Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Blaðsíða 6
Jón Eiríksson, kanínubóndi í Vorsabæ, höfundur ljósmyndanna og oddviti á Skeið-
um, færir í sjóðbókina.
Hestaverkfæraöldin: Snúningastrákur á rakstarvél suamrið 1943. Vorsabær í bal
Lj ósmy ndaannáll
Jóns í Vorsabæ
að er ugglaust einsdæmi, að bóndi gefi út bók
með ljósmyndum eftir sig. Sú útgáfa hefur til
þessa verið látin atvinnuljósmyndurum eftir.
Það mun líka fátítt, að áhugamaður á þessu
sviði skrásetji sögu með myndavél; gerist anná-
Á 50 ára tímabili hefur
Jón tekið 10 þúsund
ljósmyndir, ekki síst af
vinnubrögðum á
Skeiðum og nú eru þessar
myndir verðmæt
heimild.
laritari sinnar sveitar og noti til þess mynda-
vél. Þetta hefur Jón Eiríksson bóndi í Vorsabæ
á Skeiðum gert og bók með myndum hans
hefur nú verið gefin út. Elzta myndin er af
heybandslest frá sumrinu 1941. Þar nær Jón
í skottið á verkmenningu, sem búin var að
standa um aldir, en var einmitt á striðsárun-
um að syngja sitt síðasta vers. Næst kom
tímabil hestaverkfæranna, sem Jón hefur
myndað dyggilega, en einnig það var að líða
að lokum um og eftir 1940, þegar segja má
að vélaöld hafi hafízt. Jón hefur til dæmis
myndað hestvagnalest frá 1942, þegar steyp-
umöl í íbúðarhúsið í Vorsabæ var sótt út á
Mumeyri við Þjórsá; sömuleiðis plægingu,
mjólkurflutninga á sleða og vagni og rakstrar-
vél sem dregin var af hesti. Merkileg mynd
er þarna af tímamótum vélaaldar: Traktorinn
er kominn að Vorsabæ, en samt er verið að
nota hestvagna við hirðingu. Síðustu mynd-
imar em hinsvegar frá sumrinu 1991 og
önnur þeirra skráir merka nýjung í vinnu-
brögðum við heyskap: Rúllubaggabyltinguna.
Inn á milli em gleðskaparmyndir; fjallmenn
lyfta pelum og draga í réttum. Hér vantar
aðeins myndir af réttarböllunm í Brautar-
holti, sem Helgi Hjörvar gerði fræg á sínum
tíma og brá þá nokkmm frægðarljóma á
Vorsabæjarbóndann í leiðinni.
Fyrstu ljósmyndavél sína eignaðist Jón í
Vorsabæ í apríl 1941; það var Kodak kassa-
vél, sem þá vom algengar. Níu ámm síðar
áskotnaðist honum útdregin Agfavél og eftir
að belgurinn á henni bilaði, tók hann á níss-
neska vél, sem ekki er getið um nafn á. Það
var svo 1971, að Jón eignaðist rafeindaknúna
Yasicu, japanska, sem þótti góð á sfnum tíma,
en nú í allmörg á hefur hann notað Canon
AE-1 eins og margir blaðaljósmyndara hafa
notað. Framfarirnar í myndavélaeign Jóns
bónda era hliðstæðar við þróunina frá hesta-
sláttuvél til þess að slá með traktor.
Útgefandi bókarinnar er Oddvitanefnd
Laugaráslæknishéraðs og Afréttarmálafélag
Flóa og Skeiða. Fyrir hönd þeirra skrifar
Páll Lýðsson, bóndi og oddviti í Litlu Sand-
vík, formála og segir m.a. svo:
„Hann nær í skottið á gamla tímanum,
myndar fjallferðir fyrir tíma vegagerðar og
fjallmannakofa, nær myndum af mjólkur-
flutningum á sleðum. Hann myndar vél-
tækni, sem nú er orðin. úrelt og yrði brátt
öllum gleymd ef hann hefði ekki gripið augna-
blikið. Svo hraðfleyg er framfarasaga þessar-
ar aldar að hvorki hefur hafst undan að skrá-
setja né mynda suma hiuta hennar áður en
þeir em horfnir. En ljósmyndarinn nær einn-
ig myndrænum lýsingum á upphafi margra
varanlegra nýjunga á Skeiðum. Hans gæfa
er að lifa á einstökum tíma þegar sannkölluð
aldahvörf verða í sveitinni. Og lýsingin á öllu
þessu er dæmigerð fyrir framfarasókn í öllum
íslenzkum sveitum.
„Hinn býr í Vorsabæ" var sagt forðum og
ég veit að Jón Eiríksson er löngu hættur að
erfa þessa tvíræðu setningu. Auðvitað er það
vegna þess að hann hefur aukið smám saman
við hróður sinn og Vorsabæjar með verkum
sínum. Við sem að þessari útgáfu stöndum á
sjötugsafmæli Jóns vonum að hann auki enn
nokkurri frægð við nafn sitt og Vorsabæjar
með því að leyfa birtingu á þessu sýnishorni
verka sinna.“
GS.
Á tímamótum í vinnubrögðum: Síðasta heybinding með gamla Samgöngur 1956: Iðubrúin í byggingu og ferjan hjá
laginu í Vorsabæ 15. júlí, 1944. Iðu enn í notkun.
Listrænasta mynd Jóns í Vorsabæ er un
sem léttir störfin við baggahirðingu. Sti
Glaðir á góðri stund. Fjallmenn lyfta p
talið frá vinstri: Eiríkur fjallkóngur í \
Guðmundsson frá Túni og Eiríkur K. E