Hvað er að gerast? Það em nú talsvert meiri en tvær aldir liðn- ar frá því að þeir Eggert Ólafsson og Bjami Pálsson í því merka riti, sem Eggert er sagð- ur að mestu hafa skrifað, létu þess getið að mór væri neðansjávar hér á landi og unninn m.a. á Kjalamesi, um fjöm, og nefndur sjó- torf. í ritum frá franska leiðangrinum hing- að, þeim sem jafnan er kenndur við Paul Gaimard, er líka á þetta minnst. Frá seinni tíð muna sjálfsagt ýmsir eftir deilum þeirra Ólafs Friðrikssonar (olafur við Faxafen) og Trausta Einarssonar um afstöðubreytingar láðs og lagar á sögulegum tíma. Vart efast nú nokkur um hvor hafi þar á réttu að standa. Sigurður Þórarinsson lagði þama einnig orð í belg, sömuleiðis Guðmundur Kjartansson. Beinar rannsóknir þeirra tveggja síðastnefndu auk Þorleifs Einarssonar og þess er þetta ritar sýna svo ekki verður um deilt að vemleg- ar breytingar hafa orðið í afstöðu láðs og lagar að því er virðist á a.m.k. 9 undangegn- um árþúsundum, þannig að sjór gengur á land. Vert er í því sambandi hafa í huga að sjór brýtur ekki kyrrstæða strönd, nema tíma- bundið og óvemlega í aftökum. Ekki verður annað séð en að sjór hafi gengið á land öldum saman um land allt. Hvort nokkur mismunur kunni að vera á því frá einum stað til annars eða einu héraði til annars skal hér ósagt lát- ið, enda liggja, því miður, enn ekki fyrir nein- ar mælingar hvað það varðar. Rannsóknir á íjömmó, mýraijarðvegi, sem nú er langt und- ir flæðarmáii, en er ótvíræð ferskvatnsmynd- un, sannar þessar breytingar. Þar eð engar námkvæmar langtíma mælingar eru til hvað þetta varðar nema frá Reykjavík og sem þó ná aðeins yfir tímabilið frá því um 1950 hef- ur nokkur vafi leikið á hvort þessar breytinga væru enn í gangi og þá einkum hvað umfangs- miklar þær væm, og víst er að ráðamenn þessa lands hafa látið sig spursmálið litlu skipta, sem og álit þeirra, sem kynnt hafa sér það í alvöru. Svo fleira sé nefnt hvað þetta varðar, skal hér nokkuð talið. Ljóst er að væri ekki sjó- vamargarður úr stórgrýti vestan á Álftanesi væri sjór kominn inn í Bessastaðatjörn vestan frá fyrir líklega meira en 15 ámm. Sjávar- fítjungur færist nú hægt en örugglega inn á landið milli Skógtjamar og Lambhúsatjamar. Einna best sést þetta við austurendann á Skógtjörn alveg við veginn. Það stefnir í að Álftanes verði orðið eyja eftir nokkrar aldir og með sama áframhaldi má reikna með að grípa verði til aðgerða til að vernda veginn þegar líður á næstu öld. Eskines heitir nyrsti tangi Búrfellshrauns (Gálgahrauns) út í Am- arnesvog. Líklegt má telja, þótt ekki sé sann- að, að ysti tanginn hafí endað í sjó eða við sjávarmál. Gróðurþekja nær langt út eftir þessum tanga og hefur áður náð mun lengra. Nú fer tanginn allur á kaf í sjó um stór- straumsflóð. Ljóst er að jarðvegur getur lengi staðist ágang sjávar inni í víkum og í skjóli en, og það er megin málið, þessi jarðvegur hefði getað myndast- við núverandi sjávar- stöðu. Annað dæmi er staðarhjáleigan Stóragerði í Staðarhverfi við Grindavík. Þar var búið, að mér var sagt fram til 1922, en skoði menn nú þann stað! Stórgrýti hefur sjórinn kastað inn yfir rústimar. Staðarmalir, sjávarkampur- inn mikli þar nokkru vestar færist hægt inn á landið. Sjá má þar húsrúst, sem enn stend- ur hálf út undan kampinum. Líklega er ágangur sjávar hvergi jafn áber- andi og á Mýram í Mýrasýslu þar sem sjávar- fítjungur færist stöðugt inn á landið. Knarr- ames er nú eyja. Við sunnanverðan Breiða- fjörð er sömu sögu að segja og ljóst að þar er heldur engin kyrrstaða. Sé nú haldið aust- ur strandlengju Suðurlandsins era dæmin ljós úr Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri, en skammt er nú frá að telja, að síðast varð stórtjón af sjávargangi á þessum stöðum. Enda þótt slíkt gerist á nokkurra ára fresti er svo að sjá sem fólki komi það alltaf jafn mikið á óvart. Byggt er, að því er séð verður fullkomlega að ástæðulausu, gáleysislega nálægt sjó. Jafnvel era skólar settir svo. Svo Stokkseyri séð úr lofti. Oft er byggt alltof nærri sjó og svo verða menn undrandi þegar stórfelldur skaði verður, líkt og í febrúarveðrinu í fyrra. ríður óhappið yfir og ráðamenn sem aðrir virðast undrandi, en hefur ekki dottið í hug að framkvæma þá einföldu og einu réttu aðgerð, að færa byggðina undan sjó, heldur era ný hús byggð á gömlum grunni og í sömu afstöðu til hættunnar. Á sandströndinni aust- an Þjórsár og á Landeyjasandi er lítið að finna, sem gefur upplýsingar um þetta spursmál. Ströndin er flöt og framburður vatnsfallanna og rof halda henni svo. Þegar austur á Sól- heimasand kemur verður annað fyrir. Neðst á sandinum er margra metra hár, brattur bakki, sem sjórinn hefur brotið, en neðan við hann er allbreið, lág sandfjara greinilega úr sama efni, sem sjórinn hefur sorfíð neðan af þeirri miklu keilu, sem sandurinn er. Jafn halli á sandinum sýnir að hann hefur fyrram náð lengra út. Yfirborðslag Skógasands er án efa eftir jökulhlaup, sem orðið hefur við gos í Myrdalsjökli vestanverðum og hafa þau hlaup orðið dijúg í að byggja sandinn upp, enda sama eðlis og fyrsti meginþáttur Kötlu- hlaupa. Sannanir fyrir þessu má lesa úr jarð- lögum efst á sandinum, við Hofsá og framan við Þurragil. Þar hafa 4-6 m þykk lög af svörtum vikri lagst yfir gróið land og viði vaxið. Hlaupið, sem það gerði, varð, sam- kvæmt 14 C aldursákvörðun, fyrir um 1480 ± 75 áram. Heimildir eru um hlaup niður Sólheimasand á árunum 1245 og 1262 og sagt að sandurinn hafi hækkað um 38 m í síðara hlaupinu. Bæði þessi hlaup hafa verið kennd við Kötlu, en öllu líklegra sýnist mér að upptök þeirra hafí verið vestar í jöklinum, í eða við Goðabungu. Skal það ekki fremur rætt hér. í síðasta gosi Kötlu, nánar tiltekið 12.-13. október 1918, færðist ströndin á kafla um 4 km fram og út þangað, sem áður var um 40 m dýpi að talið var. Þá varð Kötl- utangi til, en sandurinn á svæðinu ofan við er talið að hafi hækkað um 8-9 m við hlaup- ið. Nu hefur sjórinn brotið framan af Kötl- utanga og þar er nú um 2 m hár stallur ofan við fjörana. Alviðrahamrar í Álftaveri era 4-6 m háir sjávarhamrar, sem sjórinn hefur brot- ið í nútímahraun, en sandfjara er neðan við. Svo virðist sem Breiðamerkuijökull hafi, á nútíma, náð lengst fram um 1893 eða 1894 og víst er að 1928 lá hann að öldunum, sem era aðeins norðan við brúna á þjóðvegi 1. Svo virðist sem að um sama leyti og jökullinn verður kyrrstæður og fer að hörfa til baka fari sjór fyrir alvöra að heija á ströndina. Nú er nokkurra metra hár, brattur bakki ofan við fjöruna eins og á Slíógasandi og án efa til orðinn á sama hátt. Á áranum 1904- 1968 virðist ströndin við Jökulsá hafa færst til baka um sem næst 10 m á ári hveiju og gerir svo líklega enn. Ljóst er að lónið hefur grafíst undir jökli og líklega ærið snemma orðið til þess að framburður árinnar náði ekki til sjávar nema sem fínt efni, fínn sand- ur, mósandur og leir. Áin hætti að byggja upp ströndina og ágangur hafsins varð einráð- ur. Fullyrt hefur verið að land væri nú tekið að hækka á þessu svæði og eins við Homa- fjörð. Ekkert skal hér um þetta fullyrt, enda liggja engar marktækar mælingar fyrir, en ekki sýnist mér það geta rímað við það, sem\ líka er staðhæft, að Ilornafjarðarós sé að grynnka. , ' \ Hitt virðist mér nær eðlilegu atferli náttúr- unnar, að sé land að hækka þá hljóti ósinn að skera sig niður a.m.k. þangað til komið er á fast berg — og raunar eftir það líka, aðeins miklu hægar. Úr þessu verður ekki leyst nema með ná- kvæmum mælingum, sem taka nokkur ár. Það er raunar í hæsta máta ámælisvert að hlutaðeigandi yfirvöld skuli ekki hafa drifið í að koma upp kerfisbundnum mælingum á afstöðu láðs og lagar við Iandið fyrir löngu, svo oft sem búið er að benda á nauðsyn þess, bæði í ræðu og riti. Heldur er skellt við því skollaeyram og flanað í blindni út í að reisa dýr mannvirki, sem endast ættu mörgum kynslóðum, niður við sjó og það svo að gráf- ið er marga metra niður fyrir núverandi með- alhæð sjávar vitandi það að sjór gengur þar upp í kjallara um jafnvel hvert flóð, að nú ekki tala um stórstraumsflóð, svo að hafa verður dæluútbúnað til að forðast vandræði. Maður hlýtur að spyija: Hvað er að? Mun ekki hver kynslóð hafa nóg með sín eigin? Er þetta að skila bættu Iandi í barns síns hendur? Höfum við enga ábyrgðartilfinn- ingu gagnvart óbornum afkomendum? Áleitin hlýtur sú spuming að vera, hvað munu þeir segja um aðgerðir — eða öllu heldur aðgerð- arleysi — okkar tíma í þessu máli? Ég held að þeir hljóti að segja, og vart án undranar. Þeir vissu þetta, en hirtu ekki um. Það sem hér vantar er að þeir, sem ákvarð- anir taka, séu nokkurn veginn læsir á þær rúnir, sem náttúran ristir. Séu þeir það ekki þá er sú krafa til þeirra réttmæt að þeir geri sér grein fyrir eigin ólæsi og leiti jaðstoðar þeirra, sem læsir eru. Slík er lágmarkskrafa. Þægilegt er að taka slundarhagnað og velta vandanum yfir á aðra, en hvað skal segja um slíkt siðferði? Höfundur er jarðfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.